24 stundir - 19.01.2008, Qupperneq 70
70 LAUGARDAGUR 19. JANÚAR 2008 24stundir
„Það er mikilvægt að allir haldi
ró sinni,“ sagði forsætisráðherra,
í umræðum um efnahagsmál á
Alþingi í dag. Gárungarnir telja
að þarna sé formaður Sjálfstæð-
isflokksins að tala um Krata-
rósina! Mikilvægt sé að halda
henni – hvað sem hver segir um
stjórnarsamstarfið.“
Arna Schram
arna.eyjan.is
„Næst þegar maður les vandaða
frétt eftir Óla Tynes um svallið
hjá Paris Hilton eða Jessicu
Simpson – þá er vert að spyrja sig
að því hvaða tilgangi
endalausar fregnir af drykkju-
skap og stóðlífi ungra kvenna
þjóni…“
Stefán Pálsson
kaninka.net/stefan
„Eigum við að kalla landsliðið
heim frá EM? Hrakfarir íslenska
landsliðins voru með endemum í
leiknum við Svía. Nú voru það
reynsluboltarnir í liðinu sem
gerðu hver afglöpin á fætur öðr-
um. Og nú er búið að gefa það út
að Ólafur Stefánsson verður ekki
með meira.“
Guðmundur Óli Scheving
blogg.visir.is/gudmunduroli
BLOGGARINN
Eftir Trausta Salvar Kristjánsson
traustis@24stundir.is
Margir þekkja til verka Rebekku
Guðleifsdóttur, sem slegið hefur í
gegn á myndavefnum flickr.com
fyrir afburðaljósmyndir sínar. Re-
bekka opnar í dag sína fyrstu ljós-
myndasýningu í kjallara Norræna
hússins klukkan 16 og stendur sýn-
ingin yfir til 10. febrúar.
Er meira en bara flickr-stelpan
„Þetta er mín fyrsta einkasýning,
sem er ekki í tengslum við neitt
annað verkefni. Þetta eru 24
myndir sem ég vann á árunum
2005-2007 og eru þetta annars veg-
ar sjálfsmyndir og hins vegar nátt-
úru- og landslagsmyndir,“ segir
Rebekka sem er hægt og bítandi að
slíta sig frá netinu. „Ég nýtti netið
til þess að koma mér á framfæri og
það tókst mjög vel, með 4-5 millj-
ónir heimsókna á síðuna mína. Þar
fékk ég uppbyggilega gagnrýni og
gat þróað minn stíl. En nú er þetta
orðið gott í bili, ljósmyndir eiga
miklu fremur heima í stærri um-
gjörð uppi á vegg en á takmörk-
uðum tölvuskjá. Einnig vil ég helst
ekki vera þekkt sem flickr-stelpan
það sem eftir er! Því er það ákveð-
inn sigur að halda þessa sýningu
og draumurinn er að gefa út bók,
sem yrði helst sett á erlendan
markað, enda hef ég náð að vekja
mesta athygli þar frekar en hér
heima!
Þjófnaður lán í óláni
Rebekka lenti í óprúttnum að-
ilum um mitt ár í fyrra, sem stálu
ljósmyndum hennar af netinu og
seldu fyrir góða summu, án þess að
hún fengi krónu fyrir. Þrátt fyrir
þreifingar af hennar hálfu tókst
henni ekki að hafa hendur í hári
þjófanna. „Nei, því miður, það
varð aldrei neitt úr því. En hins
vegar varð þetta atvik til þess að ég
kom á fót eigin netverslun og í
rauninni var þetta bara hvatning
fyrir mig til þess að selja mynd-
irnar mínar sjálf.“
Myndar meðfram náminu
„Ég hef verið í myndlistardeild
Listaháskólans auk þess að sinna
ljósmyndaáhuganum. Ég hef einn-
ig verið að teikna og gera hreyfi-
myndir, en vinn þó aðallega með
ljósmyndamiðilinn, sem er annað
og meira en bara að miða og
hleypa af. Flestar myndirnar á sýn-
ingunni eru til sölu að sögn Re-
bekku og aðgangur er ókeypis.
Rebekka Guðleifsdóttir hefur slegið í gegn á flickr.com
Heldur sína fyrstu
„alvöru“ sýningu
Rebekka Guðleifsdóttir
hefur heldur betur slegið
í gegn á ljósmynda-
síðunni flickr.com, með
milljónir aðdáenda og
heimsókna. Hún heldur
nú sína fyrstu sýningu.
Listaverk Ein af mynd-
unum á sýningunni.
Myndasmiðurinn Rebekka
undirbýr sýninguna.
HEYRST HEFUR …
Davíð Oddsson hélt stutta ræðu í afmæli sínu í
Ráðhúsinu og fór á kostum eins og hans var von og
vísa, en Davíð þykir með skemmtilegri mönnum.
