24 stundir - 08.04.2008, Síða 27
24stundir ÞRIÐJUDAGUR 8. APRÍL 2008 27
KYNNING
Aflvélar er fjölskyldurekið fyrirtæki
sem starfrækt er í Garðabænum.
Fyrirtækið var stofnað fyrir fjórum
árum og er rekið samhliða hinu
gamalgróna fyrirtæki Bursta-
gerðinni sem stofnuð var árið 1930.
Burstamottur og burstar
Burstaverksmiðjan er sú eina
sinnar tegundar á landinu og þar
eru framleiddir ýmis konar burstar
fyrir vélar og tæki í fiskiðnaði svo
og á fleiri sviðum. Auk þess eru þar
framleiddar svörtu og brúnu
burstamotturnar sem finna má í
flestum íslenskum anddyrum.
Verksmiðjan seldi á árum áður
vélabursta m.a. í flugbrautarsópa
til flugvalla. Árið 1983 þegar burst-
afyrirtækið sem skipt var við er-
lendis hóf framleiðslu á flugbraut-
arsópum hófst sala á vélum og var
fyrsta tækið selt til Reykjavík-
urflugvallar árið 1983. Þar með
hófst vélasalan sem orðin er að Afl-
vélum í dag.
Umboðsaðili Schmidt
Aflvélar eru umboðsaðili fyrir
Schmidt sem er stærsta fyrirtæki
Evrópu í framleiðslu snjóplóga,
salt- og sanddreifara, blásara og
sópa. Einnig selur fyrirtækið ýmsar
aðrar vélar svo sem malbikstæki og
vökvakerfi. Aflvélar eru einn af
stærstu birgjum flugvallanna og
selja einnig mikið til Vegagerð-
arinnar, verktaka og bæjarfélaga.
Góður vetur og vor
„Þessi vetur var gríðarlega góður
og slógum við öll okkar sölumet.
Fyrir sumarið erum við þegar bún-
ir að afgreiða tvo gangbrautarsópa
ásamt einum götusóp af stærstu
gerð og þrír slíkir til viðbótar verða
afhentir nú eftir rúman mánuð,“
segir Friðrik Ingi Friðriksson hjá
Aflvélum.
Aflvélar fjölskyldurekið og gamalgróið fyrirtæki
Malbikstæki og götusópar
Aflvélar Hafa selt götusópa frá árinu 1983 og eru umboðsaðili fyrir stærsta fyr-
irtæki Evrópu í framleiðslu snjóplóga, salt- og sanddreifara, blásara og sópa.
Þetta er ekkert venjuleg hulstur ut-
an um iPod þó að það gæti litið
þannig út. Það er nefnilega búið til
úr endurunnum vörubíladekkjum
og er handunnið. Þessi skemmti-
lega og umhverfisvæna hönnun er
bandarísk og hana má kaupa á
Passchal.com. Sniðugt í göngu-
túrinn eða í ræktina og gott í af-
mælispakkann handa tækjaóðu
fólki. Verndar iPodinn og heldur
honum hreinum.
Endurunnið
hulstur
Með þessu boxi, sem í eru nokkrar
skrúfur, má geyma verkfæri og
önnur tól á öruggan hátt í trukkn-
um. Boxið virkar eins og pen-
ingaskápur, því er hægt að læsa og
má auðveldlega koma fyrir á bak
við sæti eða þar sem það kemst
best fyrir. Boxið er gert úr ryðfríu
stáli og dragast skúffurnar út þegar
það er opnað. Sniðug og auðveld
lausn fyrir þá sem þurfa oft að
skilja verðmæti eftir í bílnum.
Læst verkfæra-
box í bílinn
Þessi lausn hentar kannski íslensk-
um aðstæðum ekki sérlega vel en
stundum er hér jú mjög gott veður.
Þessi svokölluðu trukkarúm smell-
passa aftan á pallbíla og spara ves-
en við að tjalda eða finna gisti-
heimili. Trukkarúmin eru í raun
dýnur búnar til úr svipuðu efni og
bakpokar en þau má finna á vefsíð-
unni chttp://truckbedz.com/. Gæti
reynst vel í góðu veðri í veiðitúr
eða á skytteríi.
Dýna sem
smellpassar
Starfsmannasamtök kanadískra
trukkabílstjóra hafa farið af stað
með herferð til að kynna ungu
fólki þau ýmsu störf sem akstr-
inum tengjast. Það þurfa nefni-
lega ekki allir að verða bílstjórar
þótt þeir starfi á þessu sviði og
úr ýmsum öðrum störfum að
velja sem tengjast ýmist beint eða
óbeint trukkaakstri.
Ýmiss konar keyrsla
Í fyrsta lagi eru ekki öll bíl-
stjórastörf eins þar sem sumir
keyra aðeins lengri leiðir en aðrir
styttri og einnig getur verið mis-
munandi hvað er sótt og afhent.
Meðal annarra starfa þessu
tengdra má nefna sérfræðinga í
öryggismálum, afgreiðslustjóra,
sölu- og markaðsstörf og kerf-
isfræðinga. Fjöldi starfa tengist
einnig vörubílarekstri óbeint svo
sem fjármálastörf tengd iðn-
aðinum og fólk sem starfar á
sviði tækni og þróunarmála í
sambandi við vinnuvélar.
Náð til ungs fólks
Kanadísku samtökin vonast til
að fá til liðs við sig ungt fólk sem
er í leit að langtímastarfi. Her-
ferðinni er því ætlað að kynna
þessu fólki starfssviðið og störf
því tengd. Samtökin hafa látið
útbúa upplýsingabækling um
þetta sem dreift verður í vöru-
bílafyrirtæki víða um Kanada, en
markhópurinn er sagður vera,
auk menntaskólanemenda, kon-
ur, foreldrar og fólk sem þegar
starfar í svipuðum störfum.
Kanadískum ungmenni og starfskynning
Ekki bara bílstjórastörf