24 stundir - 08.04.2008, Blaðsíða 33
Eftir Hildi Eddu Einarsdóttur
hilduredda@24stundir.is
Tónleikaröðin Tónsnillingar morg-
undagsins hefst í Salnum í Kópa-
vogi í kvöld klukkan 20. Þar stíga á
stokk ungir og upprennandi tón-
listarmenn og í kvöld verða það
Elfa Rún Kristinsdóttir fiðluleikari
og Bragi Bergþórsson tenórsöngv-
ari sem leika fyrir gesti. Listrænn
stjórnandi tónleikaraðarinnar er
Kristinn Örn Kristinsson píanó-
leikari, sem einnig leikur með á
tónleikunum. „Tilgangurinn með
því að efna til þessarar tónleikarað-
ar er fyrst og fremst sá að koma
ungu og efnilegu tónlistarfólki á
framfæri en það er enginn hörgull
á slíku hér á landi. Þetta er bæði
hugsað sem vettvangur fyrir þau
sjálf að stíga á stokk og spreyta sig
sem einleikarar en líka sem tæki-
færi fyrir almenning að kynnast
tónlistarfólki framtíðarinnar,“ seg-
ir hann.
Flókið mál
Að sögn Kristins er það sjaldnast
einfalt mál fyrir ungt tónlistarfólk,
sem ef til vill er nýkomið úr námi,
að halda tónleika upp á eigin spýt-
ur. „Kostnaðurinn við tónleikahald
getur orðið fullmikill, til dæmis við
kynningu, salarleigu, laun fyrir
meðleik og svo framvegis. Þá er
fólk misfeimið við að vekja athygli
á sjálfu sér þannig að það er fullt af
mjög efnilegu tónlistarfólki hér á
landi sem fáir þekkja,“ útskýrir
hann.
Eins og fyrr segir verða fyrstu
tónleikarnir í Salnum í kvöld. Þeir
næstu verða haldnir eftir tvær vik-
ur, en þá spilar Helga Þóra Björg-
vinsdóttir fiðuleikari. Á vef tón-
leikaraðarinnar, tonsnillingar.is,
geta fleiri ungir tónlistarmenn sótt
um að fá að spila. „Við höfum þeg-
ar fengið töluvert af umsóknum og
fyrirspurnum, enda margir áhuga-
samir. Ég bind vonir við að þessi
tónleikaröð eigi eftir að endast
lengi og margir eigi eftir að koma
fram á henni, enda enginn hörgull
á góðu tónlistarfólki,“ segir hann
að lokum. Frítt er inn fyrir tónlist-
arnemendur yngri en 18 ára.
24stundir/Árni Sæberg
Ný tónleikaröð hefst í Salnum í kvöld
Listamenn framtíðar
➤ Í kvöld ætla Elfa Rún, Bragi ogKristinn að leika og syngja
Schwanengesang og Sónötu
fyrir fiðlu og píanó í A-dúr
eftir Schubert.
➤ Þann 23. apríl ætlar HelgaÞóra Björgvinsdóttir, ásamt
Kristni, að flytja verk eftir
Bach, Debussy, Prokofiev, Sa-
int Saëns og Szymanowski.
Á EFNISSKRÁUngt tónlistarfólk stígur
á stokk í Salnum í kvöld
klukkan 20 þegar tón-
leikaröðin Tónsnillingar
morgundagsins hefst.
Listrænn stjórnandi er
Kristinn Örn Kristinsson
sem segir engan hörgul á
efnilegu tónlistarfólki hér
á landi.
Á æfingu Elfa Rún, Bragi og Kristinn
æfa lög eftir Schubert.
24stundir ÞRIÐJUDAGUR 8. APRÍL 2008 33
Sýningin Brot á verkum tékk-
neska ljósmyndarans Jirka Ernest
opnar í Skotinu í Ljósmyndasafni
Reykjavíkur á morgun, miðviku-
daginn 9. apríl.
Jirka sleit barnsskónum í Mo-
raviu en býr í dag í Prag og hefur
að baki nám í FAMU-kvikmynda-
og sjónvarpsakademíunni í Prag
þar sem hann lagði stund á ljós-
myndun. Myndirnar á sýningunni
eru teknar á heimaslóðum hans í
Tékklandi og eru hugleiðingar um
líf hans og æsku í Moraviu og þær
breytingar sem hafa átt sér stað frá
þeim tíma, litaðar af hruni komm-
únismans. Hann skiptir efninu í
fimm flokka sem hann kallar
Heima?, Merki, Ljósaskipti,
Landamæri - Suður-Moravía og
Aðskildar borgir - Èeské Velenice.
