24 stundir - 08.04.2008, Side 12

24 stundir - 08.04.2008, Side 12
12 ÞRIÐJUDAGUR 8. APRÍL 2008 24stundir Sérfræðingar í saltfiski 466 1016 - Útvatnaður saltfiskur án beina til suðu - Sérútv. saltfiskur án beina til steikingar - Ýsa, þorskur, gellur, kinnfiskur, rækjur - Einnig fjölbreytt úrval tilbúinna rétta www.ektafiskur.is pöntunarsími: frumkvöðlafyrirtæki ársins  - viðurkenning frá matur úr héraði - localfood Opnunartími – Mán.-fös. 11-18, lau. 11-14 Hamraborg 7 Kópavogur Sími 544 4088 www.ynja.is Ný sending af aðhaldsvörum frá Vanity Fair, Queen Latifah notar þessi Verð 5.290 Einnig samfellur og aðhaldsbolir Útsölustaðir: Nana Hólagarði, Esar Húsavík, Smart Vestmannaeyjum, Pex Reyðarfirði, Efnalaug Vopnafjarðar, Heimahornið Stykkishólmi 24stundir Útgáfufélag: Ritstjóri: Fréttastjórar: Ritstjórnarfulltrúi: Árvakur hf. Ólafur Þ. Stephensen Björg Eva Erlendsdóttir Gunnhildur Arna Gunnarsdóttir Þröstur Emilsson Elín Albertsdóttir Auglýsingastjóri: Gylfi Þór Þorsteinsson Ritstjórn & auglýsingar: Hádegismóum 2, 110 Reykjavík Aðalsími: 510 3700 Símbréf á fréttadeild: 510 3701 Símbréf á auglýsingadeild: 510 3711 Netföng: frettir@24stundir.is, auglysingar@24stundir.is, 24stundir@24stundir.is, Prentun: Landsprent ehf. Á tímum eins og nú fara í hönd, þar sem boðaðar eru hækkanir á marg- víslegri vöru og þjónustu, skiptir virkt aðhald samkeppnisyfirvalda með viðskiptaháttum á markaðnum neytendur miklu máli. Það er þess vegna traustvekjandi að Samkeppniseftirlitið hefur sent frá sér tilkynningu og varað forsvarsmenn fyrirtækja og samtaka fyrirtækja við að stofnunin fylgist með því að opinber umfjöllun af þeirra hálfu um verðhækkanir feli ekki í sér beina eða óbeina hvatningu til verðhækkana. Samkeppniseftirlitið bendir líka fyrirtækjum og neytendum á að hægt sé að koma ábendingum um verðbreytingar á framfæri við eftirlitið á vefnum. Það er sömuleiðis gott að fólk viti af þeim möguleika. Það skiptir auðvitað miklu máli við þessar aðstæður sem endranær að nægilega vel sé búið að Samkeppniseftirlitinu, þannig að afgreiðsla mála þar dragist ekki úr hömlu. Í helgarblaði 24 stunda birtust athyglisverðar upplýsingar um málshraða hjá stofnuninni. Þar kemur m.a. fram að Sam- keppniseftirlitið afgreiddi fleiri mál frá sér en árið á undan og málum sem voru eldri en tveggja ára fækkaði verulega. Engu að síður voru fleiri mál óafgreidd í lok árs 2007 en ári fyrr. Það er gríðarlega mikilvægt að Samkeppniseftirlitið geti unnið málin hratt. Það skiptir máli fyrir neytendur að stofnunin geti gripið snemma inn í, ef grunur leikur á að fyrirtæki brjóti samkeppnislögin. Þótt fyrirtæki séu oft sektuð á endanum fyrir brot á samkeppnislögum sjá neytendur ekkert af þeim peningum; því hefur jafnvel verið haldið fram að fyrirtækin neyðist til að velta sektunum út í verðlagið. Það skiptir sömuleiðis þau fyrirtæki, sem eru til rannsóknar, miklu máli að fá sem fyrst niðurstöðu í rannsókn samkeppnisyfirvalda. Það á ekki sízt við ef fyrirtæki eru ranglega grunuð um brot á samkeppn- islögum. Þau eiga að sjálfsögðu heimtingu á því að hið rétta í málinu sé upplýst sem fyrst. Þess vegna er ástæða til að gefa gaum ummælum Páls Gunnars Pálssonar, forstjóra Samkeppniseftirlits- ins, um að fjölga þurfi enn starfsmönnum hjá stofn- uninni til að flýta rannsókn mála. Það kostar eitthvað en dregur úr þeim kostnaði sem neytendur og at- vinnulíf hafa af brotum á samkeppnislögum. Aðhald sam- keppniseftirlits SÆKTU LEIÐARANN Á WWW.MBL.IS/PODCAST Er skynsamlegt að hafa 10-11 verslunina í Austurstræti opna allan sólarhring- inn? Þessi spurning vaknar í framhaldi af árásinni á af- greiðslumanninn þar um helgina. Það má vel vera að ástæða sé til að hafa ein- hverjar verslanir opnar í 24 tíma. En