24 stundir


24 stundir - 08.04.2008, Qupperneq 2

24 stundir - 08.04.2008, Qupperneq 2
2 ÞRIÐJUDAGUR 8. APRÍL 2008 24stundir Tökum við umsóknum núna Kynntu þér námið á www.hr.is H V ÍT A H Ú S IÐ /S ÍA – 0 8 -0 6 0 8 VÍÐA UM HEIM Algarve 20 Amsterdam 7 Alicante 16 Barcelona 12 Berlín 7 Las Palmas 27 Dublin 6 Frankfurt 4 Glasgow 8 Brussel 7 Hamborg 8 Helsinki 8 Kaupmannahöfn 8 London 9 Madrid 18 Mílanó 17 Montreal 5 Lúxemborg 1 New York 6 Nuuk 2 Orlando 19 Osló 3 Genf 7 París 7 Mallorca 17 Stokkhólmur 6 Þórshöfn 4 Norðaustan 8-13 m/s og él, en léttir til suð- vestanlands. Kólnar og vægt frost norðan til. VEÐRIÐ Í DAG 4 3 -3 -1 0 Léttir til Norðaustan 10-15 m/s, en hægari vindur norðaustan til. Snjókoma eða slydda um mestallt land en úrkomulítið á Suðvest- urlandi. Frost 0 til 5 stig en hiti 0 til 4 stig við ströndina sunnan til. VEÐRIÐ Á MORGUN 2 2 -3 -1 0 Snjókoma eða slydda „Það snart mig mjög djúpt að fá þessi verðlaun,“ sagði forseti Ís- lands, Ólafur Ragnar Grímsson, eftir að tilkynnt var að hann hlyti Nehru verðlaunin fyrir árið 2007, en verðlaunin eru æðsta viður- kenning sem Indland veitir. „Ég vona að mér takist á kom- andi árum að reynast verðugur þessara verðlauna. Ég vona líka að þau munu á óbeinan hátt nýtast ís- lensku þjóðinni og styrkja sam- bandið við Indland. Slík viðurkenning í garð forseta lítillar þjóðar getur reynst mikil- væg fyrir landsmenn alla á kom- andi árum og áratugum, enda gleyma Indverjar seint eða aldrei hverjum þeir veita slíkan heiður,“ sagði Ólafur. Mahesh Sachdev, sendiherra Indlands á Íslandi, kynnti ákvörð- unina á Bessastöðum í gær, en for- seti landsins, frú Pratibha Devis- ingh Patil, mun síðar afhenda Ólafi Ragnari verðlaunin við hátíðlega athöfn í forsetahöllinni í Delhi. Í tilkynningu vegna veitingar verðlaunanna er vikið að forystu- störfum Ólafs Ragnars á alþjóða- vettvangi. Sérstaklega er minnst á friðarfrumkvæði sex þjóðarleið- toga sem stóð yfir árin 1984 til 1989, og stofnað var til eftir að þingmannanefnd sem Ólafur Ragnar veitti forystu beitti sér fyrir því að þjóðarleiðtogarnir hæfu málamiðlunarstarf milli Bandaríkj- anna og Sovétríkjanna. hlynur@24stundir.is Forseti Íslands hlýtur æðstu verðlaun sem Indland veitir Nýtist vonandi Íslendingum Forsetinn og sendiherrann Tilkynnt að forseti Íslands hljóti Nehru verðlaunin. Karlmaður á sextugsaldri var úr- skurðaður í gæsluvarðhald og viku- einangrun í Héraðsdómi Reykjavík- ur á fimmtudaginn en hann er grunaður um gróf kynferðisbrot gagnvart tveimur dætrum sínum. Dætur mannsins eru átta og þrettán ára gamlar. Lögregla hóf rannsókn á meint- um brotum mannsins eftir að til- kynning barst frá barnaverndaryfir- völdum. Farið var fram á að maðurinn yrði vistaður í einangrun vegna alvarleika brotanna og rannsóknarhagsmuna, en verið er að rannsaka m.a. hvort maðurinn hafi beitt fleiri börn kyn- ferðislegu ofbeldi. Maðurinn kærði gæsluvarðhalds- úrskurðinn ekki til Hæstaréttar en hann hefur ekki komið við sögu lög- reglu áður. aegir@24stundir.is Karlmaður úrskurðaður í vikueinangrun Grunaður um brot gegn dætrum sínum Vörubílstjórar stóðu fyrir mótmæla- aðgerðum fyrir utan fjármála- og samgönguráðuneytið í gær og hafa boðað frekari aðgerðir. Bílstjórar lokuðu meðal annars Tryggvagötu þar sem forsætisráðherra og utan- ríkisráðherra sátu fund um nýja skýrslu um ímynd Íslands í Lista- safni Reykjavíkur í Hafnarhúsinu. Vörubílstjórar króuðu ráðherrabíl utanríkisráðherra af með bílum sínum að fundi loknum. Sturla Jóns- son, talsmaður mótmælenda, segir vörubílstjóra ekki ætla að hætta að- gerðum sínum fyrr en reglum um hvíldartíma bílstjóra verði breytt og opinberar álögur á eldsneyti lækkaðar. „Þau stöðva okkur uppi á heiði þar sem við komumst ekki á salernið, þannig að ég vorkenni þeim ekki neitt þó bíll þeirra sé fastur um stund.