24 stundir - 08.04.2008, Blaðsíða 26
26 ÞRIÐJUDAGUR 8. APRÍL 2008 24stundir
Eftir Kristjönu Guðbrandsdóttur
dista@24stundir.is
„Það hafa komið tilvik þar sem
bormenn og vinnutæki hafa verið í
hættu vegna tillitsleysis og glæfra-
aksturs vegfarenda,“ segir Frið-
finnur um framkvæmd á kjarna-
borun í Hvalfjarðargöngum.
Friðfinnur K. Daníelsson er eig-
andi fyrirtækisins Alvar ehf. og
hefur unnið við boranir frá árinu
1976, víðs vegar um Ísland og líka
erlendis.
„Ég er vanur þungaflutningabíl-
stjóri og mér svíður auðvitað mest
að sjá flutningabílana keyra á mikl-
um hraða í gegnum göngin. Þeir
sem mesta vélaraflið hafa virðast
þurfa að gefa fullt rör til að hafa sig
upp brekkuna. Þeir flauta á þá sem
fara hægar á undan þeim og nánast
reka þá út. Ég er áhorfandi að
þessu og sé að vissir flutningaaðilar
eru áberandi hvað þetta varðar.“
Friðfinnur lýsir betur aðstæðum
í göngunum: „Við erum tveir til
þrír sem vinnum í göngunum að
borun hverju sinni. Hættuástand
skapast einkum þegar flutn-
ingabílar fara upp vinstri akreinina
en þeir sem á eftir koma gefa þá í,
ætla fram úr á hægri. Við höfum
annars lokið því að bora á akrein-
inni sjálfri þar sem við fundum
fyrir því að tæki og mannskapur
var í hættu. Við erum aftur komnir
að stóra útskotinu í botni gang-
anna og erum þar að bora okkar
næstsíðustu holu.“
Friðfinnur bætir við að eftir fjöl-
miðlaumfjöllun um glannaakstur
og áhyggjur verkamanna af vinnu-
öryggi sínu hafi hann fundið fyrir
stórbættu aksturslagi vegfarenda.
„Mikill sómi er að því að stór hluti
vegfarenda sýnir tillitssemi og
gætni við akstur eftir umfjöllun
um glannaakstur. Hins vegar á það
ekki við um alla,“ bætir hann við
og vísar í orð sín um flutningaaðila
sem keyri ógætilega í göngunum.
„Þeir þurfa ekki að gefa í þótt þeir
séu á svona þungum bílum. “
Verkið skotgengur annars og við
erum langt á undan áætlun.
„Við erum búnir að bora hátt í
1000 metra í sjö mismunandi
löngum holum. Ég er með sænska
undirverktaka með mér í verkinu,
þeir þekkja svipuð verk annars
staðar frá og vinna hratt og kunna
vel til verka.“
24stundir/Júlíus
Glannaakstur í göngunum og keyrt á viðvörunarskilti
Með lífið í lúkunum
í vinnunni
Við reynum að merkja
svæðið eins og við best
getum. „Sumir vegfar-
andur aka samt hratt og
ógætilega fram hjá
vinnusvæði okkar og
virða merkingar að vett-
ugi,“ segir Friðfinnur
Daníelsson, bormaður í
Hvalfjarðargöngum, sem
segir annars frá því að
vinna við borun sé langt
á undan áætlun.
Glannaakstur skapar
hættu Vegfarendur þurfa
að stilla sig enn frekar til
að skapa ekki hættu í
göngunum.
Bormaður síðan 1976 Friðfinnur Daníelsson hefur unnið
að borun víða um heim og er öllu vanur.
Nýafstaðin er ráðstefnan Vetur
2008, vetrarráðstefna Vegagerð-
arinnar. Á ráðstefnunni voru
haldin fjölmörg erindi og setti
Kristján L. Möller samgöngu-
ráðherra ráðstefnuna.
„Við vorum að stilla saman
strengi og horfa til framtíðar,“
segir Björn Ólafsson, for-
stöðumaður þjónustudeildar
Vegagerðarinnar. „Eftir veturinn
er gott að koma saman og skoða
hvað má betur fara hvað varðar
þjónustu á vegum á veturna,“
bætir hann við og segir frá því að
ráðstefnan sé nú haldin í þriðja
sinn og sé liður í að stórbæta
þjónustu Vegagerðarinnar við-
landsmenn. „Kröfur vegfarenda
eru ekki eingöngu um að vegir
séu ruddir. Nú þurfum við að
taka næstu skref og bregðast við
óskum um að vegir séu hálkuv-
arðir.“
Engin heiði lokuð
„Áður var það svo að vegir
gátu verið lokaðir dögum saman
yfir vetrartímann, sérstaklega á
heiðum. Nú er það fátítt. Í vetur
var engin heiði lokuð í heilan dag
sem er til marks um hversu mik-
ið við höfum bætt þjónustuna,“
segir Björn. dista@24stundir.is
Þjónusta við vegfarendur á hringveginum aukist
Auknar kröfur um bætt ástand
Bætt þjónusta Stefnt að því að
auka við vetrarþjónustu á vegum.
Vinnulyftur ehf.
Smiðsbúð 12 • 210 Garðabæ
Sími: 544 8444 • Fax: 544 8440
www.vinnulyftur.is
Vinnulyftur og
jarðvegstæki
til leigu og sölu
Erum með fjölbreytt úrval af vönduðum vinnulyftum
og jarðvegstækjum til leigu og sölu. Ef þig vantar
innilyftur eða stórar útilyftur þá höfum við lausnina.
Hafið samband og fáið verðtilboð!
Br
os
6
73
2/
20
07
Verið velkomin til okkar í bás númer G6
ÞARFTU AÐ SELJA
VINNUVÉL EÐA VÖRUBÍL.
Við gætum haft kaupanda, sem jafnvel
gæti leyst til sín kaupleigusamninga.
Hafðu samband og við skráum hlutinn.
Sími: 894-3933
Vörur - þjónusta - upplýsingar
Tangarhöfða 4, sími 515 7200
Mikið úrval
af peru og
díóðuljósum
M
b
l9
14
09
7