24 stundir - 19.01.2008, Side 43

24 stundir - 19.01.2008, Side 43
okkur æfa stíft og það var meiri agi í kringum okkur en áður og við áttum honum mikið að þakka. Inn á milli var hann alveg hundleið- inlegur en við bárum alltaf virð- ingu fyrir karlinum, hann var það fær þjálfari. Hann S igurður Sveinsson hætti að leika handbolta 2002, 43 ára gamall, og starfar nú hjá Tryggingamiðstöðinni. Hann var í langan tíma stórstjarna í íslenskum handknatt- leik og atvinnumaður í Þýskalandi og Spáni í tíu ár við góðan orðstír. Hann fylgist af miklum áhuga með Evrópumótinu í handknattleik sem nú stendur yfir í Noregi en Íslend- ingar töpuðu sínum fyrsta leik með fimm marka mun. „Leikurinn við Svía einkenndist af taugaspennu. Úrslitin eru mikil vonbrigði bæði fyrir aðdáendur liðsins og strákana. Þeir náðu sóknarleiknum ekki í gang og voru ráðlausir. En það verður að horfa fram á veginn. Það þýðir ekkert að væla. Staðan er langt frá því að vera vonlaus. Við erum þekktir fyrir að fara erfiðu leiðina fremur en þá auðveldu. Þannig hefur þetta verið í gegnum árin og ætlar ekkert að breytast,“ segir Sigurður. „Það að Ólafur Stefánsson er meiddur og verður ekki með í næstu leikjum þýðir að nú er komið að skulda- dögum hjá drengjunum sem hann hefur leitt í gegnum árin. Þeir verða að sýna og sanna að þeir geti þetta án hans og þeir verða bara að gera það og ég held að þeir geri það. Ég held að það þjappi hópn- um meira saman að kapteinninn verður ekki með í þeim tveimur leikjum sem eftir eru í riðlinum og strákarnir vita að þeir verða helst að vinna báða leikina til að eiga möguleika. Nú verða þeir að sýna hvort þeir eru menn eða mýs.“ En er þetta nokkuð skemmtileg keppni lengur ef við töpum okkar leikjum? „Það skiptir eiginlega ekki máli hvort við stöndum okkur mjög vel, vel eða bara þokkalega, handbolt- inn sameinar þjóðina og það er gríðarlega gaman þessa tíu daga sem keppnin stendur. Þá tæmast göturnar. Því miður fyrir hinar íþróttagreinarnar þá er handbolt- inn okkar íþrótt og hefur verið gegnum árin og þar höfum við náð árangri alveg frá 1964. Þeir Íslend- ingar sem aðhyllast aðrar íþrótta- greinar en handbolta verða bara að bíta í það súra epli að við erum góðir í þessari íþrótt og það liggur í harðfisksgeninu. Það er alltaf verið að tala um að handbolti sé ekki nógu vinsæl íþrótt í heiminum, komi á eftir rottuhlaupinu í vin- sældum í Kína, en það er ekki mál- ið. Við erum fámenn þjóð sem hef- ur náð langt í handbolta og sú þjóð sem á flesta atvinnumenn í þýska boltanum, fyrir utan Þjóðverjana sjálfa.“ Var keyrður um á kassabíl Þú ert ein þekktasta handbolta- hetja sem þjóðin hefur átt en mér er sagt að þú hafir barist við veikindi sem barn og varla getað gengið. „Ég fékk pertes tveggja eða þriggja ára gamall. Þetta er þekktur barnasjúkdómur þar sem mjaðma- kúlan harðnar ekki. Afleiðingarnar eru mismunandi. Sumir þurfa að fara beint í mjaðmaskiptingu, hjá öðrum styttist löppin og sumir eru á hækjum, þetta er allavega. Sem krakki var ég keyrður mikið um á kassabíl sem systkini og hinir og þessir drógu. Þetta þjakaði mig ekkert í æsku, alls ekki. Mér leið ekkert illa út af sjúkdómnum og það hvarflaði ekki að mér að hann yrði varanlegur. Ég mátti lítið ganga en stalst mikið til