24 stundir - 08.04.2008, Blaðsíða 4
4 ÞRIÐJUDAGUR 8. APRÍL 2008 24stundir
Eftir Þórð Snæ Júlíusson
thordur@24stundir.is
„Það þýddi þá ekki annað en er-
lenda skattlagningu á íslenskan
atvinnurekstur,“ segir Ólafur Eg-
ilsson, stjórnarformaður íslensks
hátækniiðnaðar, um þær hug-
myndir Þórunnar Sveinbjarnar-
dóttur umhverfisráðherra að Ís-
land afsali sér mögulegum
útblásturskvótum í alþjóðlegu
samningaviðræðum sem fram-
undan eru. Íslenskur hátækniiðn-
aður hyggst reisa olíuhreinsistöð
á Vestfjörðum í samstarfi við öfl-
uga erlenda aðila.
Össur Skarphéðinsson iðnað-
arráðherra svaraði fyrirspurn
um olíuhreinsistöðina á Alþingi
í byrjun þessa mánaðar á þann
veg að ljóst væri að losun frá
henni rúmist ekki innan losun-
arheimilda Íslands samkvæmt
Kyoto-bókuninni fyrir árin 2008
til 2012. Því þyrfti annað tveggja
að koma til hjá framkvæmdaað-
ilanum, förgun/nýting koltví-
sýrings eða aðkeypt losunar-
heimild erlendis frá af hálfu
hans.
Yrðu að kaupa erlendan kvóta
Ólafur segir ekki rétt að miða við
Kyoto-tímabilið því það er ekki gert
ráð fyrir að stöðin taki til starfa fyrr en
eftir lok þess. „Umhverfisráðherra hef-
ur kosið að halda því fram að losun frá
olíuhreinsistöð sé þrefalt meiri en
reyndin er, en hins vegar talað um að
Ísland afsali sér þeim kvótum sem
landið hefur möguleika á að fá og að
íslenskum fyrirtækjum verði gert að
kaupa sér kvóta erlendis frá.“
Hann segir verkefnið í góðum
farvegi. „Það kom verkfræðingur
frá samstarfsaðilum okkar, Geo-
stream, hingað í síðasta mánuði og
staðfesti að aðstæður fyrir vestan
væru mjög heppilegar. Þessar upp-
lýsingar hafa gengið inn í fram-
haldsviðræður sem hafa átt sér stað
við væntanlega fjárfesta og þátttak-
endur í byggingu stöðvarinnar.“
Í samstarfi við olíurisa
Fyrirtækið sem íslenskur há-
tækniiðnaður hefur átt í viðræðum
við heitir Katamak-NAFTA og er
dótturfyrirtæki Geostream.
Á meðal helstu samstarfsaðila
þess eru stærstu olíufélög Rússlands,
Gazprom og Lukoil, og vestrænu ol-
íurisarnir Shell og Exxon Mobil. Á
heimasíðu Katamak-Nafta kemur
einnig fram að félagið hafi valið Ís-
lands sem stað fyrir olíuhreinsistöð
vegna þess að hér sé orkukostnaður
afar lágur, landfræðileg staðsetning
landsins henti vel og að hér sé hag-
stætt fjárfestingaumhverfi. Þá er það
talið til kosta að flestar ákvarðanir
vegna framkvæmdarinnar liggi hjá
sveitarstjórnum og ákvörðunarferl-
ið geti því gengið hratt fyrir sig.
Yrði erlend
skattlagning
Ólafur Egilsson telur afsal á útblásturskvótum þýða erlenda
skattlagningu á íslenskan atvinnuveg Ekki rétt að miða við Kyoto
➤ Fyrirhugað er að reisa stöðinaannaðhvort í Arnarfirði eða á
Söndum í Dýrafirði.
➤ Áætlað er að hún myndi getahreinsað allt að 150 þúsund
olíutunnur á dag, eða um átta
tonn af olíu á ári.
➤ Útblástursheimildir hennarsnerta ekki stóriðjukvóta Ís-
lands heldur almennan
kvóta. Íslenskur hátækniiðn-
aður áætlar að útblástur yrði
560 þúsund tonn á ári.
OLÍUHREINSISTÖÐ
Olíuhreinsistöð í Þýska-
landi sem hreinsar um
þremur milljónum tonnum
meira af olíu en fyrirhuguð
stöð á Vestfjörðum.
Það eru fyrst og fremst karlar
sem verða fórnarlömb svindls á
Netinu, að því er kemur fram í
frétt IDG Newsservice. Í fyrra
töpuðu bandarískir neytendur
239 milljónum dollara vegna
netsvindls en árið 2006 var tapið
40 milljónir dollara. Í fréttinni er
vísað til könnunar US Internet
Crime Complain Center IC3 á
rúmlega 200 þúsundum kvört-
unum. Karlar eru í meirihluta
þeirra sem svindlað hefur verið á
og hafa þeir tapað að meðaltali 3
þúsundum dollara hver. ibs
Karlar fórnar-
lömb netsvindls
Neytendasamtökin eru frjáls félagasamtök: stofnuð árið 1953. Þau
verja hag félagsmanna og berjast fyrir hagsmunum neytenda.
