24 stundir - 08.04.2008, Page 20
20 ÞRIÐJUDAGUR 8. APRÍL 2008 24stundir
Eftir Svanhvít Ljósbjörgu
svanhvit@24stundir.is
Sigurður Hafsteinsson hefur ekið
vörubíl í rúmlega fimmtán ár og
þar af um níu ár erlendis, sem
hann segir gjörólíkt því að keyra
vörubíl á Íslandi. „Ég flutti til
Danmerkur árið 1996 en þá var
ekkert voðalega bjart ástand hér
heima. Fyrst um sinn keyrði ég
mestmegnis innan Danmerkur,
með hefðbundinn varning til
verslana og fleira í þeim dúr. Síð-
an fór ég að keyra til Ítalíu, Sviss
og Þýskalands með fisk, kjötmeti
og annað. Framkoma fólks þar er
ótrúleg og það er komið fram við
atvinnubílstjóra eins og hunda.
Þegar atvinnubílstjóri fer til Ítalíu
og sérstaklega Austurríkis er ekki
litið á hann og hann er algjörlega
hunsaður. Það er til dæmis mjög
erfitt að komast í gegnum Sviss
en það eru ömurlegustu landa-
mæri sem maður fer í gegnum á
vörubíl. Það eru svo gríðarlega
miklar kröfur að það er nauðsyn-
legt að fylla heila bók af upplýs-
ingum til þess eins að komast
áfram.“
Beið heila helgi í Austurríki
Sigurður segist hafa lent í ýmsu
fáránlegu í ferð sinni um Evrópu á
vörubíl. „Eitt sinn sat ég heila helgi á
milli jóla og nýárs á bensínstöð í
Austurríki. Það má ekki keyra í
Austurríki eftir klukkan tíu á föstu-
dagskveldi til tíu á sunnudagskveldi.
Ef maður er ekki kominn út úr
landinu þá verður maður bara að
drepa á og bíða vegna mengunarlag-
anna. Það hefði líka getað farið illa í
fyrstu ferð minni til Austurríkis en
ég fór bara af stað með kortabók og
olíukort. Þegar ég kom til baka átt-
aði ég mig á að ég hefði átt að borga
tolla við ákveðin landamæri en ef
lögreglan hefði tekið mig þá hefði ég
fengið mjög háa sekt fyrir það,
sennilega um 40 þúsund krónur fyr-
ir hvern dag sem ég var ólöglega í
landinu,“segir Sigurður og rifjar upp
aðra forvitnilega ferð sem hann fór í.
„Ég keyrði einu sinni nautakjöt frá
Danmörku til Ítalíu þar sem það fór
í kjötvinnslustöð. Í stöðinni var
kjötið hakkað niður í hamborgara
sem við keyrðum svo til baka til
Danmerkur.“
Mikill munur á vegunum
Aðspurður hvort það sé mikill
munur á vegum á Íslandi og erlendis
segir Sigurður svo vera. „Sem betur
fer keyri ég framdrifsbíl hér heima
þar sem vegirnir eru mjög slæmir.
Hér eru vegirnir eins og sveitavegir
úti í heimi. Þegar ég var á Ítalíu voru
vegirnir ekkert sérstakir en samt
mun betri en hér heima,“ segir Sig-
urður sem hefur ákveðnar skoðanir
á hvíldartíma bílstjóra. „Þetta er
Evrópuregla sem Íslendingar tóku
upp og hún á mjög vel við í Evrópu
þar sem menn keyra mikið. Stund-
um var ég að keyra í 12-14 daga úti
en þá keyrði maður í 4 ½ tíma í
senn. Þetta passaði ákkúrat með tvo
menn í bílnum því eftir daginn
stoppuðum við og sváfum í átta
tíma. Aftur á móti er ekki keyrt
svona langt hér. Vissulega er allt í
lagi að hafa eitthvað aðhald að
mönnum en samt finnst mér mjög
heimskulegt að apa upp þessar Evr-
ópureglur. Hérna stoppa menn þeg-
ar þeir eru þreyttir.“ Þrátt fyrir að
Sigurður sé sáttur við dvöl sína úti
segist hann ekki hafa áhuga á að
flytja aftur út og vinna. „Þetta er
orðinn allt annar markaður og
margt hefur breyst. Þrátt fyrir það
þá var þetta alltaf mjög þægileg og
góð keyrsla og það er mjög gott að
keyra svona stóra bíla í Danmörku
og Evrópu. Þar er gert ráð fyrir að
maður geti stoppað og hvílt sig auk
þess sem vegirnir eru beinir og slétt-
ir.“
24stundir/Kristinn
Sigurður Hafsteinsson ók vörubíl í níu ár víðsvegar um Evrópu
Vegir á Íslandi líkjast
sveitavegum í Evrópu
➤ Á rúmlega fimmtán ára ferlihefur Sigurður keyrt steypu-
bíl, vörubíl, kranabíl, venju-
legan flutningabíl og fleiri
tegundir vörubíla.
➤ Á níu árum í Danmörku vannSigurður við akstur hjá fjór-
um fyrirtækjum.
➤ Sigurður segir að helsti kost-ur starfsins úti hafi verið það
tækifæri sem hann fékk til að
skoða heiminn á launum.
MAÐURINNÞað hafði lengi blundað í
Sigurði Hafsteinssyni að
vinna við akstur erlendis
og í níu ár ók hann víðs-
vegar um Evrópu. Hann
segir að gott hafi verið að
aka um Evrópu en þó hafi
viðmót fólks stundum
verið neikvætt.
Sigurður Hafsteinsson:
„Það er mjög gott að keyra
svona stóra bíla í Dan-
mörku og Evrópu, vegirnir
eru beinir og sléttir.“
VERKTAKAR -
VINNUVÉLAEIGENDUR
Vantar ykkur með stuttum fyrirvara
varanlegar byggingar fyrir verkstæði eða
vélageymslur, sem fljótlegt er að reisa.
Viðhaldsfríar með 20-30 ára ábyrgð
KYNNIÐ YKKUR SPRUNG:
www.sprung.com
BMB KAUP ehf.
Smiðjuveg 4A, símar 564-3220 - 894-3836
UPPLÝSINGAR O
is
ing Mjódd
Næsta námskeið hefst
11. apríl n.k.
www.kistufell.com
Vantar þig varahluti í
ameríska bíla ?
VÉLAVERKSTÆÐIÐ
VARAHLUTAVERSLUN
kistufell@centrum.is
Tangarhöfða 13 Sími 577 1313
Við sérpöntum fyrir þig