er endilega víst að slíkar verslanir séu best stað- settar í miðborginni, þar sem næturviðskiptavinir, a.m.k. um helgar, eru margir hverjir kófd- rukknir og útúrdópaðir? Býður slíkt ekki hættunni heim? Guðmundur Magnússon gudmundurmagnusson.blog.is BLOGGARINN Skynsamlegt? Annars virðist Alþingi að hluta til vera ferðaklúbbur. Á tíma int- ernets og fjar- fundarbúnaðar hlýtur að vera hægt að draga úr öllum þessum ferðalögum. Ráð- herrar rík- isstjórnarinnar ganga nú undan með vondu for- dæmi og fljúga á einkaþotum út og suður. Rekstur ríkisins hefur bólgnað út á síðustu árum. Þessi dæmi skipta kannski ekki sköp- um fyrir hann. En við megum ekki gleyma því að fólkið í land- inu þarf að standa undir þessu öllu. Það eru skattpeningar þeirra sem eru notaðir í þetta. Egill Helgason eyjan.is/silfuregils Ferðaklúbbur Nú berast þær fréttir að Geir Haarde og Björgvin G. Sigurðs- son séu farnir til Norður- Svíþjóðar á Norð- urlandafund með einkaþotu, svo þeir missi ekki úr vinnunni! Ég hef skilning á vinnu- tapsrökunum en skyldu þeir gera eitthvert gagn hér heima á þeim tíma sem er sagður sparast við að nota einkaþotuna? Hefðu þeir slegist við verðbólg- una? Nota þeir tímann (vonandi) í þægilegum sætum einkaþot- unnar til að undirbúa aðgerðir til að efla hag heimila landsins í dýr- tíðinni? Ingólfur Ásgeir Jóhannesson ingolfurasgeirjohannesson.blog.is Þotuliðið á ferð Ólafur Þ. Stephensen olafur@24stundir.is Það er vel þekkt að omega-3 fitusýrur, eins og finnast í mestum mæli í sjávar- fangi, hafa áhrif á þroska tauga og heila, eða uppbygg- ingu miðtaugakerfisins. Þess vegna er ánægjulegt að dagblaðið 24 stundir hafi sl. laugardag birt nið- urstöður rannsóknarhóps við Harvardháskóla sem sýndi að börn kvenna sem borða fisk oftar en tvisvar í viku á meðgöngu hafa mælst með meiri vits- munaþroska en önnur börn. Hér á landi eru gefnar opinberar ráðleggingar um mataræði á meðgöngu þar sem meðal annars er mælt með fiskneyslu að minnsta kosti tvisvar í viku, eins og reyndar er gert fyrir allan almenning. Einnig er hérlendis ráðlagt að taka teskeið af lýsi daglega og þá er átt við þorskalýsi. Í umræddri vísindagrein, sem birtist í American Journal of Epi- demiology, er þess getið að Bandaríkjamenn hafa ver- ið hræddir við mengunarefni sem fylgja sjávarfangi og safnast fyrir í feitum fiski ofarlega í fæðukeðjunni, eins og túnfiski, hákarli, sverðfiski og stórlúðu. Þessi hræðsla er ekki óeðlileg. Rannsóknarstofa í næring- arfræði hefur birt hérlendar niðurstöður um fisk- og lýsisneyslu á meðgöngu, meðal annars í sama vísinda- tímariti og bandaríski hópurinn. Jákvæð heilsufarsleg áhrif sáust af fisk- og lýsisneyslu hérlendis. Hár dag- legur skammtur af lýsi, umfram það sem ráðlagt er, tengdist hins vegar neikvæðum heilsufarsáhrifum eins og háþrýstingi á meðgöngu, einnig þegar tekið var tillit til annarra áhrifaþátta. Algengur fiskur eins og þorskur, ýsa, smálúða, silungur og lax, er hollur matur fyrir barnshafandi konur og aðra. Fisk- og lýs- isneysla hefur minnkað hérlendis og sérstaklega hefur notkun ungra landsmanna á þessum hágæðavörum minnkað alvarlega mikið. Því þarf að breyta og snúa þróuninni við, en fiskur og mátuleg lýsisneysla með omega-3 fitusýrum og D-vítamíni hefur margþætt já- kvæð áhrif á heilsuna. Það er merki- legt að 24 stundir setji umrædda frétt á forsíðu en það er óvenjulegt að nið- urstöður vísindarannsókna séu birtar á þeim vettvangi hér á landi. Höfundur er prófessor í H.Í og formaður Manneldisráðs Merkileg frétt á forsíðu ÁLIT Inga Þórsdóttir ingathor- @landspitali.is

x

24 stundir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: 24 stundir
https://timarit.is/publication/307

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.