24 stundir - 08.04.2008, Blaðsíða 24
24 ÞRIÐJUDAGUR 8. APRÍL 2008 24stundir
Eftir Hildi Eddu Einarsdóttur
hilduredda@24stundir.is
Sturla Jónsson, sem hefur farið fyrir
mótmælum flutningabílstjóra á veg-
um úti undanfarna daga, segir barátt-
una fyrir lægra eldsneytisverði ekki
vera óvinnandi. „Við munum halda
áfram að mótmæla þangað til komið
verður til móts við okkar kröfur. Við
höfum talað fyrir daufum eyrum og
ráðamenn virðast ætla að humma
þetta af sér og vilja ekki gera neitt. En
við höfum fundið fyrir miklum
stuðningi almennings sem er líka orð-
inn langþreyttur á þessu háa verði,“
segir hann og nefnir sem dæmi öku-
menn sem urðu fyrir töfum á Reykja-
nesbrautinni á leið til Keflavíkur fyrir
helgina. „Ég gekk á milli bíla og spurði
fólk hvort það styddi okkur ekki
örugglega í þessum aðgerðum. Alltaf
var svarið það sama; Þetta veldur okk-
ur vissulega óþægindum akkúrat
núna en við styðjum ykkur samt.“
Gríðarlegur kostnaður
Hátt eldsneytisverð bitnar mjög á
eigendum venjulegra fólksbíla en fyrir
menn sem reka flutningabíla og stór-
virkar vinnuvélar er það margfalt dýr-
keyptara. Sem dæmi má nefna að
eldsneytiskostnaður fyrir beltagröfuna
sem Sturla keyrir nemur að jafnaði
um 25 til 30 þúsund krónum á dag,
en getur farið upp í 40 til 45 þúsund
krónur á dag ef hún er í mjög þung-
um flutningum. Þá eyðir stóri flutn-
ingabíllinn hans eldsneyti fyrir um
850.000 krónur á mánuði. „Við hverja
krónu sem eldsneytisverðið hækkar
stóreykst kostnaðurinn við rekstur
flutningabíla og vinnuvéla og um leið
fær ríkið meira í sinn hlut. Virð-
isaukaskatturinn er auðvitað bara
prósenta af heildarverðinu og í dag
fara tæpar 39 krónur fyrir hvern
keyptan bensínlítra beint í ríkiskass-
ann. Fyrir ekki svo löngu síðan var
ríkið að fá um 20 krónur fyrir lítrann
þannig að það er alveg ljóst að ríkið
hefur fullt svigrúm til þess að minnka
álögur á eldsneytið. Og ofan á virð-
isaukaskattinn bætist olíugjaldið
ásamt því sem til stendur að setja um-
hverfisgjald, um 20 krónur á hvern
kílómetra, á þessa stóru flutningabíla,“
segir hann.
Ekki hægt að breyta verði
Eins og gefur að skilja skapar sí-
hækkandi eldsneytisverð mikla rekstr-
aróvissu hjá verktökum sem gera til-
boð upp á ákveðna krónutölu í
upphafi verks og geta ekki hækkað
verð í kjölfarið á því, þó svo að elds-
neytisverðið rjúki upp úr öllu valdi á
meðan framkvæmdunum stendur.
Vegna þessa fóru til dæmis verktak-
arnir, sem voru að vinna á Reykjanes-
brautinni, á hausinn og það sama
gildir um fjölmarga fleiri,“ segir Sturla.
Hann bætir því við að lágt gengi
krónunnar sé sannarlega ekki til að
bæta ástandið. „Flestir sem reka svona
stórar vélar hafa flutt þær inn erlendis
frá og eru með þær á kaupleigu. Þar
með eykst greiðslubyrðin af þeim til
muna og ég get nefnt sem dæmi
beltagröfuna mína. Þegar ég keypti
hana var gengi dollarans gagnvart
krónunni þannig að ég borgaði um
200.000 krónur af henni mánaðarlega.
Núna á skömmum tíma er þessi upp-
hæð komin upp í 250.000 krónur.“
Hvíldarreglur úti í hött
Það er fleira en hátt eldsneyt-
isverð og lágt gengi krónunnar sem
flutningabílstjórar eru ósáttir við.