þess og þegar ég kom í skóla hafði þetta lagast nokkuð en ég haltraði og haltra enn í dag og hef sérkenni- legan hlaupstíl. Ég fór um tíma á Reykjalund og synti þar eins og skepna þótt ég mætti ekki stíga of mikið í fæturna. Það hjálpaði mér mikið. Ég var það heppinn að mjaðmakúlan harðnaði þegar ég var tólf ára. Ég er með hana nokk- uð skemmda en hún hefur staðið sig með prýði hingað til. Rúmlega tólf ára fór ég að leggja stund á allar íþróttir sem hugsast gat, hand- bolta, fótbolta, körfubolta. Hand- boltinn komst svo í forgang þegar uppgötvaðist að ég gat hent bolta nokkuð fast“. Mér er sagt að þú hafir ekki getað spilað vörn. Er það rétt? „Ég var misskilinn varnarmað- ur! Ég taldi mig alltaf góðan varn- armann en öðrum þótti ég ekki sérlega öflugur í vörn. Svo er auð- vitað miklu skemmtilegra að skora mörkin en að berja á mönnum. Ég var mjög tapsár leikmaður. Í mínum huga var númer eitt, tvö og þrjú að vinna. Það viðhorf á ekki bara við um landsliðið heldur alla þjóðina. Ef landsliðið tapar leik þá eru leikmennirnir skúrkar en þegar landsliðið vinnur þá eru leikmenn- irnir „strákarnir okkar“. Þetta hef- ur verið svona í gegnum árin og verður alltaf. Það er ekkert við því að segja. Sú gagnrýni sem íslenskir leikmenn fá í fjölmiðlum er ljúf miðað við það hvernig útreið leik- menn fá erlendis þegar illa geng- ur.“ Harðstjórinn Bogdan Er það rétt að þú hafi reykt á þeim árum sem þú lékst með íslenska landsliðinu? „Á sínum tíma vorum við nokk- uð margir sem reyktum í landslið- inu. Það er til mynd af okkur þar sem við auglýsum slagorðið Reyk- laust Ísland árið 2000. Við erum sextán á myndinni og þar af voru átta reykingamenn. Háskóli Íslands tók okkur einstaka sinnum í út- haldspróf og það virtist engu skipta fyrir niðurstöðuna hverjir reyktu og hverjir ekki. Ég reyki ennþá og skammast mín fyrir það. Ég hef hætt að reykja hundrað tuttugu og einu sinni. Eftir hvert mót höfðum við landsliðsmennirnir gaman af að fagna góðum sigrum og komum líka saman eftir tap. Svo mætti vin- ur okkar Bogdan Kowalcyk, eða Bóbó Konráðs, á svæðið og tók við þjálfun landsliðsins. Við vorum villtir áður en hann mætti á sviðið, sem betur fer, því það er ekkert gaman að vera alltaf prúður og stilltur. Bogdan var mjög góður þjálfari og breytti miklu fyrir ís- lenskan handknattleik. Hann lét a Ég held að það þjappi hópnum meira saman að kapteinninn verður ekki með í þeim tveimur leikj- um sem eftir eru í riðl- inum og strákarnir vita að þeir verða helst að vinna báða leikina til að eiga möguleika. Nú verða þeir að sýna hvort þeir eru menn eða mýs. HELGARVIÐTALIÐ Eftir Kolbrúnu Bergþórsdóttur kolbrun@24stundir.is »x 24stundir LAUGARDAGUR 19. JANÚAR 2008 43 Bryggjuborð úr Azoba tré. Dönsk hönnun, dönsk gæði, dönsk vara, lífstíðar ending. Þetta eru framtíðarútihúsgögn. Arctic Spas Faxafeni 9 (ATH: aðkoma í kjallara bakhús) Sími 554 7755 www.arcticspas.is & www.heitirpottar.is LÖNG HELGI: Opið í dag Laugardag 10.00-18.00 Opið morgun, sunnudag 12.00-18.00 núna 33 potta á gólfi 27 potta á gólfi Pókerborð og Pókerstólar, Billiardborð

x

24 stundir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: 24 stundir
https://timarit.is/publication/307

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.