24 stundir - 11.04.2008, Qupperneq 8
8 FÖSTUDAGUR 11. APRÍL 2008 24stundir
Danska þingið samþykkti í
gær að veita Marie Cavallier,
heitkonu Jóakims prins,
danskan ríkisborgararétt.
Hún var áður franskur rík-
isborgari, en kaus að fara
sömu leið og prinsessurnar
Alexandra Manley og Mary
Donaldson, sem fengu rík-
isborgararétt áður en þær
gengu að eiga Danaprinsa.
Marie og Jóakim munu ganga
í hjónaband 24. maí næstkom-
andi og er undirbúningur í
fullum gangi í Amalíuborg. aij
Verðandi prinsessa
Marie Jóakims
verður Dani
STUTT
● Innflytjendur deyja Lögreglan
í Taílandi fann 54 ólöglega inn-
flytjendur frá grannríkinu
Mjanmar látna í vörubíl. Höfðu
þeir kafnað á leiðinni til lands-
ins, en í bílnum hafði ríflega
hundrað manns verið komið
fyrir.
● Nepalar kjósa Þingkosn-
ingar í Nepal fóru betur fram
en búist var við. Í aðdraganda
kosninga var mikið um róstur,
sem meðal annars kostuðu 8
manns lífið á þriðjudag. Taln-
ing atkvæða gæti tekið tíu
daga.
Eftir Andrés Inga Jónsson
andresingi@24stundir.is
Lögmenn bandarísks sértrúarhóps
sem klauf sig frá Mormónakirkj-
unni segja aðgerðir lögreglu stang-
ast á við trúfrelsi. Lögregla hafnar
því og segir málið einfaldlega snú-
ast um umfangsmikið kynferðisof-
beldi og misnotkun á börnum.
Yfirheyrslur yfir hundruðum
barna sem fjarlægð voru af búgarði
sértrúarhópsins í Texas hafa leitt í
ljós að stúlkur voru neyddar í
hjónaband með eldri karlmönnum
strax og þær þóttu nógu gamlar –
allt niður í tólf ára. Mennirnir tóku
sér margar konur og heimilisof-
beldi var útbreitt.
Sextán ára móðir
Lögregla komst á snoðir um
ástand mála þegar 16 ára stúlka
hringdi í hjálparlínu fyrir þolendur
heimilisofbeldis. Sagðist hún vera
sjöunda eiginkona fimmtugs
manns, sem beitti hana ofbeldi.
Með honum ætti hún 8 mánaða
barn og væri ólétt af öðru.
Stúlkan er ekki á meðal þeirra ríf-
lega 400 ungmenna sem fjarlægð
voru af búgarðinum, og leit stendur
yfir að eiginmanni hennar. Talið er
að hann sé í Arizona, þar sem hann
hlaut á síðasta ári dóm fyrir aðild að
kynferðislegri misnotkun á börnum.
Óttast heilaþvott
Mikill viðbúnaður var þegar
ráðist var til atlögu á búgarðinum.
Yfirvöld óttuðust að söfnuðurinn
myndi bregðast við með sama
hætti og gerðist þegar ráðist var
gegn öðrum hópi í Waco í Texas ár-
ið 1993. Svo fór ekki – lögregla
mætti lítilli mótspyrnu.
Þeir sem til þekkja telja ekki víst
að stúlkurnar sem lögreglan hefur í
sinni gæslu muni snúa baki við
söfnuðinum.
„Frá því þú fæðist er þér kennt
að hugsa ekki sjálfstætt,“ segir
Laurie Allen, sem slapp úr klóm
safnaðarins. „Þér er kennt að gera
það sem þér er sagt. Það er komið
fram við konur eins og eign.“
„Þær fæddust inn í þetta,“ segir
Carolyn Jessop, sem hefur skrifað
bók um reynslu sína í söfnuðinum.
„Þær hafa enga hugmynd um
hvernig eðlilegt samfélag er. Mæð-
ur þeirra hafa enga hugmynd um
hvernig eðlilegt samfélag er. Þegar
þú ert einu sinni kominn inn á
svæðið, þá kemstu ekki burt.“
Söfnuðurinn berst á móti
Lögfræðingar hópsins reyna nú
að fá dómstóla til að skipa lögreglu
að yfirgefa svæðið og leyfa þeim
sem eru í haldi að snúa aftur.
Meðlimir hópsins segja að fólki
megi finnast undarlegt að fjöl-
kvæni sé stundað af hópnum og
einangrað líferni hans kunni að
koma spánskt fyrir sjónir. Þeir
benda hins vegar á að hópurinn
hafi rétt á að stunda trú sína og rétt
til einkalífs. Leggja þeir rannsókn
lögreglu til jafns við að ruðst hefði
verið inn í Vatíkanið eða aðra helga
staði.
