24 stundir - 07.02.2008, Blaðsíða 26

24 stundir - 07.02.2008, Blaðsíða 26
26 FIMMTUDAGUR 7. FEBRÚAR 2008 24stundir Á þessum degi árið 1898 var franski rithöfundurinn Emile Zola dreginn fyrir dóm vegna greinar sem hann skrifaði í franska dag- blaðið, L’Aurore undir fyrirsögn- inni J’Accuse (Ég ákæri). Fjórum árum áður hafði Alfred Dreyfus, höfuðsmaður í franska hernum, verið sakaður um njósnir og dæmdur til fangelsisvistar. Tveimur árum seinna komu fram sannanir um sakleysi Dreyfusar en yfirmenn í hernum leyndu þeim. Í grein sinni opinberaði Zola málið. Zola var á þessum tíma einn þekktasti rithöfundur Frakklands. Grein hans olli miklu uppnámi og honum var stefnt fyrir rétt vegna meiðyrða. Hann var fundinn sekur og dæmdur í eins árs fangelsi en flúði Frakkland. Árið 1899 var Dreyfusi veitt sakaruppgjöf. Skömmu síðar sneri Zola aftur til Frakklands þar sem hann lést árið 1901. MENNINGARMOLINN Zola dreginn fyrir dóm Óperan La traviata verður frum- sýnd í Íslensku óperunni næst- komandi föstudagskvöld í leik- stjórn James Hayes. Það er Sigrún Pálmadóttir sem fer með hlutverk hinnar ógæfusömu Víólettu. Sigrún hefur verið fastráðin við Óperuhúsið í Bonn frá haustinu 2001 og söng þar hlutverk Víólettu í fyrra. Miklar tilfinningar „Ég kann ákaflega vel við mig í Bonn sem er hálfgerð sveitaborg og því þægilegt að komast ferða sinna þar. Það er gott fyrir íslenska hjart- að,“ segir Sigrún. Hún segir mjög gaman að fá að syngja hlutverk Víólettu hér á landi. „La traviata er yndisleg ópera, einstaklega vel samin og það eru miklar tilfinn- ingar í tónlistinni. Þar af leiðandi held ég að óperan höfði til all- flestra. Þetta er ástarsaga en líka mikið drama. Í upphafi óperunnar er Víóletta fylgdarkona og svo verður hún ástfangin sem er nokk- uð sem hún hélt að hún gæti ekki orðið. Hún þarf svo að yfirgefa eina manninn sem hún hefur elskað í lífinu og er þá orðin veik og deyr í lokin.“ Kafað í persónuleikann Hlutverk Víólettu byggist ekki einungis á söng heldur einnig leik- rænni túlkun. „Mér finnst mjög gaman að fá að spreyta mig á því að vera einhver önnur persóna en ég er,“ segir Sigrún. „Það er mjög krefjandi og gefandi og um leið mjög gaman að sjá hversu langt maður kemst með sjálfan sig og hversu langt taugarnar ná því mað- ur þarf auðvitað að lifa sig inn í sál- arlíf persónunnar. Það er ekki nóg að syngja bara textann heldur þarf að kafa í persónuleikann og tím- ann sem verkið gerist á.“ Í umgjörð sýningarinnar er horft til fyrri hluta síðustu aldar og Sig- rún segir það passa vel við verkið. „Mér finnst þetta koma vel út en ég myndi hafa efasemdir um að rétt væri að færa verkið yfir til nú- tímans þar sem persónur væru í gallabuxum.“ Víóletta og Lucia Spurð um uppáhaldshlutverk segir Sigrún: „Ég verð alltaf mjög ástfangin af því sem ég er að gera hverju sinni en núna eru í mestu uppáhaldi hjá mér Víóletta í La traviata og Lucia í Lucia di Lam- memoor. Hlutverk Luciu söng ég þetta leikár og síðasta í Bonn. Þetta eru dramatísk hlutverk. Víóletta verður veik og deyr en Lucia verður geðveik áður en hún deyr. Ég hélt lengi vel að ég væri ekki tilbúin að taka að mér þessi hlutverk. Ekki vegna þess að ég gæti ekki sungið hlutverkin heldur vegna þess að ég taldi að ég gæti ekki túlkað þessar konur. Ég hefði til dæmis ekki vilj- að syngja hlutverk Luciu fyrir þremur árum því ég hefði ekki valdið því. Þegar ég söng svo hlut- verkið hjálpaði það mér mikið að hafa áður sungið hlutverk Víólettu. Og nú er aftur komið að því að syngja hlutverk Víólettu og ég- hlakka mikið til.