24 stundir - 08.04.2008, Blaðsíða 10

24 stundir - 08.04.2008, Blaðsíða 10
10 ÞRIÐJUDAGUR 8. APRÍL 2008 24stundir Eftir Andrés Inga Jónsson andresingi@24stundir.is För Ólympíukyndilsins um heim- inn hefur verið brokkgeng það sem af er. Meira hefur borið á mótmælum gegn ástandi mann- réttindamála í Kína og framferði kínverskra stjórnvalda í Tíbet en Ólympíuandanum. Fjöldi mót- mælenda tók á móti kyndlinum í London og París og útlit er fyrir að eins verði á öðrum viðkomu- stöðum kyndilberanna. Tugir handteknir í London Á leið Ólympíukyndilsins í gegnum London lenti lögreglu saman við hundruð mótmælenda á sunnudag. Að minnsta kosti 35 manns þurftu að gista fanga- geymslur. Þótt 2.000 lögreglumenn hafi verið að störfum munaði litlu að einn mótmælendanna kæmist að kyndlinum. Stuttu síðar beindu tveir menn bunu úr slökkvitæki að kyndlinum. Þegar hersingin mætti þunga- miðju mótmælanna gripu skipu- leggjendur til þess ráðs að koma kyndilberanum í skjól í strætis- vagni og keyra framhjá þvögunni. Slökkt til öryggis í París Gríðarlegar öryggisráðstafanir biðu kyndilsins við komuna til Parísar í gærmorgun. Um 3.000 lögreglumenn fylgdu íþrótta- mönnunum, en áætlað er að 500 manns hafi tekið þátt í mótmæl- unum. Af öryggisástæðum var í þrígang slökkt á kyndlinum þegar mótmælendur sóttu að honum. Að endingu var kyndlinum kom- ið fyrir í strætisvagni, líkt og í London. Búist er við frekari mótmælum, meðal annars í San Fransisco, þangað sem kyndillinn fer næst. Logi slökktur  Mótmæli gegn Kína setja stein í götu Ólympíukyndils © GRAPHIC NEWS 1 2 3 4 5 6 2. apríl 3. 5. 6. 7. 9. Almaty Istanbul St. Pétursborg London París San Francisco 13. 11. 14. 16. 17. 19. Dar es Salaam Búenos Aíres Múskat Islamabad Nýja-Delí Bangkok 8 7 9 10 11 12 21. 22. 24. 26. 27. 28. 29. Kúala Lúmpúr Djakarta Canberra Nagano Pjongjang Seúl Ho Chi Minh-borg 13 14 15 16 17 18 19 Alþjóðlegt boðhlaup: 137.000 kílómetra leiðangur frá Grikklandi til Peking 25. mars, Ólympía: Stuðningsmenn Tíbets mótmæla þegar loginn er tendraður 6. apríl, London: Lögregla á fullt í fangi með að halda um 1.000 mótmælendum frá kyndlinum 31. mars, Peking: Heimsreisa kyndilsins hefst 7. apríl, París: Lögregla stöðvar hlaupið og slekkur tímabundið á Ólympíukyndlinum 9. apríl, San Francisco: Aðeins verður hlaupið í 90 mín. 19. apríl, Nýja-Delí: Hlaupaleiðin stytt úr 9 km í 3 km. Fyrirliði landsliðs Indverja í knattspyrnu, Bhaichung Bhutia, neitar að bera kyndilinn 24. apríl, Canberra: Skipuleggjendur hlaupsins búa sig undir mótmæli stuðningsmanna Tíbets HLAUP MEÐ ÓLYMPÍUELDINN KYNDIR UNDIR MÓTMÆLUM ➤ Ólympíukyndillinn fer víðaum heim áður en hann lýkur för sinni á Ólympíu- leikvanginum í Peking. ➤ Mótmæli hafa verið boðuðvíðs vegar á leiðinni. VÍÐFÖRULL KYNDILL Umdeildasta styttan á sýningu austurríska listamannsins Alfred Hrdlicka hefur verið fjarlægð úr sýningarsal dómkirkjunnar í Vín- arborg. Sýnir styttan Jesús og læri- sveina hans í því sem listamaður- inn lýsir sem „samkynhneigðu kynsvalli.“ Sýning Hrdlicka ber yfirskriftina „Trú, hold og máttur“ og er ætlað að líta yfir feril listamannsins sem varð áttræður á dögunum. Erkibiskup Vínar, Christoph Schönborn kardínáli, lét safnið fjarlægja styttuna, sem ætlað er að sýna síðustu kvöldmáltíðina í spé- spegli, eftir að samtök kaþólskra hreyfðu mótmælum. Kardínálinn sagði þetta ekki vera ritskoðun, „heldur spurningu um að sýna tilfinningum þeirra trúuðu einstaklinga sem gætu móðgast virðingu.