„Til dæmis þessar reglur um hvíld-
artíma ökumanna. Þetta eru reglur
sem hafa verið settar í Evrópu fyrir
ökumenn sem keyra á milli landa
og ættu því augljóslega ekki að gilda
hér. Þær kveða á um það að eftir
fjögurra og hálfrar klukkustundar
akstur verða menn að stoppa bílinn
og hvíla í 45 mínútur. Í bílunum
eru mælar sem skrá aksturstímann
og ef menn eru staðnir að því að
keyra þremur mínútum lengur en
reglurnar segja til um eru þeir sekt-
aðir um 80.000 krónur og fá fjóra
punkta í ökuferilsskrána. Ég þekki
marga sem hafa þurft að borga
hundruðir þúsunda í sektir vegna
þessara reglna sem eru algjörlega
absúrd. Gefum okkur sem dæmi
bílstjóra sem hefur vinnudaginn í
Reykjavík og þarf að koma víða við.
Eftir fjóra og hálfa klukkustund er
hann kannski kominn upp á Holta-
vörðuheiði og þá er ekkert annað í
boði fyrir hann en að stöðva bílinn
og má ekki hreyfa hann aftur fyrr
en eftir 45 mínútur. Hvað á hann
að gera ef honum verður brátt í
brók? Menn eru jú sektaðir fyrir að
gera þarfir sínar á almannafæri og
eiga þeir þá bara að gera það inni í
bílnum í staðinn?“
Almannahagsmunir
Aðspurður segir Sturla verktaka
jafnt sem launþega hafa staðið í
mótmælunum undanfarið. „Verk-
takar búa náttúrlega ekki við neitt
nema óvissu í sínum rekstri og
berjast margir hverjir í bökkum,
og það bitnar líka á launamönn-
unum. Svo koma reglurnar um
hvíldartíma jafnt niður á öllum
sem starfa í þessum geira.“
Hann ítrekar að hátt eldsneytis-
verð bitni á öllum, ekki bara at-
vinnubílstjórum. „Eins og staðan
er núna er stjórnvöldum alveg
sama og ætla að reyna að bíða
þessi mótmæli af sér á meðan þau
leggja allt kapp á að bjarga bönk-
unum og láta almenning borga
brúsann. En við ætlum ekki að
gefast upp fyrr en stjórnvöld gera
eitthvað í málinu, það er alveg á
hreinu,“ segir hann að lokum.
Sturla Jónsson, bílstjóri og mótmælandi
Ekkert nema óvissa
í rekstrinum
➤ Bílstjórarnir berjast fyrirminni álagningu á eldsneyti
af hálfu hins opinbera, auk
þess sem þeir vilja fella úr
gildi evrópsk lög um hvíld-
artíma ökumanna. Þau kveða
á um að eftir akstur í fjóra og
hálfa klukkustund verða þeir
að stoppa í 45 mínútur.
BARÁTTUMÁLINSturla Jónsson hefur farið
fyrir mótmælum flutn-
ingabílstjóra undanfarna
daga og vikur. Hann segir
bílstjóra hafa talað fyrir
daufum eyrum ráða-
manna en að þeir muni
ekki gefast upp fyrr en
komið hefur verið til
móts við þeirra kröfur.
Gefumst ekki upp
Sturla Jónsson.
P
R
E
N
T
S
N
IÐ
HEILDARLAUSNIR
Í DRIFSKÖFTUM
Landsins mesta úrval
af hjöruliðum og
drifskaftsvörum
Jafnvægisstillingar
Vagnhöfða 7
110 Reykjavík
Sími: 517 5000
!
63.316
ALLT FYRIR FÆRIBÖND
Útvegum með stuttum fyrirvara reimar
fyrir allar gerðir færibanda. Reimarnar
eru úr gæðaefni og koma tilbúnar til
ásetningar, engin líming eða skurður.
Höfum einnig rúllur og rúllustóla ásamt
efni til viðgerða og samsetningar
BMB KAUP ehf
Smiðjuveg 4 A
200 Kópavogur
Sími: 564-3220
Upplýsingar og innritun í síma 567 0300
Næsta námskeið byrjar 9. apríl
Meirapróf
24stundir/Kristinn