Saksóknari segir rannsóknina
ekki snúast um trúarskoðanir,
heldur stórfelld ofbeldisbrot.
Fjölkvæni og barna-
misnotkun á búgarði
Ungar stúlkur neyddar til að giftast eldri mönnum í sértrúarsöfnuði í Texas
Musterið Þar er talið að ungar stúlkur
hafi verið gefnar eldri mönnum og
neyddar til að hafa mök við þá.
➤ Söfnuðurinn klauf sig fráMormónakirkjunni árið 1930
og hélt áfram að iðka fjöl-
kvæni, sem mormónar hættu
að gera undir lok 19. aldar.
➤ Talið er að um 6.000 mannstilheyri söfnuðinum. Höf-
uðvígi hans er á mörkum Ari-
zona og Utah.
➤ Býlið í Texas komst í eigusafnaðarins árið 2004.
SÉRTRÚARHÓPUR
Kínversk lögregluyfirvöld greindu
í gær frá handtöku 45 einstaklinga
sem þau segja vera hryðjuverka-
menn sem hafi ætlað að láta til skara
skríða á Ólympíuleikunum í Peking
í sumar. Meðal annars segir lögregla
að til hafi staðið að ræna íþrótta-
mönnum og gera sjálfsmorðsárásir.
Handtökurnar voru gerðar í
Xinjiang-héraði, sem á landamæri
að Pakistan og Afganistan. Meiri-
hluti íbúa héraðsins aðhyllist íslam
og hafa hópar þeirra beitt sér fyrir
sjálfstæði undan Peking.
„Við stöndum frammi fyrir raun-
verulegri hryðjuverkaógn,“ segir
talsmaður lögreglunnar.
Dilxat Raxit, talsmaður aðskiln-
aðarsinna sem búa í útlegð, fer
fram á að Sameinuðu þjóðirnar
rannsaki ásakanir Kínverja um
hryðjuverkastarfsemi. aij
Meintir hryðjuverkamenn gómaðir
Lagt á ráðin gegn
Ólympíuleikunum
Verðgildi húseigna lækkar um allt
að 10 prósent ef stúdentar búa í
nágrenni þeirra. Stúdentarnir eru
skör neðar en næstverstu ná-
grannarnir – hústökufólk. Þetta
eru niðurstöður
könnunar sem
framkvæmd var á
Nýja-Sjálandi
fyrstu vikuna í
apríl.
Andrew King,
varaformaður fé-
lags fasteigna-
fjárfesta, telur að könnunin byggi
á úreltum hugmyndum um
námsmenn. Segir hann stúdenta
hafa breyst á undanförnum ár-
um. Þeir haldi færri partí og láti
námið hafa forgang fyrir fé-
lagslífi. „Annars finnst einum
slæmur nágranni sem öðrum
finnst góður,“ segir King. aij
Nýsjálenskir húseigendur
Verstu nágrann-
arnir stúdentar
Krám á Bretlandi fækkaði um
1.409 á síðasta ári, eða nærri fjór-
ar á dag. Minni sala á bjór og
aukinn kostnaður eru helstu
ástæður þessarar þróunar, að
sögn bresku bjór- og kráasamtak-
anna BBPA. „Ef fram heldur sem
horfir verða ótal þorp kráarlaus á
næstu árum,“ segir Rob Heyw-
ard, framkvæmdastjóri BBPA.
Hvetur hann stjórnvöld til að
endurskoða áfengisgjöld og
styðja þannig við krárnar. aij
Breskum krám fækkar
Pöbbinn í út-
rýmingarhættu
Umsóknarfrestur er til 30. maí
Kynntu þér námið á www.hr.is
MEISTARANÁM Í
VIÐ HÁSKÓLANN Í REYKJAVÍK
Nýtt og spennandi meistaranám fyrir stjórnendur og leiðtoga sem vilja starfa við
nýsköpun, rekstur, þjónustu og stjórnun á sviði heilbrigðismála. Unnið er í náinni
samvinnu við þrjá erlenda háskóla: Columbia University í New York, McGill University í
Montreal og Mayo Clinic í Rochester.
FORYSTUFRÆÐUM OG NÝSKÖPUN
MPH Ex-nám (Master of Public Health Executive) er fyrir
• framsækna stjórnendur í heilbrigðismálum
• frumkvöðla sem vilja öðlast þekkingu til að koma hugmyndum sínum í verk
• metnaðarfulla einstaklinga sem ætla sér hlutverk í þeim breytingum sem
framundan eru í heilbrigðismálum Íslendinga.
Námið miðar að því að þátttakendur öðlist afburðaþekkingu og færni í stjórnun stofnana
og fyrirtækja þar sem þekking starfsmanna er helsti styrkurinn.
MPH Executive er kennt í lotum tvær helgar í mánuði og sniðið að þörfum þeirra sem
stunda atvinnu með námi.