24 stundir - 22.02.2008, Blaðsíða 26
26 FÖSTUDAGUR 22. FEBRÚAR 2008 24stundir
Merki Alþjóða samtakanna
IFAT sem útbreiða boðskap
sanngjarnra viðskipta.
Eftir Maríu Ólafsdóttur
maria@24stundir.is
Að mörgu er að hyggja vilji maður
láta til sín taka í náttúruvernd. Föt
eru t.d. ekki bara föt heldur eru
þau framleidd úr mismunandi
náttúrulegum efnum. Eins eru þau
oft framleidd við óviðunandi að-
stæður fyrir þá sem við framleiðsl-
una starfa.
Að velja föt snýst ekki eingöngu um lit, stærðir og snið
Sanngjörn viðskipti
skipta miklu máli
➤ IFAT International Fair TradeAssociation eru alþjóðleg
samtök sem vinna að því að
bæta lífskjör illa staddra
framleiðanda með því að
leiða saman og kynna Fair
Trade eða sanngjörn viðskipti
í heiminum. Auk þess að sjá
um reglubundið eftirlit með
stöðlum samtakanna.
IFAT
Endurvinnsla Hægt er að endurvinna
ótrúlegustu hluti til að búa til töskur eins
og sést á þessum þremur hér að ofan.
Skaðlaust Beyond Skin framleiða skó
sína með siðræna hugsun að baki. Öll
framleiðsla miðar að því að skaða hvorki
menn, dýr né umhverfið með henni.
Silki Peysa úr silki framleidd af hand-
verksfólki í Pakistan, 25% af hverri seldri
peysu renna beint til fórnarlamba jarð-
skjálftans í Pakistan.
Á einu mesta landbúnaðar-
svæði heims í Central Valley í
Kaliforníu er starfrækt fyrirtæki
sem heldur úti herferðinni The
Sustainable Cotton Project (SCP),
sem á íslensku mætti ef til vill
kalla sjálfbæra bómullarhnoðra-
verkefnið. En þar er einblínt á
framleiðslu og notkun bómullar
sem er ein helsta ræktunarvara
heims en um leið sú sem ræktuð
er með hvað flestum aukaefnum.
Þróun náttúrulegra efna
Herferðinni er skipt í þrjá þætti
en sá fyrsti einblínir á það sem
tengist framleiðslunni. Aðferðir
til að draga úr notkun eiturefna
við framleiðsluna eru þróaðar
þannig að bómullin sé unnin á
náttúrulegan hátt. Þá er framleið-
endum kennt og sýnt viðskipta-
módel sem þegar hefur borið ár-
angur um hvernig megi nota
lífræna bómull framleidda á sjálf-
bæran hátt í stað þeirrar sem þeg-
ar er notuð við hefðbundna fram-
leiðslu.
Láttu þig fötin skipta
Í þriðja lagi stuðlar herferðin
að því að vinna í samráði við að-
ila og stofnanir um að upplýsa
neytendur um þau vandkvæði
sem fylgja hefðbundinni bómull-
arframleiðslu. Svo og mikilvægi
þess að kaupa frekar vörur búnar
til úr lífrænni bómull framleiddri
á sjálfbæran hátt. Til að koma
þessum skilaboðum á framfæri
hefur herferðin fengið til liðs við
sig neytendahópa.
Sjálfbærir bómullarhnoðrar
Vilja ekki láta sprauta á sig eiturefnum
Mikil framleiðsla er af
bómull víða um heim.
Það er staðreynd að þeir sem hafa
sjálfstraust eru kynþokkafullir.
Fyrir þær konur sem finna ekki
fyrir kynþokkanum má gera
margt. Það er til dæmis tilvalið að
kaupa sér kynþokkafull nærföt,
rauðan varalit og háhælaða skó.
Flestar konur eru flottar í slíkum
fatnaði og það má því spranga í
þessu heima til að finna kynþokk-
ann.
Í leit að
kynþokka
NÝ
SENDING
• Kjólar
• Leggings
• Ermar
• Skart
Ferming í FLASH
Laugavegi 54
sími 552 5201
mættu mátaðu upplifðu
Verslun Rauðarárstígur 14 sími 551 5477
Vallý s.510 3728
Böddi s.510 3726
atvinna@24stundir.is
ATVINNUBLAÐIÐ