24 stundir - 08.04.2008, Blaðsíða 1
24stundirþriðjudagur8. apríl 200871. tölublað 4. árgangur
– Línurnar í lag!
L&L
E N N E M M / S Í A / N M 3 2 1 6 5
Þú leggur línurnar
Létt & laggott!
Mikið úrval notaðra bíla á góðum kjörum!
Sturla Jónsson flutningabílstjóri segir
að stjórnvöldum sé sama um hátt
eldsneytisverð og ætli að bíða mót-
mælin af sér á meðan lagt er allt kapp
á að bjarga bönkunum á kostnað
almennings.
Bönkunum bjargað
VINNUVÉLAR»24
Nú er tími til að laga tré og runna, eins
og kemur fram í pistli Hafsteins Haf-
liðasonar garðyrkufræðings. „Flesta
runna þarf að grisja til að halda þeim í
kjörstærð og til að þeir endurnýi sig
reglulega.“
Grisja þarf runna
GARÐURINN»36
40% verðmunur
á ljósaperunni
NEYTENDAVAKTIN »4
Deilur standa um galisíska út-
gáfu bókarinnar „Undarlegt
háttalag hunds um nótt“.
Spænskur þýðandi bók-
arinnar var rekinn vegna þess
að hún valdi orð í kvenkyni
hvenær sem færi gafst. Vildi
hún grafa undan kynbundn-
um staðalmyndum með því að
forðast karlkynsþýðingar á
kynhlutlausum orðum.
„Þegar ekki er hægt að sjá kyn
orðs á ensku þarf þýðandi að
velja það,“ segir þýðandinn
Maria Reimondez. aij
Þýðandi skipt-
ir um kyn
GENGI GJALDMIÐLA
SALA %
USD 72,06 -2,62
GBP 143,38 -2,91
DKK 15,18 -2,76
JPY 0,70 -3,20
EUR 113,26 -2,75
GENGISVÍSITALA 145,58 -2,75
ÚRVALSVÍSITALA 5.392,58 1,70
4
3
-3
-1 0
VEÐRIÐ Í DAG »2
Eftir Ingibjörgu B. Sveinsdóttur
ingibjorg@24stundir.is
Aðsóknin vegna átröskunar, það er búlimíu, anor-
exíu og jafnvel ofþyngdar, eykst jafnt og þétt á geð-
deild Landspítalans. Þau tvö ár sem þar hefur
starfað formlegt átröskunarteymi hafa tilfellin ver-
ið um 100 á ári. Í hópi þeirra sem leita sér að-
stoðar eru konur sem í stífri kaloríutalningu
sleppa máltíðum til að geta fremur drukkið áfengi.
„Við fáum um 10 tilvísanir á mánuði og þá er
eingöngu um að ræða fullorðna sjúklinga,“ segir
Guðlaug Þorsteinsdóttir, geðlæknir og teymis-
stjóri átröskunarteymisins á geðdeildinni.
Þar er aðeins sinnt hluta þeirra sem glíma við
átröskun að því er Guðlaug bendir á. „Það er
góð fagleg þjónusta úti í bæ hjá sálfræðingum
og læknum. Svo sinnir barna- og unglingageð-
deildin þeim sem eru yngri en 18 ára.“
Guðrún Bryndís Guðmundsdóttir, yfirlæknir
á BUGL, segir tilfellin þar vegna átröskunar hafa
verið 20 til 25 á ári. „Meirihlutinn er stelpur og
sú yngsta var 8 ára. Batahorfurnar eru betri hjá
börnum og unglingum og þess vegna er mik-
ilvægt að þetta greinist snemma.“
Stórhættuleg „drunkorexia“
Guðrún segir ástæður sjúkdómsins yfirleitt
samsettar. „Þetta geta verið umhverfisþættir,
þjóðfélagslegir þættir, það er þrýstingur um
ákveðið útlit og áhrif fjölmiðla, auk þátta í nánara
umhverfi viðkomandi. Átröskun er í byrjun oft
bjargráð. Viðkomandi eru að reyna að hafa hemil
á tilfinningum sínum en þegar þær eldast geta
einkennin til dæmis komið þannig fram að þær
sleppa því að borða til að geta fengið sér í glas.“
Sú tegund átröskunar, sem kölluð er
„drunkorexia“, fer vaxandi erlendis og hefur
prófessorinn Janet Treasure, sem stýrir átrösk-
unardeild við Institute of Psychiatry í London,
sagt hana stórhættulega, að því er segir á frétta-
vef The Telegraph. „Stúlkurnar fá enga næringu
úr kaloríunum úr áfenginu auk þess sem þær
verða mjög drukknar,“ segir prófessorinn.
Guðlaug Þorsteinsdóttir segir misnotkun á
áfengi og öðrum fíkniefnum algengan fylgifisk
átraskana. „Hitaeiningar úr áfengi og áfengis-
víma deyfa um stund matarfíkn. En vandinn
magnast þegar upp er staðið. Áfengi er sérlega
óheppilegt fyrir þá sem eiga við geðræn vanda-
mál að stríða og borða lítið.“
Guðlaug segir örugglega eitthvað um það að
ungar konur telji sig eiga innstæðu fyrir því að
fá sér í glas að kvöldi sleppi þær máltíð yfir dag-
inn. „Sumar eru helteknar af því að reikna út
næringarþörfina fyrir daginn. En þær fá enga
næringu úr hitaeiningum úr áfengi.“
Áfengi í stað matar
Konur telja kaloríur og sleppa að borða til að geta fengið sér í glas að kvöldi Á annað
hundrað leita árlega til Landspítalans vegna átröskunar Yngsti sjúklingurinn átta ára
➤ Lystarstol er annað nafn yfir átrösk-unarsjúkdóminn anorexíu.
➤ Lotugræðgi er annað nafn yfir átrösk-unarsjúkdómin búlímíu.
ÁTRÖSKUN
„Öll lönd þurfa að sjálfsögðu að leggja miklu meira af mörkum. Ég skammast mín fyrir að segja ykkur að gera
betur þegar mitt eigið land gerir miklu minna en það ætti að gera og getur gert. Þið sýnið nú þegar gott fordæmi
með mikilli notkun á endurnýjanlegum orkugjöfum en þrátt fyrir það þá þurfa öll lönd að gera betur,“ sagði Al
Gore m.a. í samtali við blaðamenn á Bessastöðum í gærkvöld en þar hitti hann Ólaf Ragnar Grímsson,
forseta Íslands. Gore heldur fyrirlestur um loftslagsmál í Háskólabíói í dag.
Öll lönd leggi meira af mörkum
24stundir/Ómar
„Ég skammast mín fyrir að segja ykkur að gera betur“
»6
Nýr vegur sem stendur til að leggja
í stað Gjábakkavegar, svokallaður
Lyngdalsheiðarvegur, verður mun
öruggari en nýr vegur í vegstæði
gamla vegarins gæti orðið,
að mati Vegagerðarinnar.
Lyngdalsheiðar-
vegur öruggari
»2
Minnsti háskóli landsins, Hólaskóli,
stendur á tímamótum. Stefnt er að
fjölgun nemenda úr 200 í 300 fyrir
árið 2010. Menntamálaráðherra hef-
ur hreyft hugmyndum um breytt
rekstrarform en engin
skólagjöld eru á Hólum.
Lítill háskóli
í mikilli sókn
»14 »12