24 stundir - 08.04.2008, Qupperneq 6
6 ÞRIÐJUDAGUR 8. APRÍL 2008 24stundir
Matsnefnd eignarnámsbóta hefur úrskurðað að Ak-
ureyrarbær skuli greiða húsgagnaversluninni Svefni og
heilsu tæpar 218 milljónir króna í eignarnámsbætur
vegna eignarnáms bæjarins á fasteignum verslunar-
innar á Gleráreyrum. Þá greiði bærinn versluninni 2,3
milljónir króna vegna kostnaðar eignarnámsþola við
rekstur málsins.
Bæturnar eru töluvert lægri en sú upphæð sem
Svefn og heilsa fór fram á vegna eignarnámsins en
krafa verslunarinnar hljóðaði upp á rúman einn og
hálfan milljarð króna. Verslunin krafðist þess að bæn-
um væri gert að taka allt húsnæði verslunarinnar og
lóðaréttindi eignarnámi en ekki hluta þeirra eins og
gert var ráð fyrir í nýju deiliskipulagi. Þá voru verð-
mæti fasteigna og lóðaréttinda verslunarinnar, ásamt
kostnaði við flutning og standsetningu á nýju versl-
unarhúsnæði, metin á rúman 1,5 milljarð króna.
Matsnefnd eignarnámsbóta féllst ekki á kröfu eign-
arnámsþola að Akureyrarbæ bæri að taka allar eignir
Svefns og heilsu eignarnámi og taldi að rekstur versl-
unarinnar myndi ekki raskast vegna eignarnámsins.
Verslunin hefur ekki ákveðið hvort hún muni una nið-
urstöðu matsnefndarinnar. aegir@24stundir.is
Svefn og heilsa vildi 1,5 milljarða í bætur frá Akureyrarbæ
Bærinn greiði 220 milljónir
24stundir/Ægir
Reiturinn umdeildi Ný viðbygging Glerártorgs rís á reitnum
umdeilda á Gleráreyrum.
Eftir Björgu Evu Erlendsdóttur
beva@24stundir.is
Al Gore, handhafi friðarverðlauna
Nóbels og fyrrverandi varaforseti
Bandaríkjanna, hreif með sér fullan
sal í Norðurlandahúsinu í Þórshöfn
í Færeyjum í gær, Hann var aðal-
ræðumaðurinn á loftslagsráðstefn-
unni, „Trans Atlantic Climate
Conference,“ sem Færeyingar halda
með tilstyrk NORA, NorðurAtl-
antshafssamstarfsins.
Al Gore málaði framtíð mann-
kyns dökkum litum ef ekkert yrði
að gert. Loftslagsflóttamennirnir
voru aðeins hluti af þeirri nöturlegu
heimsmynd. „Miðað við hækkun
sjávarborðs um sex metra verða
þeir 450 milljónir. Þá þarf að reikna
landakort heimsins upp á nýtt, “
sagði Al Gore.
Varaforsetinn fyrrverandi hélt
langa ræðu fyrir fullu húsi og var
henni vel tekið, þótt ýmsir við-
staddir töluðu um pólitíska leiksýn-
ingu frekar en fræðilegan fyrirlest-
ur. Gore ræddi áhrif
loftslagsbreytinga og nauðsyn þess
að snúa pólitík heimsins. „Pólitíkin
er endurnýjanleg auðlind, “ sagði Al
Gore og átti líklega við að hægt væri
að endurnýja stjórnmálamenn sem
ekki gripu til þeirra aðgerða sem
þyrfti. Al Gore telur samfélög
heimsins víða vera að komast á það
stig að þrýstingur grasrótarinnar
þvingi stjórnmálamenn til að vinna
hratt og af alvöru gegn loftslags-
breytingum. „Skófar mannkyns á
jörðinni hefur dýpkað hratt.“
Færeyingar taka frumkvæði
Fjölmargir þekktir norrænir
fræðimenn og stjórnmálamenn
taka þátt í loftslagsráðstefnunni,
sem setur mikinn svip á Þórshöfn
nú í byrjun vikunnar. Helena Dam
á Neystabö, dóms- og umhverfis-
ráðherra Færeyja, segir umræðuna
um loftslagsmálin hafa fengið byr
undir báða vængi í tengslum við
komu Al Gores og félaga til eyjanna.
