24 stundir - 22.02.2008, Page 24
24 FÖSTUDAGUR 22. FEBRÚAR 2008 24stundir
Eftir Hildu H. Cortez
hilda@24stundir.is
„Ég var að koma af sölusýningu í
New York sem gekk virkilega vel,“
segir Hanna Pétursdóttir fata-
hönnuður. „Ég var að sýna haust-
og vetrarlínuna fyrir næsta vetur,
aðallega fyrir Ameríkumarkað en
einnig fyrir Japansmarkað. Ég
gerði þó nokkra samninga en það
fyndnasta er að ég seldi mest til
heitustu ríkjanna í Bandaríkjun-
um þrátt fyrir að nota mikið af ís-
lenskri ull í hönnuninni.“
Í samstarfi við ullarvinnslu
Hanna lærði í Hollandi þaðan
sem hún útskrifaðist árið 1999.
„Ég fluttist heim fyrir um einu og
hálfu ári en ég hef verið að vinna
með ullina og reynt að finna
henni farveg síðan 2001 og hef
verið að vinna í því með ullar-
vinnslu á Seyðisfirði.
Ég hanna mikið af peysum og
svokölluðum peysukápum úr fín-
um efnum. En það fer auðvitað
alltaf eftir þeim sem klæðist flík-
unum hvort þau séu hversdags
eða spari, en efnin gera fötin
mjög sérstök. En þetta eru mis-
munandi blöndur sem ég er með
og alls ekki allt úr rosalegri ull
þannig að þetta er breið lína.“
Dior í uppáhaldi
„Ég tek að einhverju leyti mið
af eigin stíl við hönnunina. En
annars held ég mikið upp á Dior
frá 1950 þó að það endurspeglist
kannski ekki beint í minni hönn-
un. Það er kvenlegur stíll, svolítið
ýktur, mikil mitti og pils.“
Hanna hannar eins og er ein-
göngu kvenmannsföt en stefnir
að því að bæta við karlalínu þegar
fram líða stundir. „Það hefur
mikið verið spurt um karlaföt úr
þessum efnum sem ég vinn með,
sérstaklega af útlendingum og ég
hugsa að ég láti það verða að
veruleika í framtíðinni.
En eins og er, er markmiðið að
fylgja þessari línu eftir núna og ég
stefni að því að fara til Parísar á
næsta tímabili. Hérna heima hef-
ur líka gengið vel. Ég er með
verslun á Laugaveginum sem ég
opnaði fyrir rúmu ári og það hef-
ur gengið vonum framar. Það er
líka ein helsta ástæðan fyrir því að
ég ákvað að herja á Ameríku-
markað þar sem ég hef fengið
mikið af amerískum kúnnum í
búðina sem hafa verið hrifnir af
hönnuninni. Eins kom hingað
fyrirtæki sem gerði samning við
mig áður en ég fór út, þannig að
það benti allt til þess að það
myndi ganga vel úti sem það og
gerði.“
Hanna Pétursdóttir fatahönnuður vekur athygli erlendis
Bandaríkjamenn og
Japanir hrifnir af ullinni
➤ Hanna útskrifaðist frá Ho-geschool voor de Kunsten Ut-
recht árið 1999.
➤ Hún rekur verslunina Hanna áLaugavegi 20b.
➤ Hörður Ólafsson ljósmyndarimyndaði haust- og vetrarlínu
Hönnu. Haffi Haff sá um förð-
un og hárgreiðslu.
HANNA DESIGNHanna Pétursdóttir fata-
hönnuður vakti mikla
athygli á tískuvikunni í
New York en þangað fór
hún á sölusýningu með
haust- og vetrarlínu
sína sem hún seldi bæði
til Bandaríkjanna og
Japan.
Hanna Pétursdóttir fata-
hönnuður Vinnur mikið með
íslensku ullina í hönnun sinni.
Kvenlegt Hátt mitti og
kvenlegar flíkur.
Klassík Klæðilegir kjólar
úr vönduðum efnum.
Kjólar Hanna vinnur
með mismunandi efni í
hönnun sinni.
Kápa Peysur og peysu-
kápur Hönnu hafa vakið
mikla athygli.
Árvakur /Ómar
Nýjar vörur
gæði og glæsileiki
Nýbýlavegi 12 | Sími 554 5333 | Opið virka daga 10-18 | laugardaga 11-16
Snyrtistofan Salon Ritz
Litun og plokkun
Augnandlitsbað
Fótsnyrting
Gelneglur
Förðun
Hringdu núna
Laugavegur 66 , 2 .h . S ími 552 2460