24 stundir - 19.01.2008, Page 44

24 stundir - 19.01.2008, Page 44
44 LAUGARDAGUR 19. JANÚAR 2008 24stundir ÚTSALA ÚTSALA ÚTSALA ÚTSALA Reykjavík: Mörkin 4, sími: 533 3500 I Akureyri: Hofsbót 4, sími: 462 3504 Afgreiðslutími virka daga: 10-18 og laugard. 11-15 ÚTSALA Ú TSALA ÚT SALA ÚTS ALA 10-70% AFSLÁ TTUR Fataefni Gardínuefni Bútasaumsefni Gjafavara ÚTSAL A ÚTS ALA Ú TSALA ÚTSA LA var harðstjóri, lét okkur sjaldan æfa of lítið, yfirleitt alltaf of mikið og hafði strangan aga. Þegar við kepptum erlendis þurftum við allt- af að fara að sofa klukkan ellefu. Þetta var ekkert sældarlíf, get ég sagt þér. Samt held ég að þetta hafi hjálpað mörgum okkar þegar fram liðu stundir.“ Er það ekki rétt að samskipti þín og Bodgan hafi verið stormasöm? „Honum fannst ég ekki spila góða vörn og það er auðveldara að vera með leikmann sem er bæði frábær varnarmaður og sóknar- maður, eins og Kristján Arason var. Hann notaði Kristján meira en mig. Ég var stundum hundsvekkt- ur að fá ekki að spila meira. Það kom fyrir að okkur Bogdan lenti saman en það var alltaf stutt í sætt- ir. En við urðum aldrei perluvinir.“ Fannst þér þú standa í skugga Kristjáns Arasonar í landsliðinu? „Nei, það fannst mér aldrei. Stundum hugsaði ég með mér þar sem ég sat á bekknum og horfði á Kristján spila með landsliðinu: Vonandi klikkar hann núna svo ég fái tækifæri. Ég vildi fá að spila og þegar ég var kominn inn á völlinn hugsaði ég ekki um annað en að þruma á markið.“ Var enginn rígur milli ykkar Kristjáns eins og er oft á milli tveggja stjarna? „Jú, það var rígur á milli okkar og við vorum alltaf í samkeppni en það var alltaf í góðu. Við lærðum mikið hvor af öðrum, nema hann gleymdi að kenna mér varnarleik- inn.“ Stemning og svekkelsi Geturðu sagt hver er eftirminni- legasti leikur sem þú hefur leikið? „Þegar kemur að stemningu er það örugglega úrslitaleikurinn í Frakklandi 1989 þegar við unnum B-mót heimsmeistarakeppninnar. Þar small allt saman og um leið og fór að ganga vel kom hver vélin af annarri frá Íslandi full af stuðn- ingsmönnum. Það var gríðarleg stemning. Þetta var með skemmti- legri mótum sem ég hef tekið þátt í. Sigurgleðin var yfirþyrmandi enda var þetta í fyrsta skipti sem íslenska handknattleiksliðið vann stórmót og tími til kominn. Við höfum ver- ið nálægt því að endurtaka þetta á undanförnum árum og bíðum bara eftir því að það takist einn daginn. Og þá verður allt vitlaust!“ Hver var erfiðasti leikurinn? „Það erfiðasta sem við strákarnir gengum í gegnum var heimsmeist- aramótið 1995. Það var haldið hér á landi sem lýsti mikilli bjartsýni, og reyndar er ótrúlegt að við skyld- um fá að halda það. Væntingarnar voru miklar, það var mikið æft og svo gátum við ekkert. Það var sorg- legt hvað við vorum lélegir, svekkj- andi fyrir þjóðina og okkur sjálfa. Eftir mótið fór maður bara upp í bústað og var þar í viku. Ég veit ekki af hverju við vorum svona lé- legir, kannski þoldum við ekki pressuna eða héldum kannski að árangurinn kæmi af sjálfu sér.“ Þú varst atvinnumaður erlendis í tíu ár. Hvernig var sá tími? „Ég fór árið 1982 til Þýskalands og spilaði þar í átta ár. Þjóðverjum líkar mjög vel við Íslendinga og líta upp til þeirra. Það tekur tíma að ná til Þjóðverja en um leið og maður fer að þekkja þá eru þeir mikið ágætisfólk þótt margir haldi því fram að þeir séu stífir og leiðinlegir. Ég bjó í Madrid frá 1990-1991 og hún er ein skemmtilegasta borg Evrópu. Það var frábært að vera þar og ég hefði viljað vera þar leng- ur. Í dag eru atvinnumenn erlendis með topplaun en í gamla daga fékk maður einhverjar krónur fyrir þetta, þúsundkalla yfir borðið og þúsundkalla undir borðið. Ég hefði ekkert á móti því að vera að byrja handboltaferil í dag, þegar tekið er mið af launum.“ Handboltinn tók mikinn tíma í þínu lífi. Var hann alltaf leikur? „Handboltinn er alltaf leikur. Aðalatriðið er að hafa gaman af því að taka þátt í leiknum. Svo er hitt hvort hann fer á þann veg sem maður vill og það er alltaf skemmtilegra þegar allt gengur upp. Að spila handbolta er það skemmtilegasta sem ég hef gert um ævina. Ég hef verið mjög heppinn, gat spilað mjög lengi, lék í mörgum liðum og kynntist alls kyns fólki og ólíkri menningu. Ég er fullkomlega sáttur við ferilinn. Í dag tengist ég handboltanum á annan hátt, sem eldheitur stuðningsmaður íslenska landsliðsins og verð það örugglega um aldur og ævi.“ Sóknarmaðurinn „Ég var mjög tapsár leikmaður. Í mín- um huga var númer eitt, tvö og þrjú að vinna. “ a Á sínum tíma vorum við nokk- uð margir sem reyktum í landsliðinu. Það er til mynd af okkur þar sem við auglýsum slagorðið Reyklaust Ís- land árið 2000. Við erum sextán á myndinni og þar af voru átta reykinga- menn. Frækinn landsliðshópur Sigurður er númer 13, Kristján Arason númer 10, Alfreð Gíslason númer 7 og hörkutólið Bogdan þjálfari í hvítri treyju númer 15. a Stundum hugs- aði ég með mér þar sem ég sat á bekknum og horfði á Kristján spila með lands- liðinu: Vonandi klikkar hann núna svo ég fái tækifæri. Árvakur/Golli

x

24 stundir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: 24 stundir
https://timarit.is/publication/307

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.