24 stundir - 08.04.2008, Page 37
24stundir ÞRIÐJUDAGUR 8. APRÍL 2008 37
Eftir Einar Jónsson
einarj@24stundir.is
Gróðurhús getur komið þeim vel
sem hafa pláss fyrir það í garðinum
og óbilandi áhuga á ræktun. Með
því má lengja vaxtartíma plantna,
sá fyrr á vorin, til dæmis matjurt-
um og vissum sumarblómum. Sé
húsið upphitað aukast möguleik-
arnir enn frekar og þar má rækta
ýmsar plöntur sem myndu annars
ekki þrífast hér á landi.
Einnig hefur færst í aukana að
fólk komi sér upp gróðurhúsum
við sumarbústaði, meðal annars í
því skyni að koma trjáplöntum á
legg.
Gróðurhús eru jafnmisjöfn og
þau eru mörg og því brýnt að fólk
velji hús miðað við þarfir og fyr-
irhugaða notkun. Í miklu sólskini
verður til dæmis yfirleitt of heitt
fyrir flestar plöntur í gróðurhúsi og
því mikilvægt að hægt sé að stjórna
hitanum til dæmis með sjálfvirk-
um gluggaopnurum.
Það er ekki síst mikilvægt að
huga vel að hitastigi í gróðurhús-
um á þessum árstíma enda geta
sveiflur verið miklar. Á næturna
getur hitinn farið undir frostmark
en upp í 35-40 gráður á sólríkum
dögum.
Salan tvöfaldast milli ára
Fyrirtækið Jötunn vélar á Sel-
fossi býður upp á allar stærðir og
gerðir af gróðurhúsum og hefur
eftirspurnin aukist mjög á undan-
förnum árum. „Það hefur nánast
verið tvöföldun í sölu á hverju ein-
asta ári,“ segir Össur Björnsson,
þjónustustjóri hjá Jötni. Vinsæl-
ustu húsin heita Serralux og eru fá-
anleg í nokkrum stærðum. „Fólk
tekur helst hús sem eru 3 metra
breið og 4,5 á lengd,“ segir Össur
en hús af þeirri stærð kostar um
325.000 kr. Ódýrustu húsin sem
Jötunn býður upp á eru af gerðinni
Easy2Build og kostar ódýrasta
gerðin (1,8 x 1,8 m) um 60.000 kr
en sú dýrasta (1,8 x 3) tæpar 80.000
kr. „Þetta er nánast eins og mann-
gengur vermireitur og hentar
kannski í skjólgóða garða þar sem
plássið er lítið,“ segir Össur.
Sérsniðin að húsinu
Jón Bergsson ehf. hefur boðið
upp á glerskála frá fyrirtækinu IPC
sem fólk getur fest upp við vegg
íbúðarhússins. „Fólk getur nýtt
þetta sem gróðurhús en einnig yfir
pottinn, veröndina eða hvað sem
er,“ segir Jón Arnarson hjá Jóni
Bergssyni ehf. Skálarnir eru sér-
sniðnir að hverju húsi fyrir sig og
eru því misstórir. Breiddin getur
verið allt að 4,5 metrar og algengt
er að þeir séu 6-10 metrar á lengd.
„Verðið byrjar í um 1.400 þúsund-
um og þá erum við að tala um um
það bil 12 fermetra skála. Skáli sem
væri þrisvar sinnum stærri, 36-38
fermetrar kostaði rétt um tvær
milljónir,“ segir Jón og bætir við að
jafnframt sé frekar einfalt og fljót-
legt að setja skálana upp.
Auknir möguleikar Með gróð-
urhúsi aukast möguleikar fólks til
ræktunar. Hér vökvar nunna í Kar-
melklaustrinu í Hafnarfirði plöntur í
gróðurhúsi klaustursins.
Ræktun undir glerþaki
Gróðurhús af öllum
stærðum og gerðum
Með því að koma sér upp
gróðurhúsi í garðinum
má lengja vaxtartíma
plantna og jafnvel rækta
plöntur sem að öðrum
kosti myndu ekki þrífast
svo glatt í íslenskri mold.
24 stundir kynntu sér
ýmsa kosti á markaðnum.
➤ Lega gróðurhússins í garð-inum skiptir máli og þurfa
birtuskilyrði að vera góð.
➤ Vor- og haustbirta nýtur sínbest ef gaflar hússins snúa í
austur og vestur.
