24 stundir - 07.02.2008, Blaðsíða 12

24 stundir - 07.02.2008, Blaðsíða 12
12 FIMMTUDAGUR 7. FEBRÚAR 2008 24stundir Simba Makoni tilkynnti á þriðju- dag að hann hygðist bjóða sig fram til forseta og var í gær rekinn úr stjórn- arflokknum vegna þess. Kveða reglur flokksins á um að óheimilt sé að fara fram gegn Robert Mugabe. „Hann rak sig sjálfur úr flokknum, hann var ekki rekinn af neinum öðrum en sjálfum sér,“ segir talsmaður flokksins. Saka andstæðingar Ma- konis hann um að vera svikari og strengjabrúða Bandaríkjanna. aij Mótherji Mugabes Rekinn vegna mótframboðs Hvirfilbyljir léku fjögur ríki Bandaríkjanna grátt í gær. Að minnsta kosti 45 týndu lífi – 26 í Tennessee, 13 í Arkansas, einn í Alabama og fimm í Kentucky. Hamfarirnar áttu sér stað á sama tíma og úrslit fóru að skýrast í forvali forsetakosninganna. Þegar fréttirnar bárust gerðu frambjóð- endur hlé á ræðum sínum til að minnast fórnarlambanna. aij Bandaríkin Fjöldi hvirfilbylja Maharishi Mahesh Yogi, sem varð þekktur fyrir að kenna Bítlunum hugleiðslu, lést á heimili sínu á þriðjudag. Árið 1955 hóf- Maharishi að kenna innhverfa íhugun og kynnti Bandaríkja- mönnum tæknina fjórum árum síðar. Árið 1967 sóttu Bítlarnir fyrirlestur Maharishis, sem leiddi til þess að þeir dvöldu í búðum hans á Ind- landi ári síðar. Dvöl þeirra vakti heimsathygli, ekki síst vegna ósættis á milli hans og Johns Len- nons, sem samdi lagið Sexy Sady um dvölina. aij Innhverf íhugun Bítlagúrú deyr Eftir Andrés Inga Jónsson andresingi@24stundir.is Tyrknesk stjórnvöld hafa sent þýsku lögreglunni liðstyrk til að rannsaka upptök elds sem kvikn- aði í íbúðarhúsi í Ludwigshafen í suðurhluta Þýskalands á sunnu- dag. Níu manns létust og um 60 slösuðust í brunanum. Segir Re- cep Tayyip Erdogan, forsætisráð- herra Tyrklands, alla hina látnu hafa verið Tyrki. Óttast hann að kynþáttahatur hafi búið að baki brunanum. Rannsókn hefst Eldur braust út í fjögurra hæða húsinu síðdegis á sunnudag. Hann virðist hafa átt upptök sín í stiga- gangi hússins, þaðan sem hann breiddist fljótt út. Húsið varð fljótt alelda og íbúar gripu sumir til þess ráðs að stökkva út um glugga. Af þeim níu sem létust voru fimm börn. Um tíma var óttast að húsið væri það illa skemmt að það myndi hrynja. Þótti því ekki óhætt að hefja rannsókn fyrr en í gær. Kurt Beck, forsætisráðherra sambandslandsins Rínarlands- Pfalz, sagði á mánudag að ekkert gæfi til kynna að útlendingahatur byggi að baki brunanum. Hefur hann verið gagnrýndur fyrir að hafa verið of fljótur að halda því fram. Vísbendingar um íkveikju Lögregla byggir rannsókn sína að miklu leyti á frásögn tveggja stúlkna sem komust heilar úr bál- inu. Segjast þær hafa séð mann bera eld að spýtu, sem hann kastaði svo inn í húsið. „Við höfum miklar áhyggjur af því að eldurinn hafi verið kveiktur að yfirlögðu ráði,“ segir Erdogan. „Við vonum að þessi verknaður byggist ekki á óvild í garð útlend- inga. Við viljum að þetta mál verði upplýst eins fljótt og auðið er.