“ Stöðumælavörður sem átti leið hjá Hafnarhúsinu kom stöðumælasekt fyrir á framrúðu ráðherrabílsins og sagði honum hafa verið ólöglega lagt áður en vörubílarnir komu á vettvang. aí Króuðu ráðherrabílinn af Geir H. Haarde forsætisráðherra segir mikilvægt að rasa ekki um ráð fram þegar leitað er lausna á lausa- fjárkreppu bankanna. Í húfi séu miklir hagsmunir og verðmæti í eigu þjóðarinnar. Í samtali við RÚV sagði Geir stjórnvöld vinna hörðum höndum að lausn en ekki væri hægt að greina frá því í hverju hún felst. Unnið að lausn bankakreppu Glitnir hefur ákveðið að draga sig út úr fasteignalánastarfsemi sem starfrækt hefur verið í Lúx- emborg og mun framvegis leggja áherslu á eignastýringu fyrir við- skiptavini bankans á Norð- urlöndum og á alþjóðavísu. Með því að draga úr umsvifum í Lúxemborg gerir Glitnir ráð fyrir að losa fjármuni sem samsvara allt að 100 milljörðum króna og styrkja með því lausafjárstöðu bankans segir í fréttatilkynningu. Þá hefur Ari Daníelsson verið ráðinn nýr framkvæmdastjóri yf- ir starfsemi bankans í Lúx- emborg. aak Glitnir rifar seglin í Lúxemborg Eftir Hlyn Orra Stefánsson hlynur@24stundir.is Nýr vegur sem stendur til að leggja í stað Gjábakkavegar á milli Laug- arvatns og Þingvallavatns, svo kall- aður Lyngdalsheiðarvegur, verður mun öruggari en nýr vegur í veg- stæði gamla vegarins gæti nokkurn tíman orðið. Þetta segir Erna Hreinsdóttir hjá veghönnunardeild Vegagerðarinnar. „Með því að leggja nýjan veg í gömlu veglínuna yrði annars vegar ferðamönnum, og hins vegar námsmönnum við Laugarvatn, sköpuð óþarfa áhætta,“ segir hún. Gjábakkavegur er í 300 metra hæð yfir sjávarmáli. Lyngdalsheið- arvegur verður hins vegar 200 metra yfir sjávarmáli. „Eins og þeir sem keyrt hafa á íslenskum þjóð- vegum vita má búast við mun meiri hálku í 300 metrum yfir sjáv- armáli en í 200 metrum yfir sjáv- armáli.“ Auk þess segir Erna að mun erf- iðara og dýrara sé að leggja veg sem uppfyllir nútíma öryggisstaðla í gömlu veglínuna. Það muni kosta mikið jarðrask og sá vegur myndi aldrei geta borið nema 70 kíló- metra leyfilegan hámarkshraða. Auk þess yrði hann mun hæðóttari og hlykkjóttari en Lyngdalsheiðar- vegur. „Það er því ekki víst að mengun frá bílum sem ækju um hann yrði minni en mengun frá bílum sem aka Lyngdalsheiðarveg, þrátt fyrir lægri hámarkshraða,“ segir Erna, en hámarkshraði á Lyngdalsheið- arvegi verður 90 km á klst. Landvernd hefur lýst yfir áhyggj- um af lagningu nýja vegarins og telur að verið sé að færa umferðina nær hrygningarstöðvum í Þingvall- vatni. Erna segir að nýi vegurinn muni á styttri kafla liggja innan þjóðgarðsins en sá gamli. Auk þess hafi Þingvallanefnd heimild til að hámarka hraðann innan þjóð- garðsins, og banna olíuflutninga innan hans. Mikið hefur einnig verið rætt um hugsanlega niturmengun í Þingvallavatni sem myndi fylgja aukinni umferð um og í nágrenni þjóðgarðsins. Erna segir þó á að mælingar sýni að aðeins lítill hluti niturflæðis um Þingvallvatn stafi af bílaútblæstri og loftmengun, eða 15 tonn af 150. Lyngdalsheiðar- vegur öruggari  Aðeins 10% niturflæðis í Þingvallavatni af völdum bílaútblásturs og loftmengunar  Óþarfa áhætta að laga bara gamla veginn Öruggari Erna Hreins- dóttir segir óþarfa óhættu felast í að nota gömlu veglínuna. ➤ Niturflæði til Þingvallavatns áári er 150 tonn. ➤ Niturmengun í vatninu er alls35 tonn, þar af frá loftmeng- un og bílum 15 tonn, ræktun og skepnuhaldi 5 til 10 tonn, skólpi 5 til 10 tonn og meng- un frá Nesjavallavirkjun 2 tonn. NITURMENGUN STUTT ● Leiðrétt Nafn höfundar féll niður í leikdómi um Skoppu og Skrítlu á barnasíðu í laug- ardagsútgáfu 24 stunda. Höfundurinn er Arndís Þór- arinsdóttir. Beðist er velvirðingar á mistök- unum. ● Leiðrétt Röng mynd birtist með umfjöllun um Sigurberg Sveinsson sem hlaut við- urkenningu sem besti leik- maður 15.-21. umferðar N1 deildarinnar í handknattleik. Myndin var af Gunnari Berg Viktorssyni. Beðist er afsökunar á mynda- brenglinu. Leiðrétt Ritstjórn 24 stunda vill leiðrétta hvaðeina, sem kann að vera missagt í blaðinu. Leiðréttingar birtast að jafnaði á síðu 2.

x

24 stundir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: 24 stundir
https://timarit.is/publication/307

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.