24 stundir - 22.02.2008, Blaðsíða 29
VELDU ÞAÐ BESTA!
RÝMINGARSALA!
NÚNA ER TÆKIFÆRIÐ!
700.00
0
AFSLÁ
TTUR
500.00
0
AFSLÁ
TTUR
400.00
0
AFSLÁ
TTUR
90-100
%
LÁN
300.00
0
AFSLÁ
TTUR
80.000
15” SJÓNVARP MEÐ DVD, AÐ VERÐMÆTI KR.
FYLGIR HVERJU HJÓLHÝSI Á ÚTSÖLUNNI!
FYRSTA ALVÖRU ÚTSALAN Á NOTUÐUM HJÓLHÝSUM!
Nú eigum við allt of mikið af notuðum hjólhýsum og húsbílum og þurfum þess vegna að losa pláss.
Því bjóðum við 150-700.000 KR. AFSLÁTT AF ÖLLUM NOTUÐUM HJÓLHÝSUM
sem við eigum á lager. Útsalan stendur yfir fram á miðvikudag -ef birgðir endast svo lengi!
DRÍFÐU ÞIG OG GERÐU GEGGJUÐ KAUP! FYRSTIR KOMA - FYRSTIR FÁ!
WWW.VIKURVERK.IS VÍKURHVARFI 6 SÍMI 557 7720
BARA
Í
5 DAG
A!
ALLIR
VAGNA
R
INNI
VERIÐ VELKOMIN!
OPIÐ LAUGARDAG KL. 12-16
SUNNUDAG KL. 13-17.
24stundir FÖSTUDAGUR 22. FEBRÚAR 2008 29
Lagskipt samfélag
Hidjrur búa margar saman. Á
hverju heimili er einn gúrú svokall-
aður sem ræður ríkjum. „Ég var
um leið gerð að nemanda hjá gúrú.
Lærði að elda, dansa, sauma og
hegða mér eins og dama,“ heldur
Hira áfram en í hvert sinn sem
gúrú deyr er elsti nemandi hans á
heimilinu sæmdur titlinum.
Eftir Egil Bjarnason í Karachi
egillegill@hotmail.com
„Auðvitað ávarparðu mig sem
konu – er það ekki augljóst!?“ segir
Fauzia móðguð. Hún er klædd í lit-
skrúðugan kjól, á háum hælum,
með glansandi skartgripi og mellu-
lega mikla andlitsmálningu sem
nær samt ekki að fela skeggrótina.
Ég sest niður á kaffihúsi í Pak-
istan með þeim Fauzia og Hira.
Heimamenn kalla þær hidjrur;
konur í röngum líkama, með af-
skræmdan getnaðarlim, sem sam-
an mynda órjúfanlega einingu í
samfélaginu. Klíku sem nærist á
betli, danssýningum og vændi.
„Frá því að ég man eftir mér sem
litlum dreng var ég utangátta. Allt
þar til ég var tíu ára og sá hóp af
hidjrum í hverfinu mínu. Eldri
bróðir minn lamdi mig fyrir að
sýna þeim áhuga og virðingu,“ seg-
ir Hira sem var útskúfað úr fjöl-
skyldunni á barnsaldri en um leið
tekin inn í nýtt samfélag.
Ejaz Ahsan, höfundur bókar um
þennan þjóðfélagskima, segir sam-
félag hidjra raunar mjög lagskipt.
„Á tímum kóngaveldis á Indlandi,
sem þá náði yfir Pakistan, höfðu
þær völd í höllunum. Eftir að það
liðaðist í sundur klofnaði sam-
félagið í tvennt. Annars vegar þær
sem lifa á því að dansa í brúðkaup-
um og hins vegar betlara og kyn-
lífsþræla. Virðulegri hópnum er illa
við hvernig hinar koma slæmu orði
á þennan lífsstíl,“ segir hann og tel-
ur að í Karachi, fjölmennustu borg
Pakistans, séu tæplega tíu þúsund
hidjrur.
Fimmtudagar til fjár
Þegar Hira varð sextán ára byrj-
aði hún að betla í slagtogi við „syst-
ur sínar“ og er enn að. „Ég vinn að
meðaltali átta klukkustundir á
dag,“ segir hún og kveðst þéna vel
yfir almennum lágstéttarlaunum.
„Flestir gefa okkur eitthvað enda
boðar ógæfu að gera það ekki. Sér-
staklega á fimmtudögum því þá
eiga múslímar samkvæmt trúnni
að gefa betlurum. Samt kemur
stundum fyrir að við verðum fyrir
aðkasti en ég hef ekki lent í neinu
alvarlegu,“ segir hún, orðin liðlega
þrítug.
Fauzia og Hira fyrirlíta vændi og
segjast ennfremur ekki stunda kyn-
líf. „Með hverjum ættum við að
gera það? Hidjrur rugla ekki saman
reytum. Við erum eins og systur,“
útskýra þær.
„Ég kann vel við þennan lífsstíl,
gæti að minnsta kosti ekki hugsað
mér að vera í einhverju öðru starfi,
en stundum óska ég þess að hafa
fæðst sem stelpa,“ segir hún jafn-
framt en er nú orðið órótt. „Er
þetta ekki orðið gott? Það er mikið
að gera akkúrat núna … “
Eins og flestum er kunnugt voru
þingkosningar í Pakistan á dögun-
um. Ég varð vitni að því þegar
nokkrar hidjrur hugðust láta að sér
kveða á kjörstað var þeim vísað sitt
á hvað. Fyrst í röðina fyrir konur,
þaðan í karlaröðina og á endanum
meinað að kjósa. Fregnir herma að
á Indlandi hafi hidjrur meiri rétt-
indi og meira að segja sinn eigin
fulltrúa á þingi.
Konur í röngum líkama í Karachi, fjölmennustu borg Pakistans
Klíka klæðskiptinga
Í stórborgum Pakistans
og Indlands eru betlandi
klæðskiptingar nokkuð
áberandi. Þeir halda hóp-
inn og hlýða skipunum
meistara síns.
Hidjrur Betlararnir
Fauzia og Hira þéna vel
yfir meðal lágstétt-
arlaunum enda boðar
ógæfu að gefa þeim ekki
ölmusu.
MENNING
menning@24stundir.is a
Með hverjum ættum við að gera
það? Hidjrur rugla ekki saman
reitum. Við erum eins og systur.