24 stundir - 08.04.2008, Blaðsíða 21

24 stundir - 08.04.2008, Blaðsíða 21
24stundir ÞRIÐJUDAGUR 8. APRÍL 2008 21 „Mér þykja siðferðilegar hliðar á mótmælum síðustu daga nokkuð augljósar og dettur þá kannski helst í hug orðið tvískinnungur eða athyglisverður mismunur á hvern- ig mótmælum er tekið eftir því hverju er verið að mótmæla,“ segir Sigurður Kristinsson, deild- arforseti félagsvísinda- og laga- deildar Háskólans á Akureyri. T.d. hafi mótmæli gegn virkjanafram- kvæmdum verið töluverð og þau farið fram með friðsamlegum hætti sem ekki hafi skapað neina hættu en þeim hafi hins vegar ver- ið mætt með talsverðri hörku og viðbúnaði frá lögreglu, auk þess sem umræðan í samfélaginu hafi verið sú að hart þyrfti að taka á málunum. Hættulegar og róttækar „Nú, þegar háu bensínverði er mótmælt, er það hins vegar gert með mun hættulegri og róttækari aðferðum. Umferðaræðar eru stíflaðar þannig að fólk kemst ekki á spítala og umhverfis- og hljóð- mengun sem af þessu stafar er mikil. Á sama tíma eru viðbrögðin mun mildari en afar sennileg skýring á því er sú að þetta sé eitt- hvað sem allur þorri fólks taki nærri sér þar sem einkabíllinn skipi jú stóran sess hér á landi,“ segir Sigurður. Að frönskum sið Frakkland kemur upp í hugann þegar talað er um mótmæli enda mikil hefð fyrir slíku þar í landi. Sigurður segir að sér þyki ekki ósennilegt að slíkar aðgerðir muni færast í vöxt hér á landi. „Fólki of- býður af siðferðilegum ástæðum gagnvart náttúrunni og komandi kynslóðum, eða þegar það kemur beinlínis við pyngjuna,“ segir Sig- urður aðspurður hvort ákveðnir þættir í samfélaginu geti rutt af stað hrinu mótmæla. Tvískinnungur í garð mótmælenda Fer eftir hverju er mótmælt 24stundir/JúlíusMótmæli vörubílstjóra Hafa skapað nokkurn usla á götum borgarinnar upp á síðkastið. Margir kjósa að skreyta trukkinn með límmiðum. Ýmis konar skila- boð í gamansömum tón má finna á slíkum límmiðum, meðal annars: Ég gerði húsið barnhelt en samt komast þau inn! Eða: Byssur drepa ekki fólk heldur bílstjórar sem tala í símann undir stýri. Eða þá: Fjórir af hverjum þremur eiga erfitt með tugabrot. Öllu gamni fylgir þó nokkur alvara og sumt fyndnara en annað á þessum miðum. Fyndnir lím- miðar á bílinn Sjálfsagt reka margir ökumenn upp stór augu þegar þeir sjá jafn litríkan trukk á götum úti. Ekki er mikið um slíka trukka hér á landi en kannski einhver sem vildi taka sér slíkt til eftirbreytni? Þessi trukkur er eins og stór bókahilla á hjólum. Til eru ýmiss konar aðrar útfærslur af slíkum trukkum út- færðar á sama hátt. Gæti verið til- valin hugmynd til að lífga upp á gömlu, góðu bókabílana. Litrík bókahilla á hjólum Það getur verið erfitt að halda drykkjum, nesti og öðru sem þarf að hafa meðferðis köldu, sér- staklega þegar sól tekur að hækka á lofti. Þetta box rúmast auðveldlega í bílnum og opnast á tveimur stöð- um þannig að auðvelt er að nálgast drykki og það sem þarf að hafa við höndina þannig að það megi nálg- ast meðan keyrt er. Rúmgott box þar sem allt það nauðsynlegasta kemst haganlega fyrir. Handhægt kælibox í bílinn Þarftu að ná í gegn? Panasonic borvélarnar hafa allt sem til þarf. Kraftinn, öryggið, þægindin. Þær eru léttar, nettar, með einstakt jafnvægi og fara vel í hendi. Ný hönnun tryggir stöðugleika og aukinn slagkraft. Byltingarkenndar rafhlöðurnar endast enn lengur en áður og hleðslan tekur skamman tíma. Skútuvogi 1c 104 Reykjavík Sími 550 8500 Fax 550 8510 www.vv.is ÞYNGD: 1,6 kg HLEÐSLUTÍMI: 50 mín NOTAGILDI: HVAÐ SEM ER F í t o n / S Í A F I 0 1 5 2 7 2

x

24 stundir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: 24 stundir
https://timarit.is/publication/307

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.