24 stundir - 22.02.2008, Page 46
46 FÖSTUDAGUR 22. FEBRÚAR 2008 24stundir
„Þurfa vísindamenn að fara út í
dýra rannsókn til að kortleggja
G-blettinn? Er ekki nóg að kon-
urnar sjálfar viti hvar hann er?
Eða er það kannski planið að
setja kortið inn í námsefni fyrir
stráka í kynfræðslu? Sumar rann-
sóknir mun ég aldrei skilja.“
Hulda S. Ringsted
ringarinn.blog.is
„Sú yngri spurði hvort hún gæti
ekki fengið sína eigin óhreina-
tauskörfu inn til sín svo að hún
gæti séð sjálf um að þvo sín föt.
Frábært af barni á 13. ári! Málið
er að henni finnst óhreini þvott-
urinn sinn liggja ansi lengi í tau-
körfunni áður en hann er þveg-
inn.“
Kristín Björg Þorsteinsdóttir
konukind.blog.is
„Sjálfseyðingarhvöt félaga minna
í Framsóknarflokknum virðast
engin takmörk sett. ...hinn ann-
ars geðþekki þingmaður Birkir
Jón Jónsson, ákveður að stofna til
borgarlegra mótmæla með því að
taka þátt í pókermóti.Og átján
þúsund kallinn í plús, er hann
ekki skattskyldur? “
Friðrik Jónsson
fridrik.eyjan.is
BLOGGARINN
Eftir Trausta Salvar Kristjánsson
traustis@24stundir.is
Auglýsing frá rútufyrirtækinu
Guðmundi Tyrfingssyni ehf. í dag-
blöðum hefur vakið athygli und-
anfarið. Þar er auglýst uppfærsla á
öryggisbeltum í rútum fyrirtæk-
isins, með notkun myndar af hálf-
berum og stæltum karlmanni við
hlið spariklæddrar stúlku, bæði
spennt í belti. Umferðarstofa tekur
þátt í átakinu, en segist ósátt við
auglýsinguna.
Vikið frá aðalatriðinu
„Okkur brá þegar við sáum aug-
lýsinguna,“ segir Sigurður Helga-
son hjá Umferðarstofu. „Við höf-
um óskað eftir breytingu á henni,
því að okkar mati þjónar hún ekki
þeim tilgangi sem lagt var upp
með. Fólk situr ekki bert í rútum,
hvorki strákar né stelpur.“ Að-
spurður hvort markmiðinu hafi
ekki verið náð, að fanga athygli les-
enda, sagði Sigurður: „Vafalaust,
en fólk fær aðrar upplýsingar en
þær sem við vildum leggja áherslu
á og þar liggur hundurinn graf-
inn.“
Benedikt Guðmundsson er
framkvæmdastjóri
rútufyrirtækisins og
segist hæstánægður
með auglýsinguna. „Við
höfum fengið fín við-
brögð við henni. Að
vísu er Umferðarstofa
ósátt, en við munum
hugsanlega breyta
myndinni aðeins, við
skoðum það eftir helgi.“
Auglýsingar sem inni-
halda bert kvenmanns-
hold hafa fengið á sig
harða gagnrýni að undanförnu,
fyrir að hlutgera konur.
„Við styðjum einfaldlega rétt
einstaklingsins til þess að láta
mynda sig, kjósi hann svo. Við
gagnrýnum ekki drenginn á mynd-
inni fyrir neitt, né fyrirtækið, held-
ur fögnum því að við búum við
slíkt frelsi að þetta sé mögulegt,“
segir Ólafur Hannesson, formaður
Jafnréttindafélags Íslands.
Mislukkaður viðsnúningur
„Þetta er eflaust vel meint, en
samt mislukkuð tilraun til að snúa
við kynjahlutverkunum. Það verð-
ur ekki komist nær jafnrétti þó
karlar séu hlutgerðir til jafns við
konur, miklu frekar að báðum
kynjum sé sýnd virðing. Annars er
þetta nú ekki stórtæk árás á karl-
mennskuna, heldur frekar óljós
merking að mínu mati,“ sagði
Arnar Gíslason, einn talsmanna
karlahóps Femínistafélagsins.
Umferðarstofa óskar eftir breytingu á auglýsingu rútufyrirtækis
„Fólk situr ekki
bert í rútum“
Auglýsing um örygg-
isbelti í rútum hefur vak-
ið athygli, en þar er not-
ast við beran karlmann
og fullklædda konu með
bindi. Umferðarstofa seg-
ist ósátt við myndina.
www.gtyrfingsson.is - S. 568 1410 / 482 1210 - Grænir og góðir ;)
Bjóðum á þriðja tug af
nýjum og góðum bílum
með þriggja punkta
öryggisbeltum í öllum
sætum. Hafðu sam-
band og sérpantaðu
einn slíkan fyrir þá
sem þér þykir vænt um.
Berbrjósta Auglýsingin
sem vakið hefur athygli.