“ aij Umdeild listasýning í Vínarborg Síðasta kvöldmáltíðin tekin úr umferð Rannsókn bandarískra vísinda- manna hefur leitt í ljós að ung- lingar sem hafa sjónvarp í svefn- herbergjum sínum borði óhollari mat, stundi minni líkamsrækt og fái lægri einkunnir en sjónvarpslausir jafnaldrar þeirra. Könnunin tók til hóps unglinga frá 15 til 18 ára, sem vísindamönnunum þykir lítið hafa ver- ið skoðaður með tilliti til áhorfsvenja. „Rannsóknin sýnir að ákveðnir kostir geta fylgt því að leyfa barninu sínu ekki að hafa sjón- varp inni hjá sér,“ segir Daheia Barr-Anderson. „Foreldrar ættu að forðast að færa gömul sjón- vörp í barnaherbergin þegar ný tæki eru keypt.“ aij Unglingar rannsakaðir Neikvæð áhrif imbakassans Yfirvöld í Tórínó hafa lagt sláttu- vélum í tveimur almennings- görðum bæjarins. Næstu tvo mánuðina mun sauðfé halda grasvextinum þar í skefjum. Hjarðirnar telja um 700 fjár, en þar á meðal eru 16 nýborin lömb. Vonast yfirvöld til spara nærri 3,5 milljónir króna með þessu. Tilraunir voru einnig gerðar með kýr í fyrrasumar. Þær skiluðu of mikilli mykju frá sér til að fram- hald yrði á starfi þeirra. aij Vorverkin í Tórínó Sauðfé tekur yfir sláttinn Mikið hefur verið rætt um af- stöðu múslíma til Vesturlanda síð- ustu árin, en minna verið rannsak- að. Gallup gaf í gær út bók þar sem niðurstöður viðtala fyrirtækisins við 50.000 múslíma frá 35 löndum voru kynntar. „Árekstrar á milli múslíma og Vesturlanda eru fjarri því að vera óhjákvæmilegir,“ segir Dalia Maga- hed, einn höfunda bókarinnar. „Afstaðan er frekar spurning um stefnu en grundvallarskoðanir. Þótt mikið sé um andstöðu við Banda- ríkjunum og Bretlandi, þá segjast múslímar um allan heim í raun dást að mörgu því sem Vesturlönd standa fyrir.“ Þar á meðal eru tján- ingafrelsi, lýðræði og tæknistig. aij Gallup kannar hug múslíma Frekar jákvæðir í garð Vesturlanda Fáðu nýja spennukilju senda heim sex sinnum á ári! 645 kr!Fyrsta kiljan á aðeins Hrafninn er nýr kiljuklúbbur hjá Eddu útgáfu sem sendir félögum nýjar spennusögur sex sinnum á ári. Nýir félagar geta valið milli tveggja frábærra spennusagna, Ösku eftir Yrsu Sigurðardóttur eða Sjortarans eftir James Patterson, og greiða aðeins 645 kr. fyrir kiljuna að viðbættu sendingargjaldi. Auk þess geta nýir félagar Hrafnsins valið eina af sex öðrum kiljum að gjöf! Veldu aðra kiljuna á aðeins 645 kr. Glæný kilja! Glæný kilja! ... og önnur að gjöf! Hildur Heimisdóttir, Fréttablaðinu Skráningar á edda.is eða í síma 522-2100 Nýir félagar í Hrafninum geta að auki valið sér eina af þessum 6 frábæru spennusögum frítt með. S P E N N U K I L J U R alm . verð þú greiðir Ný spennukilja 1.9 80 kr. 645 kr. Bók að gjöf 1.8 80 kr. 0 kr. Sendingargjald 200 kr. Samtals 3.8 60 kr. 845 kr. Þú sparar 3.015 kr. Inngöngutilboð: 170 fm verslunarhús til sölu við Miðvang í Hafnarfirði. Eign með mikla möguleika og góð áhvílandi langtímalán í erlendri myntkörfu yen/fr.franki. Verslunarhúsnæðið er í Miðvangi 41 við hliðina á Samkaups- verslun. Innréttað sem söluturn og vídeóleiga ásamt öllum innréttingum og tækjum. Flott húsnæði með kerfislofti og flísalögðum gólfum. Loftræstikerfi, flott lýsing. WC, eldhús, lager, skrifstofa og salur. Góðir gluggar á framhlið. Verðhugmynd á allan pakkan er kr 45 milj áhv. lán ca 27 milj. Skipti möguleg. Hafið samband við Jóhannes í s-6151226 eða á skrifstofu Eignavers í s-5532222 Eggert Sk. Jóhannesson, Jóhannes Eggertsson, Ólafur Thoroddsen hdl. Fasteignasalan Eignaver Sími 553-2222 • eignaver.is Síðumúli 13 • 108 Reykjavík Til sölu eða leigu – Laust strax 170 fm verslunarhúsnæði

x

24 stundir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: 24 stundir
https://timarit.is/publication/307

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.