24 stundir - 19.01.2008, Síða 41
24stundir LAUGARDAGUR 19. JANÚAR 2008 41
Auglýsing um fasteignagjöld
Álagningarseðlar fasteignagjalda í Reykjavík 2008 verða sendir út næstu daga
sem og greiðsluseðlar fyrir fyrstu greiðslu. Reykjavíkurborg sér um innheimtu
gjaldanna.
Fasteignagjöldin skiptast í fasteignaskatt, lóðarleigu, holræsagjald, vatnsgjald
og sorphirðugjald.
Fjármálaskrifstofa Reykjavíkurborgar framkvæmir breytingar á fasteignaskatti og
holræsagjaldi elli- og örorkulífeyrisþega eftir yfirferð skattframtala, þarf því ekki að
sækja sérstaklega um lækkun eða niðurfellingu þessara gjalda.
Við álagningu fasteignagjalda nú í janúar verður afsláttur elli- og
örorkulífeyrisþega til bráðabirgða miðaður við tekjur ársins 2006.
Þeir sem fengu lækkun á fasteignaskatti og holræsagjaldi á liðnu ári, fá einnig lækkun
á árinu 2008, að teknu tilliti til tekju- og eignaviðmiðunar.
Þegar álagning vegna tekna ársins 2007 liggur fyrir á þessu ári, verður afslátturinn
endanlega ákvarðaður og verða þá allar breytingar tilkynntar bréflega.
Skilyrði lækkunar eru að viðkomandi elli- eða örorkulífeyrisþegi eigi lögheimili í
Reykjavík og sé þinglýstur eigandi viðkomandi fasteignar og/eða geti átt rétt á
vaxtabótum vegna hennar skv. B-lið 68. gr. laga nr. 90/2003 um tekjuskatt og
eignaskatt.
Einungis er veitt lækkun vegna íbúðarhúsnæðis til eigin nota.
Borgarráð hefur ákveðið að tekjumörk elli- og örorkulífeyrisþega vegna
lækkunar fasteignaskatts og holræsagjalds á árinu 2008 hækki um 11,4% á milli
ára og verði eftirfarandi miðað við tekjur liðins árs:
100% lækkun:
Einstaklingar með tekjur allt að kr. 2.080.000.
Hjón með tekjur allt að kr. 2.920.000.
80% lækkun:
Einstaklingar með tekjur á bilinu kr. 2.080.000 til kr. 2.400.000.
Hjón með tekjur á bilinu kr. 2.920.000 til kr. 3.260.000.
50% lækkun:
Einstaklingar með tekjur á bilinu kr. 2.400.000 til kr. 2.790.000.
Hjón með tekjur á bilinu kr. 3.260.000 til kr. 3.890.000.
Umhverfissvið Reykjavíkurborgar, Skúlagötu 19, veitir allar upplýsingar
varðandi álagningu og breytingar á sorphirðugjaldi í síma 411 8500.
Einnig má leita upplýsinga með tölvupósti á netfangið sorphirda@reykjavik.is.
Orkuveita Reykjavíkur, Bæjarhálsi 1, veitir upplýsingar varðandi álagningu og
breytingar á vatnsgjaldi í síma 516 6000.
Einnig má leita upplýsinga með tölvupósti á netfangið or@or.is.
Fjármálaskrifstofa Reykjavíkurborgar, Ráðhúsi Reykjavíkur, veitir upplýsingar varðandi
álagningu annarra fasteignagjalda og breytingar á þeim í síma 411 3636.
Einnig má leita upplýsinga með tölvupósti á netfangið fasteignagjold@reykjavik.is.
Gjalddagar ofangreindra gjalda umfram kr. 25.000 fyrir árið 2008 eru:
1. febrúar, 1. mars, 1. apríl, 1. maí, 1. júní og 1. ágúst.
Gjalddagi gjalda undir kr. 25.000 og gjalda þeirra gjaldenda er völdu
eingreiðslu fasteignagjaldanna er 1. maí.
Hægt er að leita upplýsinga um ofangreind atriði á heimasíðu Reykjavíkurborgar.
www.reyk jav ik . i s
Reykjavík, 19. janúar 2008.
Borgarstjórinn í Reykjavík
MENNING
menning@24stundir.is a
Við mannfólkið erum alltaf með samviskubit yfir
sjúkdómum fólks í þriðja heiminum en gerum svo
ekkert í því, nema kannski borga smápeninga í hjálp-
arstarf og gleyma þessu svo um leið.
Eftir Hildi Eddu Einarsdóttur
hilduredda@24stundir.is
Kvikmyndin Brúðguminn eftir
Baltasar Kormák var frumsýnd í
Háskólabíói í vikunni og hefur
hlotið mikið lof áhorfenda, en
myndin er byggð á leikritinu Ív-
anov eftir Tsjekhov sem hefur jafn-
framt verið á fjölum Þjóðleikhúss-
ins frá 26. desember síðastliðnum.
