24 stundir - 11.04.2008, Blaðsíða 11

24 stundir - 11.04.2008, Blaðsíða 11
24stundir FÖSTUDAGUR 11. APRÍL 2008 11 Framsóknarflokkurinn virðistenn ekki laus við af-brýðisemi eftir skilnaðinn við Sjálfstæðisflokk- inn. Elskulegt hjónaband Sjálf- stæðisflokks og Samfylkingar vekur því ætíð viðbrögð. Valgerður Sverr- isdóttir finnur nú að því að sam- fylkingartónn sé kominn í Einar K. Guðfinnsson landbún- aðarráðherra. Þetta gildi þó ekki inni á þingi, heldur þegar hann tal- ar við frjálshyggjuarm Sjálfstæð- isflokksins í Valhöll. Valgerður er að ræða aukið frelsi í innflutningi búvara. Hún segir Einar K. hafa sagt frá breytingunni á látlausan hátt á þingi, en í Valhöll hafi hann sagt málið merkileg tímamót. Valgerður veit að ekki stend-ur hugur allra sjálfstæð-ismanna af landsbyggð- inni til afnáms búvörutolla. Hún spurði því Arn- björgu Sveins- dóttur, formann landbúnaðarnefnd- ar, hvort Sjálfstæð- isflokkurinn hefði viljað þetta sjálfur. Og segir svo: „Svar Arnbjargar var að við yrðum að taka yfir þessa mat- vælalöggjöf. Það var eins og að það væri ekki gert með glöðu geði.“ Valgerður segir broslegt að Sjálf- stæðisflokkurinn sé orðinn bréf- beri frá Brussel inn á Alþingi og að landbúnaðarráðherra skuli hafi tekist að gleðja Helga Hjörvar með sterkum samfylkingartóni. Öðruvísi mér áður brá, gæti Val- gerður sagt. Almannatengill telur apr-ílgabb Útvarpsins hafaverið seint á ferðinni í ár. Gabbið hafi birst í gær í bulli um bor. „Fréttamaður og talsmaður áhuga- félags um jarðgöng fyrir austan töluðu eins ekkert væri sjálfsagðara“ en að Austfirðingar keyptu bor 2 úr Kárahnjúkum. Almanna- tengillinn, Atli Rúnar Hall- dórsson sem var fréttamaður á RÚV til forna vandar RÚV og ís- lenskum fjölmiðlum ekki kveðj- urnar og telur fréttamenn sem ekki kynna sér mál seint geta orðið upplýsandi. Því skal þó haldið til haga að almannatenglar eins og Atli Rúnar eru til þess að hjálpa fjölmiðlum við að kynna sér mál - en alltaf frá einni hlið. beva@24stundir.is KLIPPT OG SKORIÐ Ríkisútvarpið flutti okkur fréttir af því í fyrrakvöld að fé- lagar í Kennarasambandi Íslands hafi umtalsvert lægri laun en fé- lagsmenn í Bandalagi háskóla- manna, VR og Samtökum starfs- manna fjármálafyrirtækja. Þetta vissum við. Könnun sem gerð var meðal kennara sýnir jafnframt að kenn- urum finnst vanta talsvert upp á til að laun þeirra geti talist sann- gjörn. Karlkennarar vilja 34 pró- senta hækkun, kvenkennarar vilja 43 prósenta hækkun. Þetta vissum við líka. Sanngjarnari laun Grunnskólakennarar eru lægst launaða kennarastéttin. Þegar rýnt er í tölurnar kemur í ljós að framhaldsskólakennarar geta fengið mestu viðbótina, leik- skólakennarar minnstu. Frétt Ríkisútvarpsins ber yfirskriftina Kennarar vilja sanngjarnari laun. Sanngjarnari. Svona píslavættis- sanngjarnari. Það er svo lengi bú- ið að sparka í kennara, - og þeim finnst svo lengi hafa verið spark- að í sig að þeir krefjast sann- gjarnari launa. Það er eitthvað al- veg brjálæðislega máttlaust við þetta að mínu mati. Þeir eru í hlutverki hinna lúbörðu og krefj- ast sanngjarnari meðferðar. Ég man eftir því að þegar ég var minni en ég er í dag voru kenn- arar hundfúlir með hlutskipti sitt. Það var endalaust verið að segja okkur krökkunum frá bág- um kjörum kennara. Verkföll voru tíð þá eins og nú. En áfram hélt lífið, börnin sjálfala, en at- vinnulífið beið ekki hnekki, þá eins og nú. Samspil okkar allra Við höfum semsagt lengi glímt við þennan sama vanda. Kenn- arar eru og hafa lengi verið óánægðir með kjör sín. Og hvað gerum við. Við berjum hausnum við steininn og ekkert breytist svo að í hvert sinn sem samningar eru undirritaðir