➤ Ýmsar hagnýtar upplýsingarum gróðurhús má nálgast á
vefsíðu Garðyrkjufélags Ís-
lands www.gardurinn.is.
GRÓÐURHÚS
Þeir sem ekki hafa pláss fyrir gróðurhús í garðinum
geta ef til vill látið gróðurhús-gögn nægja en svo kall-
ast þessir skemmtilegu gripir sem kynntir voru á sýn-
ingunni Íslensk samtímahönnun í fyrrasumar. Dagný
Bjarnadóttir landslagsarkitekt á heiðurinn af hönnun
gripanna en þeir sameina í raun kosti húsgagns og
gróðurhúss. Hægt er að opna og loka stólunum og
borðin sömuleiðis.
Í þeim má rækta plöntur svo sem kryddjurtir eða
sumarblóm á milli þess sem maður notar þau sem
borð eða stóla.
Gróðurhúsgögn
Til sölu er: Glæsileg 109
fm. íbúð með sérinngangi
á besta stað í 101 Kópa-
vogi – allt í göngufæri:
Heilsugæsla, bankar,
læknastofur, verslanir,
Gerðasafn, Salurinn,
Kópavogskirkja, strætis-
vagnastöð, og vegir til
allra átta.
Komið er inn í góða flísalagða forstofu með stórum fataskápum úr eik –
falleg útidyrahurð m/gleri. Úr forstofu er gengið inn í opið hol í miðjunni.
Baðherbergi er beint á móti, allt flísalagt í hólf og gólf, innrétting úr eik,
sturta m/glerveggjum, w.c. vaskur, góð loftræsting. Á vinstri hönd er
mjög stórt, bjart og opið stofu/borðstofurými með eldhúsi, gluggar eftir
endilöngu, hvítar gluggakistur.
Falleg og rúmgóð Eldhúsinnrétting úr eik með eldunareyju, flottur viftu-
háfur yfir, ARISTON eldunarplata og bakaraofn. Dökkgráar borðplötur, gert
ráð fyrir uppþvottavél og háum ísskáp. Mosaikflísar á milli skápa. 2 stór
og góð herbergi með glæsilegum skápum, eikarparket á gólfum, gluggar.
Þvottaherbergi flísalagt, vinnuborð, vaskur, flottar snúrur, góð vifta. Mjög
fín geymsla flísalögð, með viftu.
Sjónvarpstengi og internet tengingar um alla íbúðina. Eikar innihurðir. Í
sameign er sérgeymsla (4,8 fm) ásamt ruslageymslum. Allt nýtt í íbúð,
einnig rafmagn og pípulagnir, nýmálað. Húsið var áður Bókasafn Kópa-
vogs en var tekið í gegn og útbúnar 6 íbúðir á síðasta ári. Sérstaklega góð
eign á frábærum stað með nægum bílastæðum og bílastæðahúsi, aðgengi
beint af götu. Verð 24,8 millj.
Eggert Sk. Jóhannesson, Jóhannes Eggertsson, Ólafur Thoroddsen hdl.
Nánari upplýsingar veitir
Fasteignasalan Eignaver
Sími 553-2222 • eignaver.is
Síðumúli 13 • 108 Reykjavík
Falleg íbúð í Fannborg,
Kópavogi til sölu
Sumarbústaðurinn er 48,6
fm + stórt svefnloft og er
rúmlega tilbúið til
innréttinga. Er á fallegum
stað undan Búrfelli,
nálægt Kerinu í Grímsnes-
og Grafningshrepp.
Tvö svefnherbergi,
baðherbergi, stofa og
eldhús. Rafmagn er komið
í húsið ásamt köldu vatni en heitavatnið er áætlað að komi á árinu.
Húsið stendur á 8.200 fm eignarlóð. Langtímalán til yfirtöku.
Eggert Sk. Jóhannesson, Jóhannes Eggertsson, Ólafur Thoroddsen hdl.
Nánari upplýsingar veitir
Fasteignasalan Eignaver
Sími 553-2222 • eignaver.is
Síðumúli 13 • 108 Reykjavík
Nýtt sumarhús
við Kerið í Grímsnesi sölu
Heilsuvika Hrafnistu
vikuna 7. til 11. apríl
vi
lb
or
ga
@
ce
nt
ru
m
.is
Fylltar paprikur
með geitarosti,
steiktum hrísgrjónum
og speltbrauði