Sömu leikarar fara með burð-
arhlutverkin í myndinni og leikrit-
inu og er Margrét Vilhjálmsdóttir í
hópi þeirra. Hún fer með hlutverk
fárveikrar eiginkonu aðalsöguhetj-
unnar, en í leikritinu, sem var
skrifað í lok 19. aldar í Rússlandi,
er hún með berkla og í kvikmynd-
inni, sem gerist í nútímanum í
Flatey á Breiðafirði, er hún haldin
geðhvarfasýki. „Aðalatriðið er
reyndar ekki sjúkdómurinn sjálfur
heldur hvaða áhrif hann hefur á
samband hennar við eiginmanninn
og umhverfið. Maðurinn hennar er
með samviskubit yfir því að hugsa
ekki nógu mikið um hana en gerir
samt lítið í því. Í raun er hægt að
hugsa um þetta í stóru samhengi;
Við mannfólkið erum alltaf með
samviskubit yfir sjúkdómum fólks
í þriðja heiminum en gerum svo
ekkert í því, nema kannski borga
smápeninga í hjálparstarf og
gleyma þessu svo um leið. Ég held
að ef við náum að sjá okkur dálítið
í Ívanov sé markmiðinu náð, hvort
sem það er í leikhúsinu eða í bíó-
myndinni,“ segir hún.
Margrét segir verkið vera góða
blöndu af tragík og kómík. „Þetta
er eitt fyrsta verkið sem Tsjekhov
skrifaði í þessum stíl og það besta
við hann er að hann er ofboðslega
mannlega þenkjandi og alltaf að
velta fyrir sér heimspekilegum
spurningum um okkur mann-
fólkið og hvað það er sem við erum
að kljást við í lífinu og þó svo að
leikritið sé meira en 100 ára gamalt
á það alltaf við.“
En það er stór munur á því að
setja upp verk í leikhúsi og að gera
kvikmynd. „Við vinnum þetta
mjög ólíkt, enda eru þetta raun
tveir mjög ólíkir miðlar. Í mynd-
inni er sagan færð í nútímann og
gerist á Íslandi en leikritið er
kannski meira í fljótandi tímarúmi
ef svo má segja og þar er skírskotað
til eldri tíma. Leikhúsið býður upp
á ákveðið frelsi þannig að við get-
um verið með svífandi leikmynd
og alls konar gervi og þóst drekka
vodka. Í kvikmyndinni erum við
hins vegar bundin við ákveðinn
realisma og það hefur verið mjög
fróðlegt að vinna þetta samtímis í
þessum ólíku formum,“ segir Mar-
grét og bætir því við að hún sé ekki
í nokkrum vafa um að það að túlka
sömu persónuna í leikriti og kvik-
mynd samtímis hafi alls ekki trufl-
að. „Þvert á móti hefur það hjálpað
mikið til, ekki síst fyrir leikhúsið af
því að maður þarf oft góðan tíma
til að kynnast persónunni sjálfri og
byggja upp gott samband á milli
persónanna. Þegar við tókum upp
myndina urðu samskipti okkar
mjög þétt og það skilaði sér mjög
vel í leikhúsið,“ segir hún að lok-
um.
Árvakur/Kristinn Ingvarsson
Góð blanda af
tragík og kómík
Margrét Vilhjálms-
dóttir Leikur fársjúka
konu í Ívanov og Brúð-
gumanum.
Brúðguminn og Ívanov
Kvikmyndin Brúðguminn
var frumsýnd í vikunni en
hún er byggð á leikritinu
Ívanov eftir Anton Tsjek-
hov. Leikritið var frum-
sýnt í Þjóðleikhúsinu á
annan í jólum og er sami
leikstjóri og sömu leik-
arar í kvikmyndinni og
leikritinu. Margrét Vil-
hjálmsdóttir fer með eitt
aðahlutverkanna.
Þorvaldur Þorsteinsson opnar
myndlistarsýninguna Leikmyndir í
Populus Tremula á Akureyri í dag,
laugardaginn 19. janúar klukkan
14. Um leið kemur út bókin
Mónólógar eftir Þorvald.
Í kvöld verður svo kvöldskemmtun
á staðnum þar sem stórleikarar
lesa úr nýútkominni bók ásamt
höfundinum sjálfum. Sickbird
leikur sína eigin tónlist með stór-
sveit skipaðri Arnari Tryggvasyni,
Kristjáni Edelstein, Ingva Rafni
Ingvasyni, Pálma Gunnarssyni og
Togga skyttu. Aðgangur að kvöld-
skemmtuninni er ókeypis og húsið
verður opnað klukkan 21.30.
Sýning Þorvaldar verður einnig
Ný bók og sýning
Þorvaldar Þorsteinssonar
Þorvaldur Þorsteinsson
Sýnir í Populus Tremula.
opin á morgun, sunnudaginn 20.
janúar á milli klukkan 14 og 17, en
hún verður einungis opin þessa
einu helgi.
Listasafn Reykjavíkur efnir til
listasmiðju fyrir fjölskylduna í
Hafnarhúsinu á morgun, sunnu-
daginn 20. janúar klukkan 14.
Gestir á öllum aldri fá þar tæki-
færi til þess að glíma við tilraunir,
textasmíði, leik og leiðsögn, en
hugmyndir og viðfangsefni í
listasmiðjunni eru sótt í sýningu
Hreins Friðfinnssonar sem nú
stendur yfir í tveimur sölum
Hafnarhússins. Klukkan 15 verð-
ur svo boðið upp á leiðsögn um
sýningu Hreins með listamönn-
unum Ingólfi Arnarsyni og Birtu
Guðjónsdóttur. Þau eru fulltrúar
ólíkra kynslóða í myndlist og
miðar leiðsögn þeirra að því að
skoða verk Hreins út frá þeim
áhrifum sem hann hefur haft á
listsköpun þeirra sjálfra sem og
annarra samstarfsmanna. Á sýn-
ingu Hreins í Hafnarhúsinu eru
ljósmyndir, teikningar og þrívíð
verk sem spanna feril listamanns-
ins frá upphafi.
Listasmiðja og leiðsögn