berst kór óánægjuradda sem finnst ekki nóg gert. Því spyr ég, hvar er veilan? Er það í krónutölunni eða má vera að það sé eitthvað bogið við þessa samninga frá grunni? Nú halda eflaust margir að ég sé að varpa ábyrgðinni yfir á kenn- arana en það er ég alls ekki að gera. Þetta er samspil okkar allra. Kennaranna sem kvarta og okkar sem berjum á þeim. Það lítur fljótt á litið út fyrir að ákveðin sátt ríki um að þessi stétt þurfi að fá meira fyrir sinn snúð. Samt létum við átta vikna verkfall kennara hafa lítil áhrif á okkur hér fyrir nokkrum árum. Eins og menntun barnanna okkar skipti engu máli. En er veilan þar? Met- um við ekki störf kennara nóg? Ég held að hluti vandans sé þar. En drjúgur hluti felst í samning- unum sjálfum. Samningum sem innihalda mínútutal. Hversu margar mínútur af klukkustund- inni fari í undirbúning og hversu margar í frímínútur? Hvenær og hversu lengi á að vera í endur- menntun og hvenær í sumarfríi? Gefum upp á nýtt Nú tek ég það fram að ég er ekki í samninganefnd og ein- göngu áhorfandi en ég held að við ættum að stokka algerlega upp þessa kennarasamninga. Gera samning við kennara um fjörutíu stunda vinnuviku allt ár- ið um kring með tilheyrandi or- lofi eins og aðrar stéttir fá. Það að vera endalaust að togast á um einhverjar mínútur hér og sum- arfrí og páskafrí þar er að þvælast fyrir okkur. Við erum alltaf með einhver formerki á samningunum sem valda misskilningi. Hendum núverandi samningum og gefum upp á nýtt. Tökum til. Gerum okkur grein fyrir hvað háskóla- menntaðir einstaklingar sem sjá æsku landsins fyrir menntun eiga að hafa í laun fyrir fullan vinnu- dag og ekki hugsa um hvort verið sé í fríi eða undirbúningi á milli vinnustunda. Þegar hætt er að slást um í hvað mínúturnar fara getum við nýtt þær betur til upp- byggingar skólanna og almennrar kennslu. Þetta skiptir máli. Ger- um þetta af alvöru. Höfundur er vinur kennara og áhugamanneskja um betri skóla Hættum að telja mínútur VIÐHORF aHelga Vala Helgadóttir Þetta er sam- spil okkar allra. Kenn- aranna sem kvarta og okkar sem berjum á þeim. Það lítur fljótt á lit- ið út fyrir að ákveðin sátt ríki um að þessi stétt þurfi að fá meira fyrir sinn snúð. Skógarhlíð 18 • sími 595 1000 • www.heimsferdir.is Munið Mastercard ferðaávísunina Birt með fyrirvara um prentvillur. Heimsferðir áskilja sér rétt til leiðréttinga á slíku. Ath. að verð getur breyst án fyrirvara. Rhodos 7. júní og 14. júní frá kr. 59.990 Aðeins örfáar íbúðir í boði! Bjóðum nú frábært sértilboð á einum af okkar vinsælasta gististað á Rhodos, Hotel Forum, með hálfu fæði. Njóttu lífsins á þessum vinsæla áfangastað Heimsferða. Íbúðahótelið Forum stendur aðeins um 100 m. frá ströndinni. Á hótelinu er góð sundlaug, barir og veitingastaður. Góð aðstaða er fyrir börn s.s. barnalaug, leikaðstaða, billiard, pílukast, borðtennis o.fl. Á daginn og kvöldin er skemmtidagskrá fyrir bæði börn og fullorðna. Örfáar íbúðir í boði á þessu frábæra verði. Verð kr. 59.990 - hálft fæði Netverð á mann, m.v. 2 fullorðna og 2 börn í íbúð m/1 svefnherbergi í viku. M bl 99 12 73 Sértilboð á Forum *** - með hálfu fæði Verð kr. 71.990 - hálft fæði Netverð á mann, m.v. 2 fullorðna í íbúð m/1 svefnherbergi í viku. www.billiard.is Suðurlandsbraut 10 2.h. • Reykjavík Sími 568 3920 og 897 1715 Púl er kúl Um er að ræða litla íbúð á neðstu hæð. Er í dag stúdíó með eldhúsaðstöðu og sér baðher- bergi með sturtu. Svo er sérher- bergi með eldhúsaðstöðu og aðgangi að snyrtingu á gangi og sturtuaðstöðu í þvottahúsi. Ís- skápar eru í báðum einingunum og eldavélarhelllur. Fataskápur er í herbergi en fatahengi í stúdíó. Frábær útleigukostur. Flott staