24 stundir - 19.01.2008, Side 50

24 stundir - 19.01.2008, Side 50
LIGGUR Á HJARTA Anna Pála Sverrisdóttir formaður Ungra jafnaðarmanna fædd 19.09.1983 Sendið fyrirspurnir á netfangið: femin@femin.is – Merkt: Fyrirspurn til ráðgjafa vegna 24 stunda Ekkert rugl! Ungir jafnaðarmenn hafna virkjunum í neðri- hluta Þjórsár YFIRLÝSINGIN Árvakur/Frikki Ég er tvítug stelpa sem er búin að vera að berjast við búlimíu í næstum 2 ár! Ég var ekki ánægð með mig og ég veit hreinlega ekki af hverju ég byrj- aði á þessu. Ég er búin að vera virkilega slæm upp á síðkastið. Ég kasta upp eftir máltíðir 3-5 sinnum á dag og hreyfi mig endalaust en ég er búin að missa 15 kg á 7 vikum en ég er samt ennþá feit. Ég veit að ég er að gera rangt með því að halda þessum uppköstum áfram en ég get bara ekki hætt. Mig vantar virkilega hjálp en ég veit hreinlega ekki hvort ég hef það í mér að fara til læknis og tala um þetta! Og eitt sem ég vil vita: hefur búlimía áhrif á einbeitingu? Mér gekk mjög vel í skóla, en núna hef ég enga einbeitingu í að læra. Ég bara get hreinlega ekki einbeitt mér og gengur mjög illa í prófum og ég mæti líka illa því ég get ekki vaknað á morgnana!! Kveðja, ein í vanda! Sæl og takk fyrir opið og hrein- skilið bréf um það ástand sem þú ert að upplifa. Það sem ég mæli með er að þú sækir þér hjálp strax. Ekki bíða með það, þessi sjúkdómur getur aðeins þróast til verri vegar og í fæstum tilfellum læknast hann af sjálfu sér. Þú getur komið í greining- arviðtal á MFM-miðstöðina (meðferðar og fræðslumiðstöð vegna matarfíknar og átrask- ana), þar sem þú færð grein- ingu á ástandi þínu og fræðslu um sjúkdóminn og hvaða leiðir eru til bata. Hjá MFM-miðstöð- inni erum við með einstaklings- miðað meðferðarprógramm og stuðning. Einnig bendum við á aðrar leiðir til sjálfshjálpar Góðu fréttirnar eru að það eru til lausnir. Þú þarft ekki að þjást svona. Slæmu fréttirnar eru að ef þú gerir ekkert í málinu, þá á þetta ástand eftir að versna. Varðandi einbeitingarskortinn, þá er hann svo sannarlega ein af af leiðingum átröskunar. Aðrir sem veita stuðning og fræðslu varðandi átraskanir eru: Spegillinn, Forma sam- tökin og ABA samtökin sem eru 12 spora batasamtök. Gangi þér vel mín kæra og mundu að þú ert ekki ein, það er til fólk sem skilur þá þjáningu sem þú ert að ganga í gegnum og getur stutt þig. Þitt er að sækja hjálpina. Bestu kveðjur, Esther Helga – Ráðgjafi hjá femin.is. Kastar upp eftir máltíðir Ég fæ aldrei fullnægingu þegar ég stunda samfarir. Aldrei. Mér hefur ekki þótt það nauðsynlegt hingað til. Mér finnst kynlíf alveg hrika- lega gott og er nóg fyrir mig aðeins að stunda það, helst á hverjum degi eða oftar, heldur en að vera að pressa á einhverja fullnægingu. Ég er mjög dugleg að koma við sjálfa mig út af þessu sem jafnar þetta kannski út, en fullnæging með makanum yrði bara toppurinn á tilverunni. Er eitthvað sem ég get gert? Ég er búin að lesa greinar hérna um tegundir fullnæginga og hef reynt f lest af þessu en það gerist voðalega lítið. Þarf ég í alvörunni að fara að sætta mig við það að vera ein af þeim konum sem geta ekki fengið fullnægingu með sam- förum? – Það væri martröð. Hæ og takk fyrir að leita til femin.is. Heyrðu þú ert bara rosalega heppin: Þú getur fengið fullnægingu, það er svo miklu meira en aðrar konur. Þetta er nefnilega ekki eins og í bíómyndunum þar sem karlmaðurinn stingur limnum inn og svo koma þau saman örskömmu síðar. Flestar konur upplifa aðeins snípsfullnægingu, ef þær fá það á annað borð, og það þýðir að þær þurfa örvun á snípinn með fingrunum eða hjálpartæki og í sumum tilfellum er hægt að ná því með stellingum þannig að limurinn örvi snípinn. Auðveldast þegar konan er ofan á og liggur þétt upp við manninn og hún mjakar sér þannig að hún nær örvun á snípinn. Einnig það sama þegar hann liggur ofan á þétt upp við konuna og hún mjakar sér þannig að hún nái örvun. Sumar konur fá g-bletts- fullnægingu og þú getur lesið um slíkt hér á femin.is en það er erfiðara. Passaðu samt að einblína ekki of mikið á þetta, slakaðu á og njóttu þín svo að fullnægingin komi áreynslulaust. Gangi þér vel, Soffía – Ráðgjafi hjá femin.is Fullnæging orðin vandamál 50 LAUGARDAGUR 19. JANÚAR 2008 24stundir Útfararþjónustan ehf. Stofnað 1990 Símar: 567 9110 & 893 8638 www.utfarir.is • runar@utfarir.is Alhliða útfararþjónusta Rúnar Geirmundsson Sigurður Rúnarsson Elís Rúnarsson Þorbergur Þórðarson Hjá okkur fáið þið mikið úrval af barnabílstólum Skeifunni 8 - s. 568 2200 - Smáralind - s. 534 2200 www.babysam.is Serblad 24 stunda Heilsa 29.januar 2008

x

24 stundir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: 24 stundir
https://timarit.is/publication/307

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.