24 stundir - 19.01.2008, Page 36

24 stundir - 19.01.2008, Page 36
LAUGARDAGUR 19. JANÚAR 2008ATVINNA36 stundir Vallý s.510 3728 Böddi s.510 3726 BLAU ÐIÐINNATVINNUBL AÐIÐ atvinna@24stundir.is Ríkisstjórnin hefur ákveðið að veita alls 100 milljónum króna árið 2008 til eflingar atvinnuþróunar og nýsköpunar á þeim svæðum sem verða fyrir aflasamdrætti vegna skerðingar þorskaflaheimilda. Styrkhæf svæði eru sveitarfélög og eyjar þar sem hlutfall starfa í veiðum og vinnslu er 10% eða hærra. Áformað er að í fjárlögum ársins 2009 verði 100 milljónir sem verður ráðstafað á sama hátt. Auglýst er eftir umsóknum um stuðning við verkefni á viðkomandi svæðum. Umsækjendur geta verið sveitarfélög, fyrirtæki og einstaklingar. Hámarks- styrkur er 8 milljónir króna, þó aldrei hærri en 50% af viðurkenndum heildar- kostnaði verkefnisins. Hámarks hlutafé er 8 milljónir króna, þó að hámarki 50% af heildarhlutafé. Styrkir verða veittir til: Stofnkostnaðar annars en kaupa/byggingar húsnæðis, véla og tækja. Þróunarkostnaðar á vöru og/eða þjónustu Markaðssetningar á vöru og/eða þjónustu. Við afgreiðslu umsókna verður sérstaklega litið til langtímaáhrifa verkefna, sköpunar nýrra starfa á svæðunum og hversu hratt störfin geta orðið til. Ekki er um að ræða styrki/hlutafé til menntunar- og rannsóknarverkefna. Umsóknum skal skila fyrir 19. febrúar 2008 til atvinnuþróunarfélaga eða samtaka sveitarfélaga á viðkomandi svæði á sérstökum umsóknareyðublöðum sem hægt er að nálgast á heimasíðu Byggðastofnunar (www.byggdastofnun.is).Tenglar á heima- síður atvinnuþróunarfélaganna og samtaka sveitarfélaga eru á heimasíðu Byggðastofnunar undir ,,innlent samstarf“. Mótvægisaðgerðir ríkisstjórnarinnar 2008 og 2009 ÞRÓUNARFÉLAG AUSTURLANDS Efling atvinnuþróunar og nýsköpunar Sjálfstæður rekstur Ef þú hefur í hyggju að segja upp starfi þínu til að stofna þitt eigið fyrirtæki er vert að byrja á því að skipuleggja sig mjög vel og eins að hugleiða þau vandamál sem upp gætu komið. Skipuleggðu þig vel og hopp aðu ekki beint út í djúpu laugina! Ef þú hlýtur styrk frá vinnuveitanda þínum til líkamsræktar og læknisþjón- ustu verður þú að taka með í reikninginn meiri útgjöld fyrir slíkt. Þá skaltu nýta þér að fara á frí námskeið og þjálfun sem í boði er í fyrir- tækinu og gæti nýst þér síðar meir í þínum eigin rekstri. Fjárhagslega hlið in er ein sú mikilvægasta þegar kemur að sjálfstæðum atvinnu- rekstri og því skaltu vera viss um að peningamálin séu í góðu standi og skuldir ekki of miklar til að láta af föstu starfi. Í framhaldi af þessu er gott ráð að prófa að lifa á eins litlu og maður getur til að sjá hve mikið maður gæti þolað í upphafi reksturs þegar pen- ingar eru enn ekki farnir að streyma inn. Sérfræð ingar áætla að það taki að meðal- tali tvö ár að koma rekstri almennilega í gang. Loks er mikilvægt að fara í smá na- flaskoðun og spyrja sjálfan sig og fólkið í kringum sig hvort það telji að maður hafi það sem þarf til að reka eigið fyrirtæki. Eins að ræða málin við maka og fjölskylduna um hvernig þessi breyting gæti haft áhrif á líf þeirra. 107.000 eintök á dag - ókeypis Auglýsingasíminn er 510 3744 - kemur þér við

x

24 stundir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: 24 stundir
https://timarit.is/publication/307

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.