24 stundir - 11.04.2008, Side 6

24 stundir - 11.04.2008, Side 6
6 FÖSTUDAGUR 11. APRÍL 2008 24stundir Eftir Þóru Kristínu Þórsdóttur thorakristin@24stundir.is „Það er munur á því hversu líkleg ungmenni eru til sjálfvígshugsana og sjálfsvígstilrauna eftir því í hvaða skólahverfi þau búa,“ segir Jón Gunnar Bernburg, dósent í fé- lagsfræði við Háskóla Íslands, en hann hefur gert viðamikla rann- sókn á líðan íslenskra unglinga. „Það myndast ákveðin sameiginleg viðhorf innan hópsins, sem ráðast af samspili á milli einstaklinganna sjálfra og umhverfisins, í þessu til- felli skólahverfisins,“ segir hann. Uppbygging hverfisins Rannsóknir Jóns Gunnars og samstarfsmanna hans benda til þess að ýmsir þættir í uppbygg- ingu hverfisins hafi áhrif á líðan unglinga í hverfinu, til dæmis fé- lagsleg og efnahagsleg staða íbú- anna. „Ef fátækt er útbreidd í hverfinu virkar það eins og sjálf- stæður áhættuþáttur fyrir sjálfs- vígshugsanir og almenna vanlíðan unglinga, og það á líka við um þá unglinga sem ekki búa við fátækt heima hjá sér,“ segir Jón Gunnar. Tengslamyndun milli íbúanna skiptir einnig máli. „Í hverfum þar sem foreldrar og nágrannar þekkj- ast er börnum veitt meira aðhald, m.a. vegna þess að fólk treystir sér frekar til að skipta sér af óæskilegri hegðun barna ef það þekkir for- eldrana. Í hverfum þar sem mikið er um flutninga til og frá svæðinu eru líkur á að slík tengsl rofni og þar með minnkar traust og að- hald. Þar viðgengst frekar óæskileg hegðun og foreldrar eiga erfiðara með að stilla saman strengi, t.d. varðandi útivistarreglur,“ segir Jón Gunnar. Því sé hægt að draga úr vandamálum í hverfinu með því að styrkja samskipti og samvinnu á milli foreldra. „Jafnframt sýna erlendar rann- sóknir að samþjöppun innflytj- enda í ákveðin hverfi getur dregið úr samskiptum nágranna og þann- ig aukið líkur á áhættuhegðun ungs fólks,“ segir Jón Gunnar. Börnin þurfa stuðning Jón Gunnar segir einstaklings- þætti einnig skipta máli fyrir líðan unglinga, t.d. eru unglingar frá brotnum fjölskyldum líklegri til að finna fyrir vanlíðan. „Þetta snýst samt aðallega um hversu góð og þétt samskiptin eru í fjölskyldunni og þá ekki síst hvort börnin fá stuðning frá foreldrunum.“ Þá bendir hann á að samspil sé á milli einstaklingsþáttanna og hverfisins, t.d. sé líklegra að fátækt á heimili sé vandamál hjá ung- menni sem býr í efnameira hverfi heldur en efnaminna vegna þess að það ber aðstæður sínar saman við aðstæður félaganna í hverfinu. Vandamálin smitast „Unglingarnir skilgreina veru- leikann í sameiningu og hafa gríð- arlega mikil áhrif hver á annan. Fáeinir aðilar sem líður illa eða sýna óæskilega hegðun, t.d. nota fíkniefni, geta haft áhrif á jafnaldr- ana í kringum sig. Þar með geta vandamál fáeinna einstaklinga breiðst út og orðið vandamál sam- félagsins,“ segir Jón Gunnar. Vanlíðan ungmenna tengd skólahverfinu  Mislíklegt er að unglingar íhugi sjálfsmorð eftir skólahverfum, skv. nýrri rannsókn  Mestar eru líkurnar í fátækustu hverfunum  Tengsl íbúa skipta miklu máli Stuðningur Jón Gunnar segir stuðning foreldra skipta miklu. ➤ Auk Jóns Gunnars unnu Þór-ólfur Þórlindsson og Inga Dóra Sigfúsdóttir fé- lagsfræðingar að rannsókn- inni. ➤ Gögnin eru svör 5491 ung-lings í 9. og 10. bekk í könnun sem lögð var fyrir árin 2000 og 2001. RANNSÓKNIN Félagsvísindadeild Háskólans á Bifröst stendur í dag fyrir ráðstefnu í Iðnó klukkan 14.00 undir yfir- skriftinni Er hægt að læra að vera forsætisráðherra? Einn þeirra sem flytja erindi á ráðstefnunni er Jón Baldvin Hannibalsson, fyrrverandi utanríkisráðherra. Jón Baldvin seg- ir að forsætisráðherra verði að hafa þekkingu á öllu. „Forsætisráðherra á ekki að vera sérfræðingur, hann á að hafa almenna þekkingu. Þó er það svo að íslensk pólitík hefur ver- ið hundrað ára rifrildi um efna- hagsmál og því á forsætisráðherra ósköp bágt ef hann skilur hvorki upp né niður í þeim. Þess vegna er athyglisvert að af þeim 26 forsæt- isráðherrum sem setið hafa á heimastjórnartímanum hefur að- eins núverandi ráðherra verið hag- fræðingur.