Þetta er fyrsta sýning Jirka á Ís-
landi og mun hún standa yfir í átta
vikur.
Ný sýning í Ljósmyndasafni Reykjavíkur
Jirka Ernest sýnir í Skotinu
Lárus uppgötvar það í byrjun
leiksins að hann er „ólýsanlega ljót-
ur.“ Honum kemur þetta í opna
skjöldu en í kjölfar þess að allir í
kringum hann staðfesta lýsinguna
ákveður hann að fá sér nýtt andlit
með (ó)fyrirsjáanlegum afleiðing-
um. Þessi grunnhugmynd er ágæt –
en hún fer ekkert mikið lengra fyrr
en í blálokin á verkinu, sem eru að
vísu ansi smellin. Þannig verður
sýningin dálítið einhæf um miðbik-
ið. Kannski má kenna því um að
þessi uppfærsla virðist heldur lengri
en aðrar á sama verki erlendis. Það
bætir ekki verkið að teygja á því.
Leikstjórn Kristínar Eysteinsdótt-
ur var að öðru leyti fumlaus. Bygg-
ing verksins treystir á að leikararnir
og leikstjórinn séu pottþéttir - allar
persónur leiknar af sama leikara
heita sama nafni og aldrei fara fram
nein búningaskipti. Oft var skipt á
milli persóna án þess að leikararnir
færðu sig einu sinni úr stað á svið-
inu. Allt þetta skilaði sér með mikl-
um ágætum og voru áhorfendur
aldrei óvissir um það hvaða persón-
ur áttu í hlut.
Í aðalhlutverkinu er Jörundur
Ragnarsson og stóð hann sig vel. Þó
engin breyting væri gerð á útliti
hans, fyrir og eftir aðgerð, sáu
áhorfendur hana samt. Jörundur og
Dóra Jóhannsdóttir eiga þó bæði í
nokkrum vandræðum með radd-
beitingu. Stefán Hallur Stefánsson
hefur næma tilfinningu fyrir gam-
anleik og blómstar í hlutverkum
bæði lýtalæknisins og yfirmanns
Lárusar, þó að þeir séu óneitanlega
dálítið svipaðar týpur. Hlutverk
Vignis Rafns Valþórssonar voru lág-
stemmdari en hann gerði þau vel og
átti mjög eftirminnilegan lokakafla.
Þýðingin er hnökralaus eins og
leikhúsgestir eiga að venjast frá
Bjarna Jónssyni. Leikmyndin er
ákaflega einföld og öll hljóðmyndin
er sköpuð á sviðinu, sem kemur
mjög vel út, og ýtir undir þá upp-
lifun að þarna sé maður að sjá ein-
hverja frumleiklist. Það þarf ekkert
annað en fjóra leikara og handrit til
að magna upp leikhústöfra. Það
virkar.
Ferlega ljótur Lárus
Leikstjóri: Kristín Eysteinsdóttir
Höfundur: Marius von Mayenburg
Leikmynd: Ragnar Kjartansson
Þýðing: Bjarni Jónsson
Leikmynd og búningar:
Stígur Steinþórsson
Tónlist: Hallur Ingólfsson
Leikarar: Dóra
Jóhannsdóttir, Jörundur
Ragnarsson, Stefán
Hallur Stefánsson
og Vignir Rafn
Valþórsson
Sá ljóti
í Þjóðleikhúsinu
Eft ir Arndísi Þórarinsdóttur
arndis@24stundir.is
LEIKLIST
Í HNOTSKURN:
Það er heilmikið hægt að hlæja að
þessu verki og margt er vel gert
en hugmyndin er í grunninn full
einföld.
● Viltu taka þátt í að móta starfsemi nýrrar hjúkrunardeildar á Landakoti sem dvalar- og
hjúkrunarheimilið Grund mun reka?
● Trúnaður, traust og umhyggja eru höfð að leiðarljósi í samskiptum og að hætti Grundar er lögð
áhersla á góðan vinnuanda, sjálfstæð vinnubrögð og heimilislegt umhverfi.
GRUND – LANDAKOT
Okkur vantar nú þegar áhugasama hjúkrunarfræðinga, sjúkraliða, félagsliða og starfsfólk í umönnun og býtibúr
en deildin mun taka til starfa um miðjan maí.
Nánari upplýsingar um störf og launakjör veita Helga J. Karlsdóttir starfsmannastjóri í síma 5306165 og
Sigrún Faulk hjúkrunarforstjóri í síma 5306188. Einnig er hægt að senda inn umsóknir á www.grund.is
MENNING
menning@24stundir.is a
Það er fullt af mjög
efnilegu tónlistarfólki
hér á landi sem fáir þekkja.