Sjá www.ns.is - netfang:ns@ns.is
Kannað var verð á algengum aðalljósaperum fyrir bíla.
Ljósaperan H4, sem er 60/55 W og 12 volta, kostar 595
kr. hjá Bílaáttunni en Max1 selur peruna á 834 kr. sem
er um 40% verðmunur. Olíufélögin bjóða aðstoð við
að skipta um peru án aukagjalds en hjá hinum kostar
það aukalega.
Óheimilt er að vitna í könnunina í auglýsingum.
40% munur á ljósaperunni
Þuríður
Hjartardóttir
NEYTENDAVAKTIN
Ljósapera H4 fyrir bíla, 60/55W - 12 volt
Verslun Verð Verðmunur
Bílaáttan 595
N1 641 7,7 %
Toyota 664 11,6 %
Shell 670 12,6 %
Olís 676 13,6 %
Max1 834 40,2 %
„Karlavígin falla eitt af öðru, er
það ekki það sem við viljum?“ segir
Magnús Sædal Svavarsson, bygg-
ingarfulltrúi Reykjavíkurborgar, en
hann er í forsvari félagsskapar sem
kallast Tjeneste brødrenes orden.
Markmið hans er að efla tengsl
embættismanna innan hverrar
borgar auk þess sem fundað er með
bræðrum af Norðurlöndunum.
„Þetta er orðið nokkuð gamall
félagsskapur, frá 1928. Í upphafi
voru nánast engar konur sem unnu
í þessum bæjarfélögum,“ segir
Magnús um kvenmannsleysið.
„Við erum búnir að vinna að
þessu í mörg ár. Það þurfti að fá
samstöðu yfir alla línuna og hún
náðist í fyrra,“ segir hann aðspurð-
ur um hvort þeim hafi ekki dottið í
hug að fá konur inn fyrr. aak
Tjeneste brødrenes orden tekur inn systur
Konur eru líka
embættismenn
„Við höfum gengið í hvert
hús í þorpinu og viðtök-
urnar hafa verið mjög
góðar. Við höfum ekki
tekið saman fjölda undir-
skriftanna en það lætur
nærri að níu af hverjum
tíu hafi skrifað undir,“
segir Guðmundur Odd-
geirsson sem er á meðal
íbúa í Þorlákshöfn sem
hafa á undaförnum dög-
um safnað undirskriftum í bænum gegn því að fiskþurrkun Lýsis hf.
fái endurnýjað starfsleyfi. Íbúarnir segja mikinn óþef koma frá hausa-
þurrkuninni og að hann rýri lífsgæði þeirra mikið. „Við munum síðan
afhenda heilbrigðisnefnd Suðurlands sem og umhverfisráðherra und-
irskriftirnar,“ segir Guðmundur og bætir við: „Við vonumst til þess að
hlustað verði á sjónarmið okkar íbúanna umfram sjónarmið fyrirtæk-
isins.“ ejg
Vilja losna við vonda lykt
Jóhanna Sigurðardóttir félagsmála-
ráðherra undirritaði í gær reglu-
gerð sem kveður á um hækkun
húsaleigubóta frá og með 1. apríl.
Húsaleigubætur hafa ekki hækkað
frá árinu 2000. Einnig mun ríkið
nú í fyrsta skipti koma að greiðslu
sérstakra húsaleigubóta.
Samkvæmt reglugerðinni hækka
grunnbætur húsaleigubóta um
69%, úr 8.000 krónum í 13.500
krónur, bætur vegna fyrsta barns
hækka um 100%, úr 7.000 krónum
í 14.000 krónur og bætur vegna annars barns hækka um 42%, úr 6.000
krónum í 8.500 krónur. Hámarkshúsaleigubætur hækka þar með um
15.000 krónur eða um 48% og geta hæstar orðið 46.000 krónur í stað
31.000 króna áður. Hækkunin tekur gildi frá og með 1. apríl síðast-
liðnum en húsaleigubætur hækkuðu síðast árið 2000.
Í samkomulagi við Samband sveitarfélaga um hækkun húsaleigubóta
er einnig kveðið á um þátttöku ríkisins í greiðslu sérstakra húsa-
leigubóta, en þær eru greiddar fjölskyldum sem hafa lágar tekjur eða
búa við erfiðar félagslegar aðstæður. Sveitarfélög eru hvött til að taka
upp sérstakar húsaleigubætur og rýmka skilyrði fyrir þeim svo þær nái
til fleiri heimila. Hámarksgreiðsla almennra og sérstakra húsa-
leigubóta gæti þar með orðið 70.000 krónur í stað 50.000 króna áður
að því er fram kemur í tilkynningu. aak
Húsaleigubætur hækka til muna
Polarolje
Selolía, einstök olía
Gott fyrir:
Maga- og þarma starfsemi
Hjarta og æðar
Ónæmiskerfið
Liðina
Polarolían fæst í:
apótekum, Þín verlsun Seljabraut,
heilsuhúsum, Fjarðarkaupum
og Melabúð
Meiri virkni
Hátt hlutfall Omega 3
fitusýrur