24 stundir - 22.02.2008, Blaðsíða 42
42 FÖSTUDAGUR 22. FEBRÚAR 2008 24stundir
Hljómsveitin Munich frá Árósum
spilar á Gauknum í kvöld. Jan
Mayen, Lada Sport og Hooker
Swing hita upp og miðaverð er
einungis 1500 krónur. Lag Mun-
ich, The Young Ones, varð geysi-
vinsælt á síðasta ári á X-inu, en
tildrög þess er að umsjón-
armaður útvarpsþáttarins Frank
hitti meðlimi sveitarinnar á tón-
listarhátíð í Árósum í maí í fyrra.
Hann fékk frá þeim demó, líkaði
vel og hvatti þá til að senda sér
fullklárað lag. Áhugasamir geta
kynnt sér sveitina á my-
space.com/munichdk. re
Munich kemur
frá Danmörku
Á tónleikum Bubba Morthens
gegn rasisma í fyrrakvöld komu
formenn ungliðahreyfinga stjórn-
málaflokkanna skoðunum þeirra á
framfæri. Þeirra á meðal var Viðar
Guðjohnsen, formaður Félags
ungra frjálsyndra. Formaður Fé-
lags Anti-rasista, Dane Magnússon
segist hissa á þeirri ákvörðun.
„Mér finnst skjóta skökku við að
flokkur, sem hefur legið undir
ámæli í innflytjendamálum, sé
með í baráttunni gegn rasisma.
Mér finnst þeir hafa sagt nóg und-
anfarið.“
Batnandi mönnum best að lifa
Að sögn Bubba Morthens fannst
honum hugmyndin góð, að fá for-
menn ungliðahreyfingana til að
skýra stefnu sína. „Batnandi
mönnum er best að lifa segi ég.
Hversu oft höfum við séð fólk
dásama áfengisdrykkju eina vikuna
og fara í meðferð þá næstu? Auk
þess spyr ég bara, hver tekur mark
á Frjálslynda flokknum?“
Eru á móti kynþáttahatri
„Á tónleikunum tíundaði ég
stefnu okkar í Félagi ungra frjáls-
lyndra að takmarka flæði innflytj-
enda í samræmi við vilja og getu
þjóðarinnar til að taka á móti
þeim,“ segir Viðar Guðjohnsen,
formaður félagsins. Aðspurður
hvort þær skoðanir hafi hlotið
hljómgrunn á tónleikum gegn ras-
ima sagði Viðar: „Nei, engan sér-
stakan kannski.“ Á vefsíðu Viðars
segir: „Höfundur er Frjálslyndur
þjóðarsinni sem aðhyllist hertari
innflytjendalöggjöf og hófsama að-
skilnaðarstefnu.“ „Ég er að tala um
skoðun mína varðandi aðskilnað
við Evrópusambandið. Ég skil að
þetta geti valdið misskilningi, en
hélt reyndar að ég væri búinn að
taka þetta út.“
traustis@24stundir.is
Talsmaður hertrar innflytjendastefnu þátttakandi á tónleikum gegn rasisma
Óánægja með aðkomu frjálslyndra
Árvakur/Frikki
Rokkað gegn rasisma Bubbi og
Geir Haarde í fyrrakvöld, á vel
heppnuðum tónleikum.
24LÍFIÐ
24@24stundir.is a
Mér finnst skjóta skökku við að flokkur, sem
hefur legið undir ámæli í innflytjendamálum,
sé með í baráttunni gegn rasisma.
Þessi gamli góði nýkominn í BCD
skálum á kr. 2.350,-
buxur í stíl á kr. 1.250,-
Fínlegur og flottur í BC skálum
á kr. 2.350,- BARA flottar buxur í stíl
á kr. 1.250,-
Misty, Laugavegi 178,
Sími 551 3366
Góð þjónusta – fagleg ráðgjöf
www.misty.is
Mjög flottur og veitir góðan stuðning í
CDE skálum á kr. 2.350,-
vænar buxur í stíl á kr. 1.250,-
Hlíðasmára 14 • 201 Kópavogur
Opið mán-lau kl. 11-17
Sendum frítt um land allt
Ull sem ekki stingur
Mikið úrval
af ullar- og
silkifatnaði
NÁTTÚRULÆKNINGABÚÐIN
ULL OG SILKI
Stuðið í undankeppni Eurovision nær hámarki í Smáralind annað kvöld
Allt getur gerst
Á morgun ákveða Íslendingar hvaða lag skuli senda
í Eurovision-keppnina í Serbíu þetta árið. Eurovision-
spekingur 24 stunda, Heiða Eiríksdóttir, fer yfir helstu
kosti og galla íslensku laganna, og kemst að því að allt
getur hreinlega gerst ennþá.
Gef mér von
Grípandi viðlag, en svolítið lummó gospelbakraddir.
Hræðilegur kafli í lok lagsins þegar Palli og bakraddirnar
gospela yfir sig. Páll á aðdáendur um allt land og svo er
guð kannski með þeim í liði. Sökum hins góða viðlags
og guðs eru vinningslíkur lagsins: 59%
Flytjandi: Páll Rósinkrans
Höfundur: Guðmundur Jónsson
59%
Núna veit ég
Lagið er of venjulegt, ekki einu sinni með eftirminnilegt
viðlag. Alltaf gaman að sjá og heyra í Magna og þjóðin
þykist eiga í honum hvert bein eftir Rockstar. Spurning
hvort Birgittu sé ofaukið. Vegna öruggrar framkomu
Magna eru vinningslíkur lagsins: 62%
Flytjendur: Magni og Birgitta
Höfundur: Hafdís Huld
62%
In your dreams
Hressilegt og grípandi lag en Davíð hefði átt að fá annan
flytjanda, því hann ræður tæpast við flókna sönglínuna.
Upprunaleg íslensk stemning frá 9. áratugnum í
gangi sem er í senn sjarmerandi og pínu halló. Út af
nostalgíunni eru vinningslíkur lagsins: 45%
Flytjandi og höfundur: Davíð Þorsteinn Olgeirsson
45%
Don’t wake me up
Ragnheiður Gröndal er ein besta söngkona Íslands
og Fabúla greinilega mjög lunkin að hitta á fínar og
grípandi poppmelódíur. Atriðið er frumlegt og gaman
að sjá bakraddir syngja sitjandi meðan aðalrödd syngur
liggjandi í sófa. Sökum frumleika eru vinningslíkur 70%
Flytjandi: Ragnheiður Gröndal
Höfundur: Fabúla
70%
Ho ho ho we
say hey hey hey
Rebekka er ekki nógu seig söngkona á sviði en reyndar
er erfitt að skila góðum flutningi og hreyfa sig svona
mikið. Ceres4 ætti bara að vera soldið trylltari. Lagið er
tvímælalaust það lag sem maður fær
mest á heilann og vinningslíkur því 76%
Flytjendur: Merzedes Club
Höfundur: Barði Jóhannsson
76%
This is my life
Vonandi syngja þau á ensku því íslenski textinn er hálf-
glataður. Lagið er frábært, en maður man bara viðlagið.
Atriðið er mjög hannað, jafnvel of mikið. Ef Regína
sleppir leðurblökuískrinu og diskóið fær að njóta sín eru
vinningslíkur lagsins 74%
Flytjendur: Eurobandið
Höfundur: Örlygur Smári
74%
Hvar ertu nú?
Lagið er brilljant og Óttarr Proppé flottur flytjandi. Finni
er svolítið óöruggur og er það mínus. Líklega nær þó
Óttarr að bæta fyrir allt með útgeisluninni einni saman.
Fyrir að syngja til heiðurs sjómönnum og vegna Óttarrs
Proppé eru vinningslíkurnar 75%
75%
Flytjendur: Dr. Spock
Höfundur: Dr. Gunni
Hvað var það sem þú sást í honum?
Baggalútur er í einu orði sagt: Æðislega stórkostlega frábær. Lagið er sveifla með
húkkum, brúm og öllu tilheyrandi. Spurningin er hvort glettni Baggalúts skili sér eitthvað
út fyrir landsteinana. Vinningslíkurnar lækka við það en út af sveiflunni fær lagið samt
48%
Flytjendur: Baggalútur
Höfundur: Magnús Eiríksson
48%