24 stundir - 19.01.2008, Page 65
Hinir árlegu styrktartónleikar krabbameins-
sjúkra barna, sem fara áttu fram milli jóla og
nýárs, en var frestað vegna veðurs, verða haldnir
næstkomandi sunnudagskvöld, þann 20. janúar,
í Háskólabíói. Að tónleikunum standa Bylgjan,
Stöð 2, EB hljóðkerfi og Concert. Er þetta ní-
unda árið í röð sem tónleikarnir eru haldnir og
hafa í gegnum tíðina safnast yfir 22 milljónir
króna. Ávallt eru það vinsælustu tónlistarmenn
þjóðarinnar sem fram koma á tónleikunum og
á því verður lítil breyting í ár, en þó einhver,
segir Einar Bárðarson hjá Concert. „Sökum
þessara skipulagsbreytinga urðu þrjár hljóm-
sveitir frá að hverfa: Mínus, Sprengjuhöllinn og
Dísella, en það kemur alltaf maður í manns stað
og fengum við Pál Óskar, Jógvan og Snigla-
bandið til þess að fylla í skarðið.“ Einar segir
einnig að nánast sé uppselt á tónleikana, sem
hefjast klukkan 16.00. „Ég reikna fastlega með
því. Það þurftu einhverjir sem búsettir voru er-
lendis að skila inn miðum sínum, en við vorum
með langan biðlista og því fóru þeir fljótt út aft-
ur.“ Við eftirgrennslan 24 stunda í gær kom í
ljós að nákvæmlega einn miði var laus á midi.is
og fer því hver að verða síðastur. Að sögn Einars
verður ágóðinn, 2,4 milljónir króna, afhentur
Styrktarfélagi krabbameinssjúkra barna á tón-
leikunum, venju samkvæmt. „ Það er alltaf jafn
ánægjulegt að gefa í jafn þarft og gott málefni,“
sagði Einar. Meðal þeirra sem fram koma eru
Luxor, Páll Óskar, Nylon, Bubbi Morthens,
Magni & Á móti sól, Sniglabandið, Guðrún
Gunnars og Friðrik Ómar, Garðar Thór Cortes,
Land & synir, Jógvan, Klaufarnir, Stebbi og Eyfi,
SSSÓL, Birgitta Haukdal, HARA og Ragnheiður
Gröndal.
Styrktartónleikar krabbameinssjúkra barna hafa fengið nýja dagsetningu
Stórtónleikar í Háskólabíói á sunnudag
Árvakur/Kristinn Ingvarsson
Umboðsmaður Íslands Einar Bárðarson er skipuleggj-
andi tónleikanna.
24stundir LAUGARDAGUR 19. JANÚAR 2008 65
Borgin er full af Vildarpunktum
safnaðu þeim með því að setja fasteignagjöldin á VISA
VISA-kreditkorthöfum stendur til boða að setja fasteignagjöldin í Boðgreiðslur,
þ.e.a.s. að greiða þau með reglulegum færslum af VISA-kortinu.
Þeir sem nýta sér þennan þægilega kost fá ekki lengur sendan reikning fyrir
fasteignagjöldunum en þess í stað gildir færslan á VISA-yfirlitinu sem staðfesting
á greiðslu.
Allir korthafar sem eru með fasteignagjöldin á Boðgreiðslusamningi og greiða með
Vildarkorti VISA og Icelandair eiga möguleika á að vinna 100.000 Vildarpunkta*
* 5 heppnir korthafar sem greiða fasteignagjöldin með Vildarkorti VISA og Icelandair verða dregnir út þann
29. febrúar 2008 og haft verður samband við þá heppnu. Þeir sem þegar greiða fasteignagjöldin með
VISA Boðgreiðslum þurfa ekki að skrá sig aftur og eru í pottinum.
Þeir korthafar sem hafa áhuga á að greiða fasteignagjöld sín
hjá Reykjavíkurborg með VISA Boðgreiðslum geta skráð sig í Rafrænni
Reykjavík á vef Reykjavíkurborgar, www.reykjavik.is, hringt í síma 4 11 11 11
og einnig er hægt að skrá fasteignagjöldin á www.valitor.is/visabod
Leikkonan Sienna Miller vann á
dögunum mál fyrir rétti gegn
ljósmyndara sem hafði tekið
nektarmyndir af henni, gegn
hennar samþykki. Myndirnar
voru teknar á tökustað mynd-
arinnar Hippie Hippie Shake en
ljósmyndarinn notaði aðdrátt-
arlinsu til að fanga nekt leikkon-
unnar á filmu. Enn hefur ekki
verið ákveðið hversu háar bætur
leikkonan fær í sinn hlut en þær
verða líklega dágóðar. vij
Sienna Miller
fær skaðabætur
Dópdísin Amy Winehouse lét til
sín taka í vikunni þegar hún slóst
við ljósmyndara. Winehouse var
að rölta heim til sín eftir að hafa
heimsótt eiginmann sinn í fang-
elsi þegar ljósmyndarinn varð á
vegi hennar. Winehouse kærði sig
lítið um myndatökurnar, reifst
við ljósmyndarann og endaði á
því að kýla hann kaldan. vij
Winehouse lem-
ur ljósmyndara
Nú hefur American Idol hafið
göngu sína á ný og strax hefur
komið upp hneykslismál. Svo
virðist sem sumir af keppend-
unum séu ekki eins óreyndir og
aðrir og hafa til dæmis þrír kepp-
endur verið áður á plötusamningi
og einn þeirra hefur gefið út eina
plötu. Öll lög af þeirri plötu hafa
hins vegar verið fjarlægð af int-
ernetinu. vij
Sumir reynslu-
meiri en aðrir
Van Morrison gefur út nýja plötu,
Keep It Simple, þann 17. mars
næstkomandi. Þetta er hans
fyrsta plata með nýju efni síðan
2005, en í millitíðinni hafa komið
út þrjár safnplötur með eldri lög-
um hans. Sú nýjasta þeirra, Still
On Top, fór í 2. sæti breska vin-
sældalistans og seldist í plat-
ínumsölu, enda ekkert lát á vin-
sældum kappans. re
Ný plata frá
Van Morrison