“ Eftir sýningar hér heima snýr Sig- rún aftur til Bonn og þar bíða henn- ar meðal annars hlutverk Súsönnu í Brúðkaupi Fígarós, Musettu í La Boheme og Margarethe í Fást. Íslenska óperan frumsýnir La traviata Miklar tilfinningar „La traviata er yndisleg ópera, einstaklega vel samin og það eru miklar tilfinningar í tónlistinni. Þar af leiðandi held ég að óperan höfði til all- flestra,“ segir Sigrún Pálmadóttir sem fer með hluverk Víólettu í La trav- iata sem Íslenska óperan frumsýnir á föstudag. Sigrún Pálmadóttir „Mér finnst mjög gaman að fá að spreyta mig á því að vera einhver önnur persóna en ég er.“ ➤ Uppselt er á þær tíu sýningará La traviata sem upphaflega voru ráðgerðar. ➤ Bætt hefur verið við tveimuraukasýningum, föstudaginn 29. febrúar og miðvikudag- inn 5. mars. ➤ Auk Sigrúnar syngja meðalannars í sýningunni Jóhann Friðgeir Valdimarsson og Tómas Tómasson. Hulda Björk Garðarsdóttir fer með hlutverk Víólettu, í stað Sig- rúnar, í tveimur sýningum. UPPFÆRSLAN Ást og dramatík Sigrún í hlutverki Vílólettu. Árvakur/Golli Bryndís Halla Gylfadóttir, sellóleikari og Anna Guðný Guðmundsdóttir píanóleikari halda tónleika í Tíbrá í Saln- um næstkomandi sunnudags- kvöld, 10. febrúar, og hefjast þeir kl. 20. Á tónleikunum frumflytja þær nýja sónötu fyrir selló og pí- anó eftir Atla Heimi Sveins- son, en auk þess leika þær verkin Myndir á þili eftir Jón Nordal, Eter eftir Hauk Tóm- asson og Sorgarfleyið, milli- spil úr óperunni Tunglskins- eyjan, einnig eftir Atla Heimi. Alíslensk stofutónlist AFMÆLI Í DAG Sinclair Lewis rithöfundur, 1885 Charles Dickens rithöfundur, 1812 KOLLAOGKÚLTÚRINN kolbrun@24stundir.is a Þótt ég vissi að heimurinn færist á morgun myndi ég samt planta tré í dag. Martin Luther 10. Eldveggur - kilja Henning Mankell 9. Bara stelpa Lise Norgaard 8. Flugdrekahlauparinn - kilja Khaled Hosseini 7. Minnisbók Sigurður Pálsson 6. Óraplágan Slavoj Zizek 5. Karítas án titils Kristín Marja Baldursdóttir 4. Fullnæging Katerina Janouch 3. Yacoubian byggingin Alaa Al Aswany 2. Friðþæging - kilja Ian McEwan 1. Harðskafi Arnaldur Indriðason Listinn er gerður úr frá sölu í Eymundsson og Bókabúð Máls og menningar 30.01 - 05.02 2008. METSÖLULISTI Bækur á íslensku 10. Queen Babble in the Big City Meg Cabot 9. Wives of the East Wind Liu Hong 8. Atnonement Ian McEwan 7. Brother Odd Dean Koontz 6. Alibi Man Tami Hoag 5. Blood Brothers Nora Roberts 4. On Checil Beach Ian McEwan 3. Not Dead Enough Peter James 2. Overlook Michael Connelly 1. Success Principles Jack Canfield Listinn er gerður út frá sölu dagana 29.01.2008 - 04.02.2008 í Pennanum Eymundsson og Bókabúð Máls og menningar METSÖLULISTI Erlendar bækur

x

24 stundir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: 24 stundir
https://timarit.is/publication/307

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.