24 stundir - 08.04.2008, Blaðsíða 18

24 stundir - 08.04.2008, Blaðsíða 18
Eftir Maríu Ólafsdóttur maria@24stundir.is „Við förum átta eða níu saman vinnufélagar og gamlir vinir á snjósleða og förum oft í dagsferðir en í vetur höfum við líka farið fjór- um sinnum og gist,“ segir Arn- bergur. Hópurinn er nú nýlega kominn úr dagsferð þar sem farið var upp á Lyngdalsheiði, inn með Tindaskaganum og inn undir Hagavatn og áð í skálanum Kidda- koti. Þaðan héldu menn síðan áfram förinni inn í Jarlhettur en ferðinni til baka var heitið inn undir Geitlandsjökul, þaðan niður í Tjaldafell og loks niður á heiðina aftur. GPS-tækið ómissandi „Það hentar okkur bílstjórum mjög vel að geta nýtt veturinn í áhugamál eins og þetta því að í vinnunni er okkar vertíð að byrja núna í apríl og maí og eftir það höfum við engan tíma til að leika okkur, enda stendur vertíðin langt fram á haust,“ segir Arnbergur. Hann byrjaði fyrst að fara á snjó- sleða sem peyi en tók upp þráðinn aftur fyrir tæpum áratug og hefur stundað sportið af krafti síðan. Í dagsferðir segir Arnbergur að viss- ara sé að taka með sér aukabensín og mat, hrossakjöt sé vinsælt þegar gist er og stundum séu líka grilluð heilu lambalærin. Síðan sé GPS- tækið algjörlega nauðsynlegt. Flestir eru félagarnir á öflugum fjallasleðum sem eru 8 til 900 kú- bika sleðar. Útivera og félagsskapur „Þetta er sport sem er má segja jafn hættulegt og það er skemmti- legt og borgar sig að fara varlega. Snjóblindan er mjög slæm og hætturnar leynast víða eins og sýndi sig nýlega þegar vanur vél- sleðamaður lét lífið. En fyrir utan hætturnar fylgir vélsleðunum gríð- arlegt frelsi enda getur maður ver- ið kominn upp á fjallatoppa á nokkrum mínútum og notið það- an ótrúlegs útsýnis. Útiveran, tækjadellan og félagsskapurinn er það sem þetta snýst um,“ segir Arnbergur. Á ótroðnar slóðir Hópurinn hefur farið víða um Suðurlandið á ferðum sínum, t.d. yfir Mýrdalsjökul inn á Mælifells- sand og gist í Strút auk þess sem farið hefur verið inn í Kerling- arfjöll, á Hveravelli og á Langjökul. Menn hyggja nú á að feta ótroðnar slóðir norður eða vestur, en á stefnuskránni er að fara þangað í vor. „Það er mikill snjór á hálend- inu og við leggjum sleðanum ekki fyrr en í lok maí enda er besti tím- inn og veðrið framundan,“ segir Arnbergur. Færibandafélag Þróttar nýtir helgarnar á vélsleðum Góður árstími til að sinna áhugamálunum ➤ Færibandafélagið Þrótturhefur farið um mestallt Suð- urland á snjósleðum. ➤ Vetrartíminn hentar vörubíl-stjórum vel til að sinna áhugamálum sínum. ➤ GPS-tækið er ómissandi oghrossakjöt má ekki skilja eftir heima þegar farið er í lengri ferðir. FERÐIRArnbergur Ásbjörnsson starfar sem vörubílstjóri en um helgar geysist hann um á snjósleða ásamt nokkrum sam- starfsfélögum sínum. Hópurinn sem kallar sig Færibandafélag Þróttar hefur farið víða. Útiveran, tækjadellan og félagsskapurinn Er það sem málið snýst um. 18 ÞRIÐJUDAGUR 8. APRÍL 2008 24stundir Sagan á bak við svissneska fyr- irtækið Freitag hófst þegar tveir bræður, grafískir hönnuðir og mótorhjólamenn, bjuggu við hlið- ina á aðalhraðbraut vörubíla í Zu- rich. Þá datt þeim í hug hvort ekki mætti endurnýta hluti úr ónýtum farartækjum til að hanna skemmti- lega hluti. Töskur úr gömlum loftpúðum Það varð úr að bræðurnir ákváðu að hanna töskur úr not- uðum yfirbreiðslum yfir trukka, gömlum öryggisbeltum, slöngum úr reiðhjólum og notuðum loft- púðum. Þannig notuðu þeir það sér til innblásturs að horfa á trukka hrannast upp á hraðbrautinni á hverjum degi, nokkuð sem mörg- um gæti frekar þótt niðurdrep- andi. Þeir byrjuðu á því að fram- leiða nokkrar töskur fyrir sjálfa sig til að prófa. Þetta var árið 1993 en í dag er hægt að kaupa handtöskur, veski, bakpoka og tölvutöskur frá Freitag svo eitthvað sé nefnt. Tösk- urnar hafa slegið í gegn enda eru engar tvær eins og þykja þær því skera sig úr. Þær eru má segja óslít- andi og algjörlega vatnsheldar. Handunnar vörur Efnið í hverja og eina tösku frá Freitag er handsniðið og hún síðan útsaumuð með endurunnum aukahlutum á borð við loftpúða eða hjólaslöngur. Yfirbreiðslurnar eru keyptar af trukkafyrirtækjum víða um Evrópu og því fylgst grannt með því þegar þau end- urnýja bílaflotann. Því litríkari og skrautlegri sem yfirbreiðslurnar eru því betra. Seldar víða um heim Freitag verslanir eru nú reknar í Sviss og Þýskalandi en vörurnar eru einnig til sölu víða um heim, til að mynda í Bandaríkjunum og Japan. Heimasíða fyrirtækisins er http://www.freitag.ch/shop/ FREITAG/page/frontpage/detail.jsf en þar má meðal annars sníða saman sína eigin tösku. maria@24stundir.is Nærri óslítandi töskur úr yfirbreiðslum Freitag slær í gegn „Það er þreytandi að þurfa að píra augun en það hvílir augun og hlífir sjón að hafa góð sólgleraugu með gleri sem síar sólargeislana vel,“ segir Kristín Sigurðardóttir hjá Auganu í Kringlunni. „Ég fæ mikið af bílstjórum til mín og þá vantar gleraugu sem eru ending- argóð og auka öryggi þeirra í akstri. Ég mæli þá oft með Ray- Ban en þau eru afar vönduð sól- gleraugu og merkið auðvitað frem- ur þekkt. Ray-ban hafa verið fram- leidd síðan árið 1937 þannig að framleiðsla þeirra er byggð á reynslu. Að auki er auðvelt að fá í þau varahluti ef þau gefa eitthvað undan.“ Ray-Ban gleraugu framleidd síðan 1937 Sólgleraugu fyrir sumarið VIÐ FJÁRMÖGNUM ÞAÐ SEM UPP Á VANTAR! Ertu að spá í atvinnutæki? Nýttu þér upplýsingar og reiknivélar á www.gf.is eða hafðu samband við ráðgjafa okkar í síma 440 4400. H V ÍT A H Ú S IÐ / S ÍA - 7 2 3 5

x

24 stundir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: 24 stundir
https://timarit.is/publication/307

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.