24 stundir - 11.04.2008, Síða 4

24 stundir - 11.04.2008, Síða 4
Eftir Frey Rögnvaldsson freyr@24stundir.is Miklar byggingaframkvæmdir sem staðið hafa yfir á bökkum Þing- vallavatns síðustu daga gætu orðið þær síðustu um nokkurt skeið. Þingvallanefnd hefur ákveðið að veita ekki leyfi fyrir frekari end- urbyggingum innan þjóðgarðsins fyrr en nefndin hafi rætt bygging- arskilmála. „Innan nefndarinnar eru þau sjónarmið uppi að aðeins eigi að heimila endurgerð í sama stíl og eldri bústaður var“ segir Björn Bjarnason formaður Þing- vallanefndar. Mikið umleikis Eldri bústaður stóð á þeim stað þar sem nú eru framkvæmdir í gangi. Sá bústaður var rifinn og stendur jarðvegsvinna nú yfir á svæðinu. Mikið var umleikis í gær við framkvæmdirnar eins og með- fylgjandi myndir bera með sér. Meðal annars var notuð þyrla til að flytja á brott jarðveg sem graf- inn var upp og var hún í stans- lausum ferðum fram eftir degi. Þingvallanefnd gaf leyfi Þingvallanefnd gaf jákvæða um- sögn um framkvæmdina og bygg- ingaleyfi var samþykkt 25. septem- ber síðastliðinn. Bústaðurinn sem um ræðir verður samkvæmt upp- lýsingum frá byggingafulltrúa 90 fermetrar en það er hámarksstærð samkvæmt deiliskipulagsreglum þjóðgarðsins. Gagnrýnt hefur ver- ið hversu nálægt vatnsbakkanum bústaðurinn muni standa en skýr- ingin á því er sú að leyfilegt er að byggja upp á sama stað og eldri bústaður stóð á. Nýbyggingar eiga samkvæmt almennri reglu að vera að lágmarki í fimmtíu metra fjar- lægð frá vatnsbakka. Eigandi bú- staðarins er Ágúst Guðmundsson, annar Bakkavararbræðra. Óánægja með framkvæmdina Allnokkur kurr er meðal íbúa í Þingvallasveit og reyndar mun víðar með framkvæmdina. Íbúi í grenndinni sem 24 stundir ræddu við sagðist mjög undrandi á því að Þingvallanefnd hafi gefið leyfi fyrir framkvæmdunum. „Þetta er þvert á þá stefnu sem mótuð hefur verið varðandi þjóðgarðinn. Þetta er gíf- urlegt rask sem þarna á sér stað og miklu víðtækara en bara á lóðinni sjálfri. Þarna er farið um á fjór- hjólum um göngustíga og þeir hafa skemmst við umferðina. Þetta er hið versta mál.“ Fjárheimildir vantar Um níutíu sumarbústaðir eru innan þjóðgarðsins og er stefna Þingvallanefndar að þeim verði fækkað. Þingvallanefnd hefur for- kaupsrétt við sölu á sumarhúsum og getur gengið inn í hæsta boð. Ekki hafa fengist fjárheimildir til slíkra kaupa undanfarin ár enda markaðsverð verið mjög hátt. Björn segir mikinn vilja til þess að kaupa upp fleiri bústaði. „Sam- þykki Alþingi sérstakar fjárheim- ildir fyrir nefndina til uppkaups á sumarbústöðum yrðu þær að sjálf- sögðu nýttar í samræmi við þá ákvörðun.“ ÞEKKIR ÞÚ TIL? Hringdu í síma 510 3700 eða sendu póst á 24@24stundir.is Ekki frekari framkvæmdir?  Þingvallanefnd leyfir ekki frekari endurbyggingar að sinni 24stundir/Ingimar Umfang Framkvæmd- irnar sem nú standa yfir í þjóðgarðinum eru mjög umfangsmiklar. 4 FÖSTUDAGUR 11. APRÍL 2008 24stundir TB W A\ R E Y K JA V ÍK \ S ÍA Skeifunni17 • Smáralind • Akureyri • Ísafirði • Egilsstöðum • Vestmannaeyjum • Selfossi • Hafnarfirði (Bókabúð Böðvars) Allt fyrir skólann undir 1 þaki Engan sakaði og litlar skemmdir urðu er eldur kom upp í Turninum í Kópavogi á miðvikudagskvöld. Eldurinn kom upp í vinnuaðstöðu fyrir byggingarframkvæmdir í til- vonandi verslunarrými í viðbygg- ingu, á hæðinni fyrir ofan leik- fangaverslunina Toys’R’Us. Birgir Finnsson, sviðsstjóri útkallssviðs hjá slökkviliðinu, segir ekkert liggja fyrir um eldsupptök. „Reykur og sót olli einhverjum skemmdum og svo lak vatn niður í Toys’R’Us, en á mjög afmörkuðu svæði.“ Húsið var rýmt er eldsins varð vart, en fólk var meðal annars að finna í líkamsræktarstöð á 15. hæð og veitingastað á þeirri 19. Birgir segir eldvarnarvegg standa milli viðbyggingarinnar og sjálfs turns- ins. „Við höfðum aldrei áhyggjur af því að sá veggur héldi ekki.“ Slökkvilið fór yfir brunavarnir með rekstraraðilum hússins í gær til að sjá hvaða lærdóm mætti draga af málinu. atlii@24stundir.is Eldur í Turninum í Kópavogi Litlar skemmdir „Alþingi ályktar að fela rík- isstjórninni að móta stefnu í málefnum kvenfanga og undirbúa byggingu deilda- skipts fangelsis fyrir kon- ur,“ segir í þingsályktun- artillögu sem þingmenn VG lögðu fram á þingi í gær. „Það eru bara svo fáar kon- ur sem afplána á hverjum tíma, á bilinu fjórar til átta. Það hlýtur að vera snúið að koma upp sér fangelsi fyrir þær, hvað þá deildaskiptu,“ segir Erlendur S. Baldursson afbrotafræð- ingur hjá Fangelsismálastofnun og bætir við að ekki þurfi að vera hentugt að hafa alla kvenfanga saman. „Við uppbyggingu á Litla- Hrauni og síðan hér í Reykjavík verður tekið tillit til hagsmuna kven- fanga,“ segir Björn Bjarnason dómsmálaráðherra og því virðist ólík- legt að af sérstöku kvennafangelsi verði. Nú afplána konur í fangelsinu í Kópavogi auk þess sem Kvíabryggja hefur verið opnuð konum. þkþ Kvennafangelsi ólíklegt Forseti Íslands, Ólafur Ragnar Grímsson, og Dorrit Moussaieff forsetafrú halda í opinbera heim- sókn til Skagafjarðar að morgni mánudags 14. apríl næstkomandi og stendur heimsóknin í tvo daga. Á fjölþættri dagskrá eru heimsóknir í grunnskóla, heil- brigðisstofnanir, fjölbrautaskóla, vinnustaði og sveitabýli auk þess sem haldin verður viðamikil fjöl- skylduhátíð í íþróttahúsinu á Sauðárkróki að kvöldi mánu- dagsins. Forsetinn til Skagafjarðar Neytendasamtökin eru frjáls félagasamtök: stofnuð árið 1953. Þau verja hag félagsmanna og berjast fyrir hagsmunum neytenda. Sjá www.ns.is - netfang:ns@ns.is Neytendasamtökin könnuðu að þessu sinni verð á umfelgun og jafnvægisstillingu fyrir fólksbíl (fjögur dekk). Miðað er við 13-15" dekk á stálfelgum. Hæsta verð reyndist vera 39,6% hærra en það lægsta eða 1.900 krónur munur. Sum hjólbarðaverkstæðanna veita 5-10% staðgreiðsluafslátt og eru neytendur sem staðgreiða með peningum eða debetkorti hvattir til að spyrja eftir slíkum afslætti. Óheimilt er að vitna í verðkönnunina í auglýsingum. 40% munur á umfelgun Jóhannes Gunnarsson NEYTENDAVAKTIN Umfelgun og jafnvægisstilling fyrir fólksbíl - 4 dekk Hjólbarðaverkstæði Verð Verðmunur Vaka Reykjavík 4.800 Bílkó Reykjavík 5.612 16,9 % Hjólbarðaverkstæði Ísafjarðar 5.890 22,7 % Dekkjahöllin Akureyri 6.356 32,4 % Sólning Kópavogi 6.365 32,6 % Barðinn Reykjavík 6.700 39,6 %

x

24 stundir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: 24 stundir
https://timarit.is/publication/307

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.