“ Við inngang tyrknesks menn- ingarsambands á jarðhæð hússins er veggjakrot sem eignað hefur ver- ið nýnasistum. Ljóst er að það hef- ur komist á vegginn áður en brun- inn varð, þar sem lögregla hefur gætt svæðisins síðan. Óttast að nýnas- istar hafi kveikt í  Níu manns létust í eldsvoða  Sjónarvottar segja að kveikt hafi verið í  Nýnasistar á svæðinu liggja undir grun ➤ Í Þýskalandi búa 2,5 milljónirmanna af tyrkneskum ættum. ➤ Mikið er af Tyrkjum í Lud-wigshafen, þar sem efnaiðn- aður borgarinnar krefst mik- ils vinnuafls. ➤ Árið 1993 létust fimm Tyrkirþegar íkveikjuárás var gerð á íbúðarhús í Solingen. TYRKIR Í ÞÝSKALANDI Rústir einar Konur virða fyrir sér eyðilegginguna Röskur fjórðungur kjúklinga sem aldir eru til manneldis á Bret- landseyjum á erfitt með gang, að því er kemur fram í nýútkominni skýrslu. Er ástandið meðal annars rakið til þess að fuglarnir þyngjast hratt og lifa í miklum þrengslum. „Við höfum verið kallaðir til að líta á flokka þar sem fuglarnir lágu allir á jörðinni og voru að deyja úr hungri og þorsta,“ segir Toby Know- les, einn höfunda skýrslunnar. Segir hann hluta vandans vera álag vegna þess hve hratt fuglarnir vaxa, sem ágerist í yfirfullum eld- ishúsum þar sem fuglunum er haldið vakandi allan sólarhringinn. Áætlar Knowles að mannúðlegra kjúklingaeldi gæti hækkað verð á kjöti um helming. Telur hann að á heimsvísu búi um 20 milljarðar kjúklinga við svipaðar aðstæður og lýst er í skýrslunni. aij Slæmar aðstæður á kjúklingabúum Alifuglar of þreyttir til að hreyfa sig STUTT ● Finnum hótað Sendiherra Finnlands í Kenýa tilkynnti í gær að sendiráðinu hefði borist tölvubréf þar sem varað var við yfirvofandi árás á sendiráðið. Sagði Heli Sirve sendiherra hvorki ljóst hver hefði sent bréfið né hvert tilefni mögu- legrar árásar gæti verið. Segir hún bréfið gefa til kynna að hættan tengist Sómalíu. ● Þingrof Forseti Ítalíu hefur rofið þing eftir misheppnaðar tilraunir stjórnmálaflokka til að koma á bráðabirgðastjórn í kjölfar þess að vantrauststil- laga gegn forsætisráð- herranum Romano Prodi var samþykkt. Verður boðað til kosninga 13.-14. apríl – að- eins tveimur árum eftir að Ítalir gengu síðast að kjör- borðinu. Heimsferðir bjóða frábær tilboð allra síðustu sætunum á skíðin í Austurríki í febrúar. Bjóðum einnig frábærar vikuferðir 16. og 23. febrúar á sértilboði, flug og gistingu. Tryggðu þér skíðafrí á besta verðinu og bókaðu strax. Ath. mjög takmarkað framboð! Skógarhlíð 18 • sími 595 1000 • www.heimsferdir.is Skíðaveisla í Austurríki 16. og 23. febrúar frá kr. 29.990 Allra síðustu sætin Verð kr. 29.990 Flugsæti með sköttum. Sértilboð 16. og 23. febrúar. Netverð á mann. Verð kr. 59.990 Flug og gisting í viku. Netverð á mann, m.v. gistingu í tvíbýli á gististað „án nafns“ í Zell am See / Schuttdorf (sjá skilmála "„stökktu tilboðs“) með morgunverði í 7 nætur. Sértilboð 16. febrúar. Verð kr. 64.990 Vikuferð með hálfu fæði. Netverð á mann, m.v. gistingu í tvíbýli á Hotel Stranachwirt *** í Lungau með hálfu fæði í 7 nætur. Sértilboð 16. eða 23. febrúar. Verð kr. 84.990 Frábært **** hótel með hálfu fæði Netverð á mann, m.v. gistingu í tvíbýli á Hotel Unterberghof í Flachau með hálfu fæði í viku. Sértilboð 1. mars. Munið Mastercard ferðaávísunina Birt með fyrirvara um prentvillur. Heimsferðir áskilja sér rétt til leiðréttinga á slíku. Ath. að verð getur breyst án fyrirvara. HÁSKERPA HEIM Í STOFU WWW.SVAR.IS - SÍÐUMÚLA 37 - SÍMI 510 6000 MIRAI 32” LCD háskerpusjónvarp 79.900- TILBOÐ 24 stunda Auglysingasimi Kolbrun S.510 3722 / kolla@24stundir.is Katrin s.510 3727 /kata@24stundir.is SerbladBorn og uppeldi 13.FEBruar 2008

x

24 stundir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: 24 stundir
https://timarit.is/publication/307

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.