24 stundir - 07.02.2008, Blaðsíða 7
Kynntu þér dagskrána á www.vetrarhatid.is
Dagskráin í dag, 7. febrúar
19:30 Vetrarkarnival.
Brasilískir karnivalmenn ásamt fjölmörgum innlendum
listamönnum gæða Skólavörðustíginn og Þingholtin iðandi
ljósalífi við upphaf Vetrarhátíðar. Gangan endar við Reykjavíkurtjörn
þar sem fransk – japanski sirkusinn Oki Haiku Dan leikur listir sínar
við Ráðhús Reykjavíkur. Borgarstjóri setur hátíðina í
Tjarnarhólmanum að göngu lokinni. Sannkölluð vetrarkarnival
stemning markar upphaf hátíðarinnar í ár og tilvalið að mæta í
öskudagsbúningnum. Safnast verður saman á Skólavörðuholti
kl. 19:30 lagt af stað kl. 19:45. Listhópurinn Norðanbál hannar
gönguna. Skólavörðuholt.
19:00 Friðarsúla Yoko Ono á Vetrarhátíð.
Í tilefni af Vetrarhátíð verður kveikt á Friðarsúlu Yoko Ono og mun
loga á ljósinu yfir hátíðina á kvöldin frá kl. 19:00-01:00.
Viðey.
20:00 - 22:00 Kvöldkirkja í Dómkirkjunni.
Dómkórinn flytur þjóðlög, gömul ástarlög, madrígala og lög eftir
Brahms. Dómkirkjuprestarnir Hjálmar Jónsson og Þorvaldur
Víðisson flytja bæn og blessun. Dómkirkjan, Lækjargata 14a.
20:00 - 22:00 Gallerí Tukt.
Sigrún Guðmundsdóttir nemandi við myndlistardeild Listaháskóla
Íslands sýnir málverk.
Gallerí Tukt Hinu Húsinu, Pósthússtræti 3 – 5.
20:00 - 22:00 Hönnuður dagsins.
Guðný Hafsteinsdóttir, leirlistakona. Gunnar Þórðarson leikur fyrir
gesti. Kraum, Aðalstræti 10.
20:00 - 22:00 START ART.
Hrafnhildur Inga Sigurðardóttir sýnir landslagsmálverk sem vísa öll
til veðurfarsins á landinu í haust og vetur.
START ART, Laugavegi 12b.
20:00 - 24:00 Myndbandsverk í glugga á þriðju hæð.
Samtvinnuð verk videolistamannanna Sebastian Nollet og
Chooc Ly Tan. Gatnamót Bergstaðastrætis og Baldursgötu.
20:15 Ljóðaslamm 2008.
Ungt fólk á aldrinum 14 - 22 ára etur kappi í orðlist í fyrsta
ljóðaslammi Borgarbókasafnsins. Spennuljóðalestur, leiklestur,
ljóðlist og dans, rapp, einþáttungur í bundnu máli, ljóð og
hljóð o.fl. Borgarbókasafn, Tryggvagata 15.
21:00 Léttur vetrarjazz.
Fríkirkjan í Reykjavík v/Fríkirkjuveg.
21:00 Vín, grín og fíólín.
Fiðlutónlist frá 17. öld. Martin Frewer, Lilja Hjaltadóttir og Dean
Ferrell flytja. Þeim til liðsinnis eru dansarar úr Listdansskóla
Íslands undir leiðsögn Ingibjargar Björnsdóttur.
Iðnó, Vonarstræti 3.
21:00 - 23:00 “Auður” Miðborgar og Hlíða.
Regnbogakórinn, Retro Stefson, skemmtiatriði frá grunnskólum
í Miðborg og Hlíðum, línudans og margt fleira.
Ráðhús Reykjavíkur.
21:00 Uppihvað? og Hundur í óskilum.
Eðalhúmor, gæðaleikur og algjör snilld! Á einni kvöldstund gefst
gestum kostur á að njóta hárbeitts húmors Hjólastólasveitarinnar
og Hundur í óskilum mun fara á kostum með söng og gríni.
Listasafn Reykjavíkur – Hafnarhús, Tryggvagötu 17.
21:00 Samverustund á Smíðaverkstæðinu.
Opin dagskrá tengd sýningum á leikritinu Vígaguðinn eftir
Yasminu Reza. Létt spjall og ljúf stemmning, leiklestur og fleira
skemmtilegt.
Smíðaverkstæði Þjóðleikhússins, v/Lindargötu.
21:00 Fimmtudagsforleikur.
Hitt Húsið rokkar af krafti við upphaf Vetrarhátíðar á
Fimmtudagsforleik. Hitt Húsið, Pósthússtræti 3-5.
21:00 Heitt og Kalt.
Opnun á ferðatöskusýningu í Fógetastofum. 17 ferðatöskur með
17 bútasaumsverkum frá 17 löndum ferðast nú um alla Evrópu
og nú er ein taskan stödd á Íslandi.
Fógetastofur, Aðalstræti 10.
21:00 Himneskir herskarar.
Páll S. Garðarsson rekur handverkstæðið Himneskir herskarar þar
sem tálgað er í tré, unnið með pappír, vír og ýmis önnur efni.
Handverk og hönnun, Aðalstræti 10.
21:15 Dansveisla Kramhússins.
Kramhúsið býður upp á fjölbreytta og alþjóðlega danssýningu
auk þess sem fram koma sirkuslistamenn. Dansveislunni lýkur
með hinni frábæru hljómsveit The Reel Thing.
Nasa við Austurvöll.
Ljós og litadýrð.
Börnin í frístundaheimilum Kamps bjóða til listasýningar sem
unnin er útfrá þemanu ljós og hreyfing.
Ingólfsnaust, Aðalstræti 2.
Mynstur -Myndlistarsýning.
Eyjólfur P. Kolbeins hefur unnið að myndlist síðastliðin 20 ár og
stundar nú nám á vegum Fjölmenntar við Myndlistaskólann í
Reykjavík. Eyjólfur kallar myndir sínar litmyndir og vinnur útfrá
innblæstri hverju sinni. Sýningin er sett upp í samstarfi við
listahátíðina List án landamæra. Ingólfsnaust, Aðalstræti 2.
Norðurlandamótið í listhlaupi á skautum fer fram í Egilshöll
7.-10 febrúar 2008. Einstakt tækifæri til þess að sjá listhlaupara
á skautum á heimsmælikvarða. Nánari upplýsingar um mótið:
www.skautasamband.is. Egilshöll, Fossaleyni 1.
Aðganseyrir 700 kr. fyrir fullorðna og 300 kr. fyrir börn.