24 stundir - 07.02.2008, Page 34
34 FIMMTUDAGUR 7. FEBRÚAR 2008 24stundir
ÍÞRÓTTIR
ithrottir@24stundir.is a
Áberanda var hversu gaman var
á æfingunni enda voru þær allar
á einu máli um að stelpur væru síst
verri í fótbolta en strákarnir.
Það er engin tilviljun að Eiður
Smári Guðjohnsen skuli hafa verið
kenndur við fjölmörg knattspyrnu-
lið ensk undanfarin misseri. Fáir
skilja hvers vegna hann situr á strák
sínum hjá Börsungum en þar
vænkast hagur hans ekkert þrátt
fyrir að hann leggi hart að sér. Hef-
ur hann aðeins leikið 1004 mín-
útur alls í öllum keppnum með lið-
inu í vetur eða rétt rúmlega tvo
leiki á mánuði.
Alls hefur hann komið við sögu í
20 leikjum og verið í byrjunaliðinu
tólf sinnum. Tíu þessara leikja hafa
unnist og Eiður skorað í þeim þrjú
mörk. Eru það öllu færri mörk en
hann gerði á síðasta tímabili þegar
hann setti alls ellefu mörk í 38
leikjum. Þá er tæknileg tölfræði
hans ekki upp á marga fiska. 37
sinnum hefur hann unnið návígi á
vellinum í umræddum leikjum en
72 sinnum tapað slíkum viðureign-
um.
Eiður Smári þreyir þorrann áfram í Katalóníu
Tveir leikir á mánuði
Yfirmaður dómaramála áÍtalíu, hinn þekkti sköll-ótti Pierluigi Collina,
styður hug-
myndir Knatt-
spyrnu-
sambands Evr-
ópu um að
tveir aðaldóm-
arar dæmi
hvern leik í
stað eins nú. Slíkt er raunin í
körfu- og handbolta og hefur
gefist vel þar. Nytu dómarar
áfram hjálpar línuvarða en
nánari útfærslu er að vænta
eins og þá hvor dómarinn ræð-
ur ef þeir eru ósammála.
Miklir skandalar hafariðið yfir ítalskaknattspyrnu síðustu
mánuði sem reyndar er ekkert
nýtt þar í landi
hvorki í fót-
boltanum né
pólitíkinni.
Hefur dag-
blaðið Gazzetto
dello Sport birt
endurskoðaða
stöðu í Seríu A þar sem stærstu
skandalar dómara hafa verið
leiðréttir eins og það heitir. Þá
er nokkuð önnur staða á
toppnum og Inter ekki lengur
efst meðal jafningja heldur Ju-
ventus. Inter kemur næst, þá
Roma og Milan.
Guð blessi Luis Aragonesþjálfara Spánar. Karl-inn er engum líkur og
slíkir karakter-
ar fáséðir í
boltanum. Nú
gefur Aragones
í skyn að for-
svarsmenn
spænska knatt-
spyrnusambandsins þori ekki
að reka sig sé það rétt sem
spænsk blöð segja að það standi
fyrir dyrum. Karlinn blæs á
slíkt og sendir sambandinu
tóninn til baka. Enda lítið vit í
að skipta um hest í miðri á nú
þegar ljóst er að Spánn tekur
þátt á EM í sumar.
West Ham skuldar KiaJoorabchian tæpanmillj-
arð króna að
hans mati og
hefur höfðað
mál á hendur fé-
laginu vegna
Carlos Teves.
Kínverska ólympíunefndin
hefur nú til athugunar kröfu
ýmissa fréttasamtaka um að
opna fyrir allar vefsíður úr
fréttamannasetri Ólympíu-
leikanna en eins og kunnugt
er er allt slíkt efni ritskoðað af
þarlendum yfirvöldum alla-
jafna. Ekki er til að mynda
hægt að skoða vefi BBC eða
CNN að fullu en það er krafa
fjölmiðlafólks að svo verði.
Mun það aðeins gilda um
fréttafólk en ekki almenna
borgara.
Boð og bönn
Fjölmiðlar vestanhafs hafa
fyrir því heimildir að for-
ráðamenn Miami og Phoenix í
NBA ræði nú möguleg skipti á
þeim Shaquille O’Neal og
Shawn Marion. Shaq er hálfur
maður hjá hinu dapra Miami
Heat og ekki mótfallinn breyt-
ingum en Marion er það
nokkuð um geð enda ekki sér-
lega vænlegt stökk; Miami
neðst í austurdeildinni en
Phoenix efst í vesturdeildinni.
Shaq á förum
Meðan Dagný Linda Krist-
jánsdóttir skíðakappi hefur
sig hæga hjá læknum í Pól-
landi vegna meiðsla er litla
systir hennar, Katrín Krist-
jánsdóttir, að næla sér í veiga-
mikla reynslu í norskum
brekkum. Er henni að vaxa ás-
megin og varð hún tíunda í
risasvigi og sjöunda í tví-
keppni á unglingameist-
aramóti þar í vikunni.
Systur metast
Golfgoðið ástralska Greg
Norman tekur þátt í Pebble
Beach Pro am-mótinu sem
hefst í dag en sautján ár eru
síðan hann keppti síðast á því
móti. Norman, sem lítið hefur
spilað undanfarin ár, lét hafa
sig út í þátttöku nú þar sem
sonurinn, Gregory Norman,
vildi áfjáður spila. Sá yngri
hefur þó ekki sýnt pabbatakta
enn sem komið er á golf-
mótum og vart við því búist
lengur, en karlinn er brattur
og ætlar sér sigur á mótinu.
Faðir og sonur
Þó lítill samnefnari sé ennþá
milli Gróttu og fótbolta er ljóst að
breyting verður þar á fyrr en síðar
miðað við áhugann á Seltjarnar-
nesinu. Þó íþróttafélagið sé öllu
þekktara fyrir handbolta sækir fót-
boltinn á sem best sést á því að nú
er hreint ágæt mæting á fyrstu fót-
boltaæfingar stúlkna í barna- og
unglingaflokkum sem haldnar hafa
verið um skeið.
24 stundir litu inn á æfingu í
fimmta flokki í vikunni þar sem
stúlkurnar á því aldursárinu
reyndu með sér og var áberandi
hversu gaman var hjá þeim á æf-
ingunni. Enda voru þær allar á
einu máli að stúlkur væru síst verri
í fótbolta en strákarnir.
albert@24stundir.is
Lítil hefð Stúlknabolti hefur ekki hingað til
verið ofarlega á listum á Seltjarnarnesi en
það er að breytast. Árvakur/Ómar
Stelpur geta alveg
spilað fótbolta
Fótboltinn nýtur vinsælda hjá stelpunum á Nesinu
SKEYTIN INN
Tæknilega hliðin Taka verður menn á
reglulega í boltanum.
Fyrsta skiptið Sumar stúlknanna hafa
aðeins mætt einu sinni eða tvisvar
Vörn og sókn Óskipulagt kaso skilar litlum árangri á fótboltavellinum og kerfi og
metnað þarf til. Áherslan því lögð á að koma því til skila og spila þannig.
Æfing og agi Fátt skapar meistara
nema stífar æfinga og agi sem því fylgir.