24 stundir - 08.04.2008, Síða 13
24stundir ÞRIÐJUDAGUR 8. APRÍL 2008 13
Mörgum hefur fundistfyndið hvernig sumirSamfylk-
ingarmenn reyna af
veikum mætti að
verja einkaþotuflug
Ingibjargar Sól-
rúnar og Geirs
Haarde. Það skýtur
því svolítið skökku við að lesa leið-
ara Marðar Árnasonar á heimsíðu
Samfylkingarinnar. Mörður telur
nefnilega að þetta sé mesta PR-
klúður sögunnar og gagnrýnir að
ekki hafi verið upplýst hversu
mikið einkaþotuferðin hafi kostað
ríkið. „Almenningur á heimtingu
á því að vita um kostnað við þessa
ferð, sem og hverjar þær aðrar sem
farnar eru í hans nafni.
Heiðursmannasamkomulagið
svokallaða er líka alveg á skjön við
nútímaaðferðir við almanna-
tengsl,“ segir Mörður og bendir á
að þetta mál hafi yfirgnæft tíð-
indin af NATO-fundinum í Búk-
arest.
Siv Friðleifsdóttir greinir fráþví á heimasíðu sinni aðhún sé á leið
til útlanda til að sitja
norræna fundi um
hnattvæðingu. Á
meðan mun Samúel
Örn Erlingsson,
fyrrverandi íþrótta-
fréttamaður, sitja á Alþingi. Sam-
úel er að koma nýr inn og verður
gaman að fylgjast með því hvort
íþróttir eigi eftir að koma við sögu
í jómfrúarræðu hans. Varamenn
hafa fengið góðan séns í vetur að
komast á þing því ferðagleði þing-
manna og ráðherra hefur sjaldan
verið jafnmikil og nú.
Össur Skarphéðinsson varstaddur í Jemen í gær.Síðdegis sendi iðn-
aðarráðuneyti hans frá sér tilkynn-
ingu þess efnis að
samningur um
rannsóknir vegna
100 MW jarð-
hitavirkjunar hafi
verið undirritaður
milli rafveitu Jem-
ena og hins umdeilda fyrirtækis
REI. 25 mínútum síðar barst hins
vegar leiðrétt tilkynning þar sem
samningurinn var orðinn að vilja-
yfirlýsingu. Þar gæti hafa spilað
inn í að Kjartan Magnússon,
stjórnarformaður REI, hefur neit-
að að skrifað yrði undir samninga
í ferðinni enda flestir kollegar hans
í borgarstjórnarflokki Sjálfstæð-
isflokks á því REI eigi ekki að eyða
skattpeningum erlendis.
elin@24stundir.is/thordur@24stundir.is
KLIPPT OG SKORIÐ
Hlutfallslega færri háskólamennt-
aðir einstaklingar stunda frum-
kvöðlastarf hér en í þeim löndum
sem við berum okkur saman við.
Þetta hefur mælst í fjölþjóðlegri
rannsókn á frumkvöðlastarfsemi
sem Háskólinn í Reykjavík hefur
tekið þátt í síðan árið 2000. Að vísu
voru einungis 15% starfsmanna í ís-
lensku atvinnulífi með háskólapróf
um aldamót sem var mun lægra
hlutfall en í samanburðarlöndun-
um. Á undanförnum áratug hafa
orðið breytingar á þessu og háskóla-
starfsemi stóreflst með aukinni
áherslu á háskólamenntun og rann-
sóknir, auknu fjármagni ríkis og
einkaaðila og tilkomu háskólalaga
frá 1997 og 2006. Nú er svo komið
að um 22% einstaklinga í atvinnu-
lífinu eru með háskólamenntun og
því líklegt að fleiri háskólamennt-
aðir verði í röðum íslenskra frum-
kvöðla á komandi árum. Á undan-
förnum árum hafa háskólar lagt æ
ríkari áherslu á tengsl við atvinnu-
lífið og þá frumkvöðlastarfsemi sem
skilar sér í uppbyggingu þess.
Áhersla á nýsköpun varðaði t.d. veg-
inn í uppbyggingu HR og kastljós-
inu var beint að frumkvæði og verk-
legri nýsköpunarkennslu með því
markmiði að allir útskrifaðir nemar
úr HR kynnu að búa til fyrirtæki og
skapa störf. Um þessar mundir á sér
stað merkilegt grasrótarstarf í ís-
lenskum háskólum á vegum fyrir-
tækisins Innovit sem í byrjun árs
hrinti af stað frumkvöðlasamkeppni
háskólanema um Gulleggið 2008.
Innovit var stofnað árið 2007 af
nokkrum háskólanemum og hefur
það að meginmarkmiði að auka þátt
háskólamenntaðra einstaklinga í
frumkvöðlastarfsemi á Íslandi og
stuðla að fjölgun sprotafyrirtækja í
þekkingariðnaði. Um 100 hópar
nemenda úr öllum háskólum lands-
ins tilkynntu þátttöku, keppendur
fengu leiðsögn og þróuðu viðskipa-
hugmyndir sínar. Þetta fyrirkomu-
lag keppninnar er að fyrirmynd frá
MIT-háskólanum í Bandaríkjunum.