Hann sagði: „Í desembermánuði sótti Þorsteinn,
sonur minn, um starf og af því tilefni tóku að birt-
ast myndir í fjölmiðlum, ein mynd af honum og sex
myndir af mér. Þegar sjöunda myndin birtist af mér
varð ég mjög hræddur um að fá starfið.“
„En svona er nú fjölmiðlunin á Íslandi, hún er á
þessu hræðilega plani, eins og við höfum horft upp
á í heilan mánuð,“ sagði Davíð og bætti við:
„Reyndar var Ástríður nokkuð pirruð á því að þessi
ágæti piltur væri alltaf sagður sonur minn en henn-
ar aldrei getið. Ég benti konu minni á að þetta væri
aðventan og þá væri mjög mikið talað um eingetna
menn.“
Hannes Hólmsteinn Gissurarson var vitanlega
meðal afmælisgesta og tók með sér kennara úr
stjórnmálafræðiskor Háskóla Íslands, þá Ólaf Þ.
Harðarson og Gunnar Helga Kristinsson. Hannes
mun hafa sagt þeim að þeir gætu ekki verið þekktir
fyrir annað en að mæta og heiðra merkan stjórn-
málamann og saman röltu þeir frá háskólanum
niður í Ráðhús og skemmtu sér konunglega. kb
„Hugmyndin er að drulla sér
héðan. Ég er laus og liðugur og það
er ekkert sem heldur mér hérna,“
segir hinn ástkæri útvarpsmaður
Andri Freyr Viðarsson.
Útvarpsferill Andra Freys er jafn
glæsilegur og hann er þyrnum
stráður. Útvarpsþáttur hans og
Búa Bendtsen hefur verið stjórn-
og bakborði þriggja útvarpsstöðva
sem hafa sokkið í ólgusjó fjöl-
miðlaheimsins – nú síðast Reykja-
vík FM. Andri þreifar því fyrir sér á
nýjum vettvangi og íhugar að
sækja um í kvikmyndaskóla í Dan-
mörku. „Það er hugmynd. Ég er
ekki búinn að sækja um, en er að
velta þessu fyrir mér.“
Til í Reykjavík síðdegis
Andri segist ekki hafa orðið var
við að aðrar útvarpstöðvar hafi
sóst eftir kröftum hans. Hann
hefði þó ekkert á móti því að ganga
til liðs við gullbarkana í þættinum
Reykjavík síðdegis á Bylgjunni.
„Það er náttúrulega draumurinn
því þar gera menn ekkert annað en
að segja: Við skulum opna fyrir sím-
ann. Það er mjög þægilegt, hlust-
endur sjá bara um þetta,“ segir
Andri og hlær. „Svo spyrja þeir
alltaf: Hvað er verið að ræða á kaffi-
stofum og í heitum pottum? Algjörir
snillingar.“
Rás 2 heillar einnig Andra og þá
sérstaklega tiltekinn útvarpsmaður
frá Akureyri. „Það er draumur að
fá að sitja á móti Gesti Einari,“ seg-
ir hann. „Ég held að þeir átti sig
ekki á því á Rás 2 hvað það yrði
gott mix. Hann fyrir norðan og ég
í bænum. Við félagarnir að ræða
hvað er í blöðunum og svona. Það
væri geggjað.“ atli@24stundir.is
Andri Freyr veltir fyrir sér framtíðinni
Íhugar kvikmynda-
nám í Danmörku
Flytur út Andri Freyr íhugar að sækja
um í kvikmyndaskóla.
Su Doku þrautin snýst um að raða tölunum frá 1-9 lárétt og
lóðrétt í reitina, þannig að hver tala komi ekki nema einu sinni
fyrir í hverri línu, hvort sem er lárétt eða lóðrétt. Sömu tölu má
aukin heldur aðeins nota einu sinni innan hvers níu reita fylkis.
Unnt er að leysa þrautina út frá þeim tölum, sem upp eru gefnar.
Su doku
2 4 6 9 5 8 3 7 1
5 7 9 1 2 3 8 6 4
3 1 8 4 6 7 9 5 2
6 3 5 2 7 9 1 4 8
7 8 1 6 3 4 2 9 5
4 9 2 5 8 1 6 3 7
1 2 4 3 9 5 7 8 6
8 5 3 7 1 6 4 2 9
9 6 7 8 4 2 5 1 3
Olga, ég þarf að fá þig til að leysa mig
af á hluthafafundinum á mánudaginn.
24FÓLK
folk@24stundir.is a
Ætli ég opni ekki bara gallerí
og geri þetta að list, er ekki
allt löglegt í nafni listarinnar?
Jón, ertu sjóræningi?
Jón Þórðarson, útgerðarmaður á Bíldudal, hefur fengið
stöðu grunaðs manns fyrir að stunda ólögmæta fisk-
vinnslu. Fólst sú fiskvinnsla í 42 kílóum af ýsu sem Jón
veiddi, flakaði, gaf og seldi til vina og kunningja.
OPIÐ HÚS VEGHÚSUM 31/903
Í dag, laugardag kl. 16 - 16:30
Stórglæsileg 92m² 3. herb. íbúð,
lækkað verð : kr. 21.900.000
Kristján sölufulltrúi, 896 3867