24 stundir - 08.04.2008, Side 32

24 stundir - 08.04.2008, Side 32
32 ÞRIÐJUDAGUR 8. APRÍL 2008 24stundir Lillie Elizabeth Drennan var fyrsta konan í Bandaríkjunum til að fá leyfi til að keyra vörubíl. Lillie fæddist í Texas árið 1897 og fékk leyfið árið 1929. Hún rak fyr- irtækið Drennan Truck Line í nærri 24 ár til ársins 1952 en þá seldi hún fyrirtækið og keypti þá og rak fyrirtækið Six Shooter Junc- tion Novelty and Package Store. Lillie lést í Hempstead í september 1974. Félagasamtök kvenna Bandarísku félagasamtökin Wo- men In Trucking voru stofnuð til að hvetja konur til að starfa sem vörubílstjórar, tala máli þeirra og draga úr þeim hindrunum sem geta mætt konum í starfinu. Sam- tökin eru virk í því að finna tilefni til að sýna fram á færni og eigin- leika kvenna til starfsins. Þau eru þó opin báðum kynjum sem starfa sem bílstjórar eða hyggja á starfs- frama sem slíkir. Samtökin reiða sig á fjárframlög frá einstaklingum og fyrirtækjum og einblína á að gera starfsvalið auðveldara fyrir þá einstaklinga sem gætu mætt for- dómum eða mótlæti á leið sinni. Uppþot í Oklahóma Uppþot urðu í Oklahóma árið 1977 þegar forsvarsmenn fyrirtæk- isins Lee Way Motor Freight fyr- irskipuðu svo að bílstjórar fyrir- tækisins ættu hér með að starfa samhliða kvenkynsbílstjórum eftir að krafa var gerð um slíkt frá jafn- réttisráði í atvinnumálum. Þessi hörðu viðbrögð vöktu mikla at- hygli og ólgu í samfélaginu en tals- menn bílstjóra fyrirtækisins settu meðal annars á fót hópinn Trucker Families United og reyndu hvað þeir gátu til að koma í veg fyrir að konur kæmu til starfa hjá fyrirtæk- inu. Þrátt fyrir þessi hörðu við- brögð varð starfsmönnum ekki snúið í skoðun sinni. Hagsmunasamtök kvenna í trukkaheimi Opin báðum kynjum Fyrsta konan Lillie Elizabeth Drennan var sú fyrsta til að fá leyfi til að keyra vörubíl í Bandaríkjunum. Vinnuvélar eru risastórar og engin leið er að stýra þeim án þess að hafa fengið til þess sérstaka kennslu. Flest höfum við þó prófað það sem hægt er að kalla fyrstu vinnuvélina. Það er trukkurinn og stóra skóflan sem setið er á og stjórnað með höndunum. Hér er verið að tala um sandkassatækin sem notuð eru til að byggja draumaborgina á leikvellinum. Einhvers staðar verður að byrja. Fyrstu vinnuvélarnar Stórir og litlir sendibílar eru hvar sem litið er á Íslandi. Þeir flytja vörur í verslanir og húsgögnin okkar á milli húsa. Í Danmörku er þessu öðruvísi farið en þar er engin sendibílaþjónusta til að hringja í þegar þú kaupir þér risastórt rúm og vilt fá það heim til þín. Danir eiga flestir stóra kerru eða fá hana leigða og þeir redda þessu svo bara sjálfir. Það er nú óneitanlega þægi- legt að hringja bara á bíl. Engir sendibílar í Danmörku Þeir sem vilja vinna á stærri vinnu- vélum en hafa ekki efni á dýru vinnuvélanámskeiði ættu ekki að láta hugfallast alveg strax. Mörg fyrirtæki sem nota stórar vinnuvélar eru tilbúin að greiða hluta námsins fyrir væntanlega starfsmenn. Sumir geta jafnvel fengið námið að mestu greitt í gegnum stéttarfélag og vinnuveit- anda. Það er um að gera að skoða þennan möguleika. Dýr vinnuvéla- námskeið „Hættið að koma fram við neytendur eins og sauðfé,“ segir Þórarinn Ævarsson, fram- kvæmdastjóri Ikea á Íslandi, beð- inn um að gefa forkólfum olíufé- laganna góð ráð í rekstri. Þórarinn tók þá ákvörðun að hækka ekki verð á vörum Ikea þrátt fyrir gengisbreytingar fyrr en í ágúst ef þörf þykir. Ekki hækka samdægurs „Að stóru olíufélögin hækki ávallt um sömu krónu- tölu sama daginn og heimsmark- aðsverð á framvirkum samningum fer upp eða krón- an veikist er móðgun við réttlæt- isvitund og skynsemi fólks. Það er ekki eins og öll olíufélögin hafi átt jafn miklar birgðir eða að það sé nokkur þörf að hækka sama dag og verðið fer upp er- lendis.“ Lækkið líka „Sýnið í verki að það sé hægt að lækka verðið jafn hratt og það er hækkað, ef krónan styrkist eða heimsmarkaðsverðið fer niður.“ Ekki okra „Síðast en ekki síst. Gerið eft- irfarandi æfingu á hverjum morgni: Í stað þess að spyrja, hvað kemst ég upp með að selja eldsneytið dýrt í dag, spyrjið ykkur heldur, hvað þarf ég að selja eldsneytið dýrt í dag til að skila viðunandi framlegð.“ dista@24stundir.is Þórarinn í Ikea gefur þrjú ráð Neytendur ekki sauðfé 24stundir/Árni Sæberg Það getur verið ómetanlegt að hafa athugula og duglega mis- kunnsama samverja okkar á meðal en það fékk bílstjóri sorp- bíls að kynnast á dögunum. Bíl- stjórinn ók á þjóðvegi 133 í Worth County þegar vegfarandi bjargaði lífi hans og það mátti litlu muna að ökumaðurinn slas- aðist lífshættulega. Ökumaðurinn var að keyra þjóðveginn að morgni þegar kviknaði í bílnum. Íbúar í ná- grenninu heyrðu nokkrar sprengingar en síðar kom í ljós að þær voru vegna gasleka. Sam- kvæmt vitnum virtist bílstjórinn ekki vera alvarlega slasaður. „Ég var rétt fyrir aftan hann þegar hann fór út af,“ sagði Dav- id Daye, sem bjargaði ökumann- inum. „Bíllinn varð alelda stuttu eftir að hann klessti á nokkur tré. Ökumaðurinn var með belti á sér og var ringlaður. Ég tók beltið af honum og náði honum út áður en eldurinn barst í hús- ið.“ Athugull vegfarandi bjargar bílstjóra Bíllinn varð alelda Sorpbíll Ökurmaður sorpbíls í Banda- ríkjunum var heppinn á dögunum. Sparaðu pláss og peninga með BT Það er engu líkara en að vöruhúsatækin frá BT framleiði fermetra. Þar sem áður var þröngt verður rúmt og afköstin aukast til muna. Endilega hafðu samband við sérfæðinga okkar og fáðu upplýsingar. GEGGJAÐAR GRÆJUR www.tmh.is Allt um Toyota og BT

x

24 stundir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: 24 stundir
https://timarit.is/publication/307

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.