24 stundir - 22.02.2008, Blaðsíða 13
24stundir FÖSTUDAGUR 22. FEBRÚAR 2008 13
www.toyota.is
ÁSTANDHEIMSINS
frettir@24stundir.is a
Ég vil að líberíska þjóðin viti að Bandaríkin standa með
ykkur, frú forseti. Við viljum hjálpa ykkur að jafna ykkur á
hræðilegu tímabili. Við viljum að þið lifið í von og friði, sem er
nákvæmlega það sem er að gerast undir þinni stjórn. George Bush
Ferð George Bush Bandaríkja-
forseta til fimm Afríkuríkja lauk
þegar hann sótti Líberíu heim í
gær. Þar tók á móti honum Ellen
Johnson-Sirleaf, fyrsta konan
sem kjörin er forseti í Afríku.
Bush hrósaði Sirleaf fyrir að hafa
leitt þjóðina í gegnum mikla upp-
byggingu eftir lok borgarastríðs.
Líbería var stofnuð af leysingum
úr suðurríkjum Bandaríkjanna
um miðja 19. öld og hafa síðan
verið sterk tengsl á milli land-
anna. Líberíumenn tala ensku
með bandarískum hreim, gjald-
miðill þeirra er Líberíudalur og
þjóðfáninn eins og sá bandaríski,
nema með einni stjörnu í stað
fimmtíu. aij
Afríkuheim-
sókn lýkur í
Líberíu
AFPVel tekið Ellen Johnson Sirleaf, forseti Líberíu, tók í gær á móti George Bush Bandaríkjaforseta. Bush er fyrsti forseti Bandaríkjanna sem heimsækir landið í 30 ár.
Páfinn pússaður Verkamenn í Dili, höfuðborg Austur-Tímor, voru að leggja lokahönd á styttu af Jóhannesi Páli öðrum. Páfinn er í
miklum metum á Austur-Tímor, en hann var einn fárra erlendra gesta sem heimsóttu landið á níunda áratugnum.
Gervisebradýr flýr Starfsmenn Ueno-dýragarðsins í Tókýó settu á svið flótta sebra-
hests í vikunni. Um 150 manns tóku þátt í þessari árlegu æfingu.