Alls komust 10 frumkvöðlateymi í
úrslit og á laugardaginn 12. apríl
verður sigurvegurunum afhent
Gulleggið. Marktækur munur
mælist milli velgengni sprotafyrir-
tækja sem fara í gegnum frum-
kvöðlakeppni MIT-háskólans sam-
anborið við önnur fyrirtæki. Því sjá
fjárfestar sér hag í að leggja sprota-
fjármagn í fyrirtækin sem spretta úr
keppninni. Vonandi gerist það einn-
ig í tengslum við Innovit-frum-
kvöðlakeppnina þótt reynslan hér á
landi gefi ekki tilefni til mikillar
bjartsýni því sárlega hefur skort
sprotafjármagn. Þessu þarf að
breyta því áframhaldandi uppbygg-
ing íslensks atvinnulífs veltur á því
að hér takist að skapa umhverfi
þannig að efnileg nýsköpunar- og
sprotafyrirtæki sem byggja á hugviti
og þekkingu laði að sér sprotafjár-
festa sem eru reiðubúnir að taka
áhættu og miðla jafnframt af
reynslu sinni. Lausnin er fólgin í
einkaframtaki. Í Bandaríkjunum er
fjárfesting athafnamanna, svokall-
aðra viðskiptaengla sem búa yfir
þekkingu, reynslu og tengslum,
stærsta einstaka auðlindin þegar
kemur að fjármögnun sprotafyrir-
tækja. Á sama tíma þarf hið opin-
bera að tryggja hagstæðan laga-
ramma og hvetjandi umgjörð og
hafa Bretar t.d. farið þá leið að virkja
efnaða athafnamenn í gegnum
skatta- og sjóðakerfið. Hvarvetna
má sjá jákvæð nýsköpunarteikn á
lofti sem vert er að fagna, auk frum-
kvöðlakeppni Innovit hélt Seed For-
um ráðstefnu í sl. viku þar sem ís-
lensk sprotafyrirtæki voru kynnt
fyrir fjárfestum og í mars var haldin
námstefna um konur, fjármagn og
rekstur fyrirtækja. Þar voru konur
beinlínis hvattar til að fara fyrir fé og
stofna fyrirtæki. Nýlega kynnti rík-
isstjórnin lækkun tekjuskatts fyrir-
tækja auk þess sem áhersla á há-
skólamenntun, rannsóknir og
þróun mun enn aukast á komandi
árum. Ég óska aðstandendum og
þátttakendum í Innovit-frum-
kvöðlakeppninni til hamingju með
framtakið og hvet þá til dáða sem
geta breytt þekkingu, sýn og hugviti
í áþreifanleg verðmæti og framtíð-
arstörf sem leggja grunn að hagsæld
okkar og velferð í framtíðinni.
Höfundur er alþingismaður.
Frumkvöðlakeppni
háskólanema
VIÐHORF aGuðfinna S. Bjarnadóttir
Á und-
anförnum ár-
um hafa há-
skólar lagt æ
ríkari áherslu
á tengsl við
atvinnulífið
og þá frumkvöðla-
starfsemi sem skilar sér í
uppbyggingu þess.
Komdu til okkar,
taktu með
eða borðaðu
á staðnum
Alltaf góð
ur!
Kjúklingastaðurinn
Suðurveri
Nú er
orðin
n stór
Brúðarblað
Auglýsingasímar:
Katrín Laufey 510 3727
kata@24stundir.is
Kolbrún Dröfn 510 3722
kolla@24stundir.is
Sérstakt brúðar-
blað fylgir með
24 stundum
föstudaginn 11.
apríl. Rætt verður
við verðandi brúð-
hjón og hjón sem
hafa verið gift lengi
og rifja upp brúðkaups-
daginn. Spurt er hvort
stóru brúðkaupsveislurnar séu
að víkja fyrir litlum, fámennum veis-
lum? Við fjöllum um sveitabrúðkaup og giftingu hjá sýslumanni.
Nýjustu brúðarkjólarnir, terturnar og hver eru vinsælustu lögin í
brúðkaupum?
11. apríl
Hafðu samband og
fáðu gott pláss fyrir
auglýsinguna þína
Það verður fjölbreytt og skemmtilegt efni í brúðarblaði 24 stunda.
Um er að ræða litla íbúð á
neðstu hæð. Er í dag stúdíó með
eldhúsaðstöðu og sér baðher-
bergi með sturtu. Svo er sérher-
bergi með eldhúsaðstöðu og
aðgangi að snyrtingu á gangi og
sturtuaðstöðu í þvottahúsi. Ís-
skápar eru í báðum einingunum
og eldavélarhelllur. Fataskápur er
í herbergi en fatahengi í stúdíó. Frábær útleigukostur. Flott staðsetning.
Göngufæri í miðbæinn og alla þjónustu og skóla. Verð 15,5 millj.
Laust strax.
Hafið samband við Jóhannes í síma 615 1226
eða á skrifstofu Eignavers s-5532222
Eggert Sk. Jóhannesson, Jóhannes Eggertsson, Ólafur Thoroddsen hdl.
Fasteignasalan Eignaver
Sími 553-2222 • eignaver.is
Síðumúli 13 • 108 Reykjavík
Fasteignasala Eignaver kynnirUNIVERSALC O N T O U R W R A P TM
Með Universal líkamsvafningi
missir þú í minnsta lagi 16 cm
í hvert skipti.
Fljótlegur árangur
sem skilar sér strax.
Hverju hefur þú að tapa?
Stórhöfða 17, 110 Reykjavík
Sími: 577 7007
líkamsvafningur
Grennandi