24 stundir - 08.04.2008, Qupperneq 30
30 ÞRIÐJUDAGUR 8. APRÍL 2008 24stundir
Hörkulegt
Hann segir mótmæli trukkabíl-
stjóra að undanförnu hafa verið
hörkulegri en Íslendingar eigi að
venjast. Samt hafi þeir notið
stuðnings almennings en auðvitað
hljóti fjölmargir að vera hundfúlir
út í þær tafir sem þeir hafa lent í.
Yfirvöld skynji þennan stuðning
við málstað bílstjóranna og þess
vegna fari þau varlega í að bregðast
við af einhverri hörku.
Yfir strikið
„Ég held samt að trukkabíl-
stjórarnir séu komnir á fremsta
hlunn með að ganga yfir strikið og
ég held að þeir átti sig á því sjálfir.
Enn sem komið er hafa þeir vinn-
inginn ímyndarlega og spurning
hvort þeir vilji taka áhættuna á að
ganga lengra. En gleymum því
ekki að þegar spurningin snýst um
að komast af eða hafa jákvæða
ímynd, þá sýnir sagan að lífs-
afkoman hefur yfirleitt vinning-
inn,“ segir Ólafur. Samkvæmt
fréttum hittust bílstjórar um
helgina til að skipuleggja frekari
mótmælaaðgerðir, sem að sögn
verða ekki framkvæmdar úti í um-
ferðinni.
Eftir Maríu Ólafsdóttur
maria@24stundir.is
Þorri þjóðarinnar stendur með
málstað bílstjóranna þó heyrst hafi
að skiptar skoðanir séu um fram-
kvæmd mótmælanna þar sem þau
hafi raskað daglegu lífi almennra
borgara. Hvað sem því líður er at-
hyglisvert að velta fyrir sér hvort
mótmæli hafi almennt góð eða
slæm áhrif á ímynd fyrirtækja eða
starfsstétta.
Í eðli sínu neikvæð
„Mótmæli eru í eðli sínu nei-
kvæð skilaboð, þannig að alltaf er
hætta á að þau geti skaðað ímynd
þeirra sem að þeim standa. En ef
töluverður hluti þjóðarinnar er á
sama máli og mótmælendur, þá
geta þeir gengið býsna langt án
þess að skaða ímynd sína,“ segir
Ólafur Hauksson, ráðgjafi í al-
mannatengslum.
Töluverðar tafir hafa
orðið í umferðinni.
Mótmæli eru í eðli sínu neikvæð skilaboð
Afkoman hefur betur
Undanfarið hafa vörubíl-
stjórar mótmælt háu
bensínverði með því að
tefja fyrir umferð á götum
úti. Róttæk mótmæli eru
síður en svo ný af nálinni.
➤ Mótmælendur geta gengiðbýsna langt án þess að skaða
ímynd sína njóti þeir stuðn-
ings.
➤ Yfirvöld skynja stuðning viðmálstað bílstjóranna og fara
því hægt í sakirnar.
ÍMYND
Ólafur Hauksson Ráð-
gjafi í almannatengslum
Nú stendur til
að selja heima-
síðuna Trukk-
ar.is en síðan er
vel sótt af vöru-
bílstjórum og
öðrum. Á síð-
unni kemur
fram að núver-
andi umsjón-
armaður síðunnar hefur haldið
henni úti í eitt ár og leitar nú að
eftirmanni sínum vegna búferla-
flutninga til útlanda.
Trukkar.is til sölu
Skemmtigarðurinn Diggerland er
starfræktur á fjórum stöðum í
Englandi. Þar geta börn lært um og
prófað að keyra ýmiss konar
vinnuvélar, litlar og stórar gröfur
og trukka svo eitthvað sé nefnt
undir styrkri leiðsögn leiðbein-
anda. Eftir skemmtilegan erf-
iðisdag má síðan fylla magann með
snarli á Dig Inn að verkamannasið.
Ýmiss konar sýningar eru einnig
settar upp í skemmtigarðinum.
Vinnuvéla-
skemmtigarður
Tvöföldun Reykjanesbrautar frá
Strandarheiði að Njarðvík gengur
hægt. Áætlanir Jarðvéla ehf. gerðu
ráð fyrir að lokið yrði við að tvö-
falda brautina við veginn að Vog-
um í lok ágúst í fyrra. Nú er hins
vegar alvitað að rekstur Jarðvéla
fór í þrot svo miklar tafir hafa orð-
ið á framkvæmdum í vetur og
framkvæmdir jafnvel legið alfarið
niðri svo mánuðum skiptir.
Tafsamar
framkvæmdir
24stundir/Júlíus
Hönnum og smíðum skóflur
í öllum stærðum,
á allar gerðir vinnuvéla.
Frábært verð.
Gerum verðtilboð.
100% HARDOX
Tökum einnig
að okkur viðgerðir
á skóflum.
Stál og Suða EHF • Stapahrauni 8. • 220. Hafnafjörður
Simi: 5545454-6935454 • heimir@stalogsuda.is
Gazelle 4x4 með krana
og sturtupalli
Gazelle 4x4 Sendibifreið
7 manna
Sunward beltagröfur
Ikura Rafmagns handlokkar og
segulborvélar
Soosan Fleygar í öllum stærðum
sennilega þeir bestu í dag
Gazelle 4x2 með sturtupalli
Skútahrauni 11
220 Hafnarfjörður
S. 565 2727
www.hraunbt.is
Gazelle 4x4 með krana og sturtupalli.
Verð 3.780 þ. + vsk.
Gazelle 4x4 sendibifreið 7 manna.
Verð 2.917.500 + vsk.
Gazelle 4x2 með sturtupalli
Verð 2.880 þ. + vsk.