24 stundir - 08.04.2008, Blaðsíða 8

24 stundir - 08.04.2008, Blaðsíða 8
Eftir Atla Ísleifsson atlii@24stundir.is Nauðsynlegt er að koma fleiri stoð- um undir ímynd Íslands, þar sem náttúran dugi ekki ein og sér. Þetta er niðurstaða nefndar sem for- sætisráðherra skipaði í nóvember til að fjalla um ímynd Íslands. Svava Grönfeldt, rektor Háskól- ans í Reykjavík og formaður nefndarinnar, segir að ímynd þjóða skipti þær gríðarlega miklu máli. Reynslan sýni okkur að ímynd geti til dæmis breytt gengi gjaldmiðla. „Líkt og aðrar þjóðir verðum við að byggja á fleiri stoðum. Ímynd Íslands er smá og veikburða. Það hafa verið gerðar úttektir, þó ekki fullkomnar, sem sýna að ímynd Ís- land er að mestu leyti óþekkt stærð og þar af leiðandi einsleit og við- kvæm. Náttúran er það sem ímynd landsins byggir á fyrst og fremst en ekki fólki, atvinnulífi, þekkingu eða öðru sem aðrar þjóðir byggja sína ímynd iðulega á.“ Kraftur, frelsi og friður Í skýrslunni leggur nefndin til að ímyndaruppbygging Íslands miði að því að skapa jákvæða og sterka ímynd af fólki, atvinnulífi, menn- ingu sem og náttúru. Kjarninn í ímynd landsins verði kraftur, frelsi og friður. Nefndin telur þetta vera lykilorð sem farsælt sé að byggja á jákvæða og sanna ímynd af bæði landi og þjóð. Til viðbótar sé nauð- synlegt að draga fram sérkenni sem aðgreini okkur frá öðrum. Svava segir allar þær þjóðir sem láti sér annt um ímynd sína, verji umtalsverðu fé og fyrirhöfn til uppbyggingar og varðveislu henn- ar. Þær þjóðir séu eindregið þeirrar skoðunar að slík fjárfesting marg- borgi sig. Promote Iceland Í tillögum nefndarinnar kemur fram að komið verði á nýjum vett- vangi, Promote Iceland, þar sem aðilar úr útflutningi, ferðaþjón- ustu, fjármálastarfsemi, menning- arlífi og þekkingariðnaði kæmu til samstarfs við hið opinbera. Promote Iceland myndi þannig bera ábyrgð á og samræma ímynd- arstarf fyrir Íslands hönd og bregð- ast við neikvæðri umfjöllun sem snertir íslenska hagsmuni. Náttúran dugar ekki ein og sér  Ímynd Íslands í útlöndum almennt jákvæð en viðkvæm og eins- leit  Vinnuhópur fjögurra ráðuneyta mun fylgja skýrslunni eftir ➤ Forsætisráðherra sagðinefndarstarfið hafa verið ólaunað. ➤ Ríkisstjórnin hefur ákveðiðað vinnuhópur fjögurra ráðu- neyta muni fylgja skýrslunni og útfæra tillögur. ÍMYND ÍSLANDS Árvakur/GolliÍmynd Íslands Nefndin segir náttúrulegan kraft vera sérkenni Íslands. 8 ÞRIÐJUDAGUR 8. APRÍL 2008 24stundir Talið er fullvíst að um íkveikju hafi verið að ræða þegar eldur kom upp í hesthúsi í Hafnarfirði í fyrri- nótt. Átta hestum var bjargað úr brennandi húsinu og fengu nokkrir hestanna súrefni vegna reykeitrunar, þar á meðal hinn landsþekkti gæðingur og heiðursverð- launahestur Kraflar frá Miðsitju en hann var meðal eðalhrossanna í hópnum. Eldur logaði í kaffistofu og hnakkageymslu þegar slökkviliðið kom á staðinn en talsverður reykur barst yfir í hesthúsið sjálft. Gera má ráð fyrir að hestarnir hafi verið mjög skelkaðir áður en hjálp barst því að rúður brotnuðu og snarkað hefur í eldsmatnum hin- um megin við vegginn. Lögreglan í Hafnarfirði vinnur nú í samvinnu við slökkviliðið að rannsókn málsins en af ummerkjum að dæma er talið fullvíst að um íkveikju hafi verið að ræða. Tvennt er talið hafa valdið úrslitum um að ekki fór verr, annars vegar skjót viðbrögð slökkviliðsmanna og hins vegar sérlega góður frágangur í húsinu og öfl- ugar eldvarnir. mbl.is Talið að um íkveikju hafi verið að ræða í hesthúsi í Hafnarfirði Hestar fengu reykeitrun Bjargaðist Dýralæknir skoðar hest eftir brunann í hesthúsinu. Engin vísindaleg gögn sýna fram á að silfurfyllingar í tönnum, eða amalgam, orsaki óþægindi eins og höfuðverk eða þreytu. Þetta er nið- urstaða þýsks rannsóknarhóps sem fylgdist með 5.000 sjúklingum á tólf ára tímabili. Niðurstaðan er að silfrið er almennt ekki skaðlegt. Sigurjón Benediktsson, formað- ur Tannlæknafélagsins, segir að deilur hafi lengi staðið um silfrið á Norðurlöndum. „Til stendur að banna notkun þess í Danmörku, Noregi og Svíþjóð. Þetta er þó enn notað hér og flestir yfir tvítugt eru með silfur í tönnunum.“ Af um 5.000 þátttakendum sögðust um 300 þjást af kvillum svo sem höfuðverk, kvíða og þarmavandamálum, sem þeir röktu til silfursins. Rannsóknin leiddi hins vegar í ljós að ekki væri hægt að kenna silfrinu um vanda- málin. atlii@24stundir.is Ný þýsk rannsókn á tannheilsu fólks Silfur í tönnum almennt skaðlaust Fylling Flestir yfir tvítugt eru með amal- gam í tönnum. Lýst eftir vitnum Bílar rispaðir við Fossvogsskóla Þrír starfsmenn Fossvogsskóla urðu fyrir þeirri óskemmtilegu reynslu 27. mars síðastliðinn að bílar þeirra voru rispaðir á bíla- stæði skólans. Einhverjir óprúttnir aðilar hafa „lyklað“ bíl- ana sem kallað er en eins og sjá má á meðfylgjandi mynd eru þeir líklega ekki mjög vel að sér í enskri tungu. Þeir sem hafa upp- lýsingar um málið eru beðnir að hafa samband við lögregluna. fr

x

24 stundir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: 24 stundir
https://timarit.is/publication/307

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.