24 stundir - 07.02.2008, Blaðsíða 40

24 stundir - 07.02.2008, Blaðsíða 40
40 FIMMTUDAGUR 7. FEBRÚAR 2008 24stundir Laugaveg 80 - S: 561 1330 www.sigurboginn.is Sundbolir og bikini frá Kvikmyndir traustis@24stundir.is Kvikmyndin Walk Hard, eða Þrautaganga, segir af Dewey Cox, sem verður fyrir því óláni að höggva bróður sinn í tvennt með sveðju. Mjög slysalegt allt saman. Uppsker hann fyrir vikið hatur föður síns sem tönnlast á því í sí- fellu að rangur bróðir hafi látist. Hrökklast loks Dewey að heiman 14 ára gamall, staðráðinn í að láta tónlistardrauma sína rætast. Sagan er í raun skopstæling á sögum Johnnys Cash, Walk the line, og Rays Charles, sem hét einfaldlega Ray, en báðar þær myndir voru fyrirferðarmiklar ár- ið 2005. Mikil eftirvænting ríkti eftir Walk Hard þar sem fram- leiðendum hennar tókst ein- staklega vel upp með þrjár aðrar myndir, Superbad, Knocked up og The 40 year old virgin. Því miður stenst Walk Hard hinum myndunum ekki snúning, þótt margt sé þar vel gert og fyndið. Fyrri helmingur myndarinnar er dágóður og eftirminnilegt er at- riðið með Bítlunum, sem og at- riði þar sem getnaðarlimur í hvíldarstöðu kemur fyrir, en nekt af því tagi er mjög óvenjuleg í bandarískum bíómyndum. Ófríður Will Ferrell John C. Riley skilar sínu hlut- verki ágætlega, en er samt í raun bara varaskeifa og ófrítt eintak af Will Ferrell, sem engum hefði komið á óvart þótt léki aðal- hlutverkið í myndinni. Samt gaman fyrir John að fá sénsinn, enda einn þekktasti aukaleikari Hollywood. Myndin er ekki handónýt, en veldur samt tölu- verðum vonbrigðum miðað við kanónurnar sem að baki henni standa. Þrautagangan þreytandi til lengdar Vonbrigði John C. Riley stendur sig ágætlega í mynd sem kemur leiðinlega á óvart. Empire Film Group hefur náð sér í kvikmyndaréttinn á ævisögu hins víðfræga brúðugerðarmanns Jims Hensons. Henson skapaði hina heimsfrægu Prúðuleikara ásamt því að skapa Sesame Street og gera kvikmyndir á borð við Dark Crystal og The Labyrinth. Henson lést í New York árið 1990 en hann var þá einungis 53 ára gamall. Áætlað er að hefja tökur á mynd- inni í sumar en enn hefur enginn leikstjóri verið ráðinn til starfa, hvað þá leikaralið til að halda á lofti minningu þessa framsýna og stórmerkilega manns. vij Ástir og örlög Jims Hensons Tökur á tölvuleikjamyndinni Max Payne munu hefjast innan mán- aðar í Toronto í Kanada. Myndin er byggð á samnefndum tölvuleik en í henni segir frá lögregluþjóni sem reynir að hafa uppi á dreif- ingaraðilum stórhættulegs fíkni- efnis. Skyndilega er hann sakaður um morð og fyrr en varir er hann hundeltur af mafíunni, löggunni og fleiri vafasömum persónum. John Moore mun leikstýra mynd- inni en Mark Wahlberg mun að öllum líkindum leika hinn þjáða og hundelta lögregluþjón Max Payne. Myndin verður frumsýnd árið 2010. vij Tökur á Max Payne hefjast 24LÍFIÐ 24@24stundir.is a John C. Riley skilar sínu hlutverki ágætlega, en er samt í raun bara varaskeifa og ófrítt ein- tak af Will Ferrell, sem engum hefði komið á óvart þótt léki aðalhlutverkið í myndinni. Leikstjóri: Jake Kasdan Leikarar: John C. Riley, Jenna Fischer Walk Hard Hiti er hlaupinn í nemendur Háskóla Íslands því seinni kjör- dagur stúdentakosninga er í dag. Tvær fylkingar berjast um for- mennsku Stúdentaráðs, Vaka og Röskva, en síðarefnda fylkingin hefur verið við völd undanfarið ár. Nýlega slógu fylkingarnar upp ær- legum fagnaði. Vaka hélt „ógeðs- lega sexý partí“ á kosningamiðstöð sinni sem staðsett er á Laugavegi en Röskva sló upp svitaballi á Org- an þar sem Sprengjudrengir héldu uppi gleði og látum. Látum mynd- ir úr gleðskap háskólastúdenta tala sínu máli. bjorg@24stundir.is Vaka og Röskva berjast um formennsku Stúdentaráðs Barist í Háskóla Íslands Blés út í eitt Kári Hólmar Ragnarsson dró fram básúnu sína í tilefni Svitaballsins og kætti gesti. Röskir frambjóðendur Þorleifur Örn Gunnarsson fór létt með að skella Bergþóru Snæbjörnsdóttur upp á hendur sér. Sveittir Sprengjudrengir Voru nálægt því að sprengja þak staðarins af, að eigin sögn. Tryllingur Æstir háskólastúdentar á Svitaballi Röskvu voru vel búnir með svitabönd og flautur. Kátir Vökuliðar Elín Jónsdóttir, Helga Gunnlaugsdóttir og Gunnar Arnarsson. Kynþokkinn lak af frambjóðendum Ísak Gunnarsson og Hildur Björnsdóttir. Glatt á hjalla hjá prúðbúnum Vökuliðum Sigurrós Björg Sigvaldadóttir skartaði glæsilegum kjól og laðaði að sér fagra pilta. Vel vakandi og hvergi sofandi Helga Lára Haarde, formaður Vöku, og Helen Laufey Sigurðardóttir, gjaldkeri félagsins, brostu breitt.

x

24 stundir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: 24 stundir
https://timarit.is/publication/307

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.