24 stundir - 08.04.2008, Page 35
24stundir ÞRIÐJUDAGUR 8. APRÍL 2008 35
JAKKAR
frá 3.990 kr.
British Airways þurftu að aflýsa 126 flug-
ferðum til og frá Heathrow-flugvelli aðfara-
nótt sunnudags síðastliðins. 12 af þessum
flugferðum þurfti að aflýsa vegna villu í
tölvukerfi í nýju flugstöðvarbyggingunni en
hinum 114 flugferðunum var aflýst vegna
snjóþyngsla.
Mikið hefur verið fjallað um vandamál
British Airways í tengslum við nýju flug-
stöðvarbygginguna á Heathrow-flugvelli, þar
sem gríðarlegur fjöldi ferðataskna hefur ým-
ist orðið eftir á brottfararstað eða verið send-
ur á rangan áfangastað og ekki sér enn fyrir
endann á þeim vandræðum. Snjókoman um
helgina bætti svo gráu ofan á svart þó svo að
hún sé vitaskuld ekki afleiðing mannlegra
mistaka.
Nýju flugstöðvarbyggingarinnar við Heat-
hrow-flugvöll var beðið með mikilli eftir-
væntingu þangað til hún var opnuð nú ný-
verið. British Airways er eina flugfélagið sem
hefur afnot af byggingunni og hefur félagið
beðið mikla álitshnekki eftir endalausa röð
vandræða í tengslum við innritunar- og far-
angurskerfið. Hafa þessi vandræði orðið til
þess að aflýsa hefur þurft fjölda flugferða
ásamt því sem fjölmargar ferðatöskur hafa
týnst.
Vegna snjókomunnar um helgina þurfti
að vísu ekki bara að aflýsa flugferðum til og
frá Heathrow-flugvelli þar sem einnig þurfti
að aflýsa 32 flugferðum til og frá Gatwick-
flugvelli. Næstu daga er spáð rigningu í
London en ekki er útilokað að meira eigi eft-
ir að snjóa þar sem og víðar í Bretlandi fyrir
vorið. Þannig er ekki útilokað að vandræði
helgarinnar eigi eftir að endurtaka sig á flug-
völlum landsins á næstunni.
Snjór í Bretlandi um helgina
Áfram vandræðagangur á Heathrow
Mannmergð Örtröð
á Heathrow-flugvelli
vegna röð mistaka.
TREX-ferðaskrifstofa býður upp
á vorferð til Færeyja dagana 21.
til 28. maí næstkomandi. Í ferð-
inni verður gengið um gamlar
þjóðleiðir milli byggðarlaga í
fjórum af 18 eyjum Færeyja. Gist
verður í uppbúnum rúmum á
farfugla- og gistiheimilum með
morgunverði ásamt því sem
kvöldverður er innifalinn í fimm
skipti og nestispakki í sex skipti.
Sambærileg ferð hefur verið farin
undanfarin tvö ár og þótt takast
mjög vel, en aðeins eru örfá sæti
laus í þessa ferð. Fararstjóri er
Sigrún Valbergsdóttir.
Gönguferð
um Færeyjar
Segja má að það sé óskrifuð regla
að ferðamenn í Berlín verði að
stoppa á mörkum austur- og
vesturhluta borgarinnar og virða
fyrir sér gömlu landamærastöð-
ina Checkpoint Charlie. Lítið er
eftir af henni núna annað en lítill
skúr og skilti sem á stendur: „Nú
ert þú að yfirgefa bandarískt yf-
irráðasvæði“ á nokkrum tungu-
málum. Skammt frá skiltinu er
safnið Haus am Checkpoint
Charlie, sem segir sögu þeirra
sem dóu eða voru fangelsaðir
þegar þeir reyndu að fara frá
austri til vesturs.
Sögufræg
landamærastöð
Íslenski fjallahjólaklúbburinn
stendur fyrir þremur nám-
skeiðum í reiðhjólaviðgerðum
fyrir almenning í apríl. Þau verða
haldin fimmtudagana 10., 17. og
24. apríl í félagsaðstöðu klúbbs-
ins á Brekkustíg 2 og hefjast
stundvíslega klukkan 20. Fyrri
tvö námskeiðin verða fyrir byrj-
endur og þriðja námskeiðið fyrir
lengra komna. Aðgangur er öll-
um opinn. Fyrirfram skráning fer
fram hjá Fjölni í síma 8403299
eða á fjolnirb@actavis.is.
Gert við reiðhjól