„Ég hef með gleði fylgst með fær-
eyskum fjölmiðlum, sem varla hafa
fjallað um neitt annað en umhverf-
is-, orku -og loftslagsmál í tvær vik-
ur,“ sagði Helena Dam Neystabö á
ráðstefnunni. Einar K. Guðfinnsson
sjávarútvegsráðherra talaði um
sjálfbærar fiskveiðar. „Ég var beð-
inn um það en ráðstefnan sýnir að
Færeyingar vilja taka frumkvæði í
umræðunni.“
Stórleikur í Þórshöfn
„Loftslagsflóttamennirnir“ gætu orðið nærri hálfur milljarður „Eru menn virkilega
hræddari við hryðjuverk?“ spyr Al Gore, sem átti sviðið í Norðurlandahúsinu í Færeyjum
Íslandsfarar Al Gore og
Einar Guðfinnsson héldu
til Íslands eftir ræðu Go-
res í Þórshöfn.
➤ Færeyingar vilja taka þátt íumræðum um loftslagsbreyt-
ingar þótt losun þeirra sjálfra
sé með því meira sem þekkist
miðað við höfðatölu.
➤ Stór floti og fátt fólk á nokkr-um eyjum langt úti í reginhafi
skýrir stöðuna en Færeyingar
hafa mörg áform um úrbæt-
ur.
STAÐAN Í FÆREYJUM
Sýni af myglusveppi voru tekin
úr nemendaíbúð á Vallarheiði á
Keili hinn 28. mars síðastliðinn og
send til rannsóknar á bandarísku
rannsóknarstofunni EMLab. „Það
var ósk íbúa að sýni yrðu tekin svo
við urðum við því. Ráðgjafi hjá
Húsi og heilsu ráðlagði svo að sýn-
in yrðu send til þessarar stofu,“
segir Runólfur Ágústsson, fram-
kvæmdastjóri Keilis.
Niðurstöður bárust Keili um
helgina. Greindust tvær tegundir
myglusvepps í íbúðinni og er hvor-
ug hættuleg, að sögn Runólfs.
Afsökunarbeiðni
Myglusveppir í námsmanna-
íbúðum á Keilissvæðinu hafa verið
til umfjöllunar í 24 stundum. Galli
í einangrun, sem veldur sveppa-
gróðri, hefur komið upp í 30 íbúð-
um af 500. Of geyst var farið í frétt í
blaðinu sl. föstudag þegar haft var
eftir ónafngreindum viðmælend-
um að barn á Keilissvæðinu hefði
verið flutt á sjúkrahús vegna
myglusvepps. Enginn fótur reynd-
ist fyrir sögunni og biður ritstjórn
24 stunda hlutaðeigandi afsökunar.
Hættulaust Myglusveppir í
námsmannaíbúðum eru ekki
hættulegir, að mati rannsókn-
arstofu í Bandaríkjunum.
Myglusveppir í íbúðum á Keilissvæðinu
Sveppategundirn-
ar ekki hættulegar
Rannsókn á lögmæti pókermóts
sem haldið var fyrir tæpum tíu
mánuðum síðan er enn ekki lokið.
Karl Ingi Vilbergsson, fulltrúi hjá
lögreglu höfuðborgarsvæðisins,
segir tafirnar vera vegna anna við
rannsókn annarra mála. Hann
vonast til þess að niðurstaða fáist í
málið innan skammst.
Umrætt pókermót var haldið 16.
júní síðastliðinn og mættu yfir 150
manns til leiks. Fyrirkomulagið var
með þeim hætti að þátttakendur
greiddu þáttökugjald sem átti síðan
að renna óskipt í verðlaunafé, sem
var um 600 þúsund krónur. Lög-
reglan lagði hald á verðlaunaféð,
borð, spilapeninga, spil og far-
tölvu. Mótshaldararnir, eigendur
vefverslunarinnar Gismo.is, hafa
enn ekki fengið munina aftur. þsj
Tíu mánuðir síðan pókermót var stöðvað
Enn til rannsóknar
hjá lögreglunni
ÍS
L
E
N
S
K
A
/S
IA
.I
S
/O
R
K
4
02
96
0
4/
08
Ókeypis áfylling á bílinn alla daga!
Eigendur rafbíla fá lykil að orkupóstum í afgreiðslu Orkuveitu Reykjavíkur að Bæjarhálsi 1
og bílastæðaskífur hjá Reykjavíkurborg í Borgartúni 10-12.
or.is • reykjavik.isÓkeypis hleðsla: Bankastræti • Kringlan • Smáralind
stundir
Skeifan 11d • 108 Reykjavík
sími 517 6460
www.belladonna.is
Opið mán.-fös. 11-18, lau. 11-15
Vönduð ítölsk leðurstígvél
fyrir breiða kálfa
(vídd 44 - 48cm)
skóstærðir 38 - 43
Léttar
yfirhafnir
Stærðir 42-58