Klæddir og spenntir Benedikt Guðmunds-
son og Ólafur Áki, bæjarstjóri Ölfuss, eru báð-
ir fullklæddir með beltin spennt.
HEYRST HEFUR …
Eurovisionlagið This is My Life í flutningi Friðriks
Ómars og Regínu Ósk fær góðan meðbyr á mynd-
bandavefnum Youtube.com. Þar situr lagið í 26.
sæti yfir mest spiluðu lög Bretlands í gegnum síð-
una sem er skrítið þar sem ekkert myndband hefur
verið framleitt við lagið. Á daginn kom að framtak-
samur Breti tók saman myndir af keppendunum og
halaði upp á síðuna með laginu undir. afb
Friðrik Ómar, Regína Ósk og Eurobandið hafa fleiri
ástæður til að gleðjast þar sem Eurovisionvefsíðan
Esctoday.com hefur tilkynnt að lag þeirra sé uppá-
haldsframlag vefsíðunnar af íslensku lögunum. Það
hljóta að teljast góð meðmæli þar sem vefsíðan er
gríðarlega vel sótt og jafnan talin miðstöð Eurovisi-
on-aðdáenda í Evrópu. Þá gefur síðan oft vísbend-
ingu um hvaða lög fara langt í aðalkeppninni. afb
Og enn meira um Eurovision. Hljómsveitinni Dr.
Spock, sem flytur lagið Hvar ertu nú? í Smáralind
annað kvöld, hefur borist fjöldinn allur af skila-
boðum frá Austur-Evrópu í gegnum Myspace-síðu
sína. Segir sagan að skilaboðum frá útgáfu- og
dreifingarfyrirtækjum rigni hreinlega yfir hljóm-
sveitina. Óttarr Proppé sagðist sigurviss í samtali
við Vísi í gær, en við spyrjum að leikslokum. afb
„Ég er kominn með réttinn á
Blues Brothers ásamt félaga mín-
um í Bretlandi,“ segir athafnamað-
urinn Óskar Eiríksson.
24 stundir sögðu nýverið frá æv-
intýrum Óskars í Hollywood þar
sem hann setur nú upp sýninguna
Sexy Laundry. Nú hefur Óskar
tryggt sér réttinn á leikritinu um
blúsbræðurna sem Dan Aykroyd
og John Belushi gerðu ódauðlega
snemma á níunda áratugnum. Be-
lushi lést árið 1982, en Akroyd og
ekkja Belushi framseldu réttinn á
Blues Brothers-nafninu til Óskars
fyrir öll markaðssvæði heims nema
Ameríku.
Á Íslandi í sumar?
„Við erum búnir að taka til okk-
ar allt sem heitir Blues Brothers,“
segir Óskar. „Það er ekki hægt að
gera neitt undir nafni Blues Brot-
hers nema tala við okkur.“ Hann
bætir við að Dan Aykroyd sjálfur
muni hjálpa til við markaðs-
setningu leikritsins ásamt ekkju
Johns Belushi.
Óskar segist ætla að reyna að
setja upp leikritið Blues Brothers á
Íslandi í sumar og er þessa dagana í
viðræðum við aðila hér á landi um
framkvæmdina. „Svo verður farið
til Þýska-
lands og
haldið
áfram út
um alla Evr-
ópu með
þetta,“ segir
Óskar.
atli@24stundir.is
Óskar Eiríksson semur við Dan Aykroyd
Tryggir sér réttinn
á Blues Brothers
Blues Brothers Dan Aykroyd og John
Belushi heitinn í hlutverkum sínum.
Óskar Eiríksson Setur upp
leikrit um blúsbræðurna.
Su Doku þrautin snýst um að raða tölunum frá 1-9 lárétt og
lóðrétt í reitina, þannig að hver tala komi ekki nema einu sinni
fyrir í hverri línu, hvort sem er lárétt eða lóðrétt. Sömu tölu má
aukin heldur aðeins nota einu sinni innan hvers níu reita fylkis.
Unnt er að leysa þrautina út frá þeim tölum, sem upp eru gefnar.
Su doku
6 9 7 8 5 3 4 1 2
8 3 2 6 1 4 5 7 9
1 4 5 7 9 2 6 3 8
7 1 3 9 2 5 8 6 4
9 2 6 1 4 8 7 5 3
4 5 8 3 6 7 9 2 1
2 7 9 4 3 6 1 8 5
3 6 1 5 8 9 2 4 7
5 8 4 2 7 1 3 9 6
Eigið þið til viftureim í
Stjörnudreka 2000?
24FÓLK
folk@24stundir.is a
Nei, blaðið er það kannski, en
við stöndum teinrétt og erum
afskaplega ánægð með blaðið.
Illugi, eru allir orðnir skakkir?
Illugi Jökulsson er ritstjóri tímaritsins
Skakki turninn, en haldið var partí í
Nexus í gær í tilefni af útgáfu þess.