“ Jón Baldvin segir að 75 ár af 81 ári frá því að forsætisráðherraemb- ættið var stofnað hafi sá sem sat í því embætti verið úr Sjálfstæðis- Framsóknarflokknum „Leiðin er því væntanlega að ganga snemma í flokkinn og vinna sig upp.“ fr Forsætisráðherra þarf að skilja efnahagsmál Einn hagfræðingur Vinnulaunamál sex fyrrverandi starfsmanna Króníkunnar var tekið fyrir í Héraðsdómi Reykjavíkur í gær. Útgáfu Króníkunnar var hætt síðastliðinn vetur eftir að sjö tölu- blöð höfðu verið gefin út. Útgáfu- félag Króníkunnar, Fréttir ehf., gerði samning við útgefendur DV um að starfsmönnum yrðu boðin störf á DV sem þeir þáðu ekki. Þóra Kristín Ásgeirsdóttir, varaformaður Blaða- mannafélagsins, segir félagið vilja láta reyna á það hvort útgefandi geti framselt starfssamninga blaða- manna til þriðja aðila „eða, eins og blaðamenn töldu í þessu tilfelli, hvort innganga starfsstöðvarinnar í annað fyrirtæki jafngildi því að hún sé lögð niður“. Enn fremur er tekist á um upp- sagnarákvæði í samningum. „Við viljum líka láta reyna á það hvort reyndir blaðamenn sem fengnir eru til starfa af öðrum fjölmiðlum geti talist lausráðnir ef til riftunar á starfssamningi kemur innan þriggja mánaða tímabils,“ segir Þóra. Mál starfsmanna Króníkunnar fyrir dóm Tekist á um fram- sal starfssamninga „Miðað við vinsældir spurn- ingakeppna hér á Ströndum gæti orðið góð mæting,“ segir Gunnar B. Melsted, annar tveggja áhugamanna um gott félagslíf sem standa fyrir spurningakeppninni Drekktu betur á Café Riis í Hólmavík nk. föstudag. Keppt er í tveggja manna liðum og verða spurningarnar almennar. Í verðlaun er kassi af öli. þkþ Kráarkeppni í Hólmavík Hólmvíkingar drekka betur „Það er vitað að þarinn bætir líðan, er bólgueyðandi og hreinsandi,“ segir Sigurbjörg Daníelsdóttir en hún ásamt þremur öðrum konum hyggst bjóða upp á slakandi böð með sérstakri þarablöndu í kjallara sundlaugarhússins á Reykhól- um í sumar. „Staðurinn hefur auðvitað upp á allt að bjóða fyrir heilsueflingu, t.d. leir, þara, heitt vatn og hreint loft,“ segir Sigurbjörg. þkþ Nýjung á Reykhólum Heilsusamleg þaraböð HEILBRIGÐISVÍSINDASVIÐ www.hi.is Næringarfræði Grunn- og framhaldsnám í næringarfræði ÍS L E N S K A /S IA .I S /H S K 4 19 23 0 4/ 08 Haustið 2008 mun í fyrsta sinn á Íslandi verða boðið upp á nám til BS-gráðu í næringarfræði. Námslínan er svar við sívaxandi þörf fyrir fagfólk á sviði næringar- fræði til að takast á við mikilvæg verkefni í samfélaginu. Námið er fjölbreytt og þverfaglegt og byggir bæði á bóklegu og verklegu námi og raunhæfum verkefnum. Ný tækifæri við Háskóla Íslands » Umsóknarfrestur í grunnnám er til 5. júní. » Umsóknarfrestur í framhaldsnám er til 15. apríl. » Umsóknareyðublöð má nálgast á heimasíðu: www.naering.hi.is Einnig er boðið er upp á meistara- og doktorsnám í næringarfræði. Erlent samtarf er einkennandi fyrir næringarfræðinga við Háskóla Íslands og eru þeir þátttakendur í mörgum alþjóðlegum rannsóknarverkefnum. Nemendur eiga því kost á mikilli reynslu gegnum alþjóðleg tengsl. Löggilt starfsheiti næringarfræðings krefst MS-gráðu í greininni. Rannsóknaráherslur eru meðal annars: » Næring viðkvæmra hópa » Lýðheilsunæringarfræði » Klínísk næringarfræði » Næringarefnafræði » Íþróttanæringarfræði » Næring þróunarlanda » Vöruþróun og neytendafræði

x

24 stundir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: 24 stundir
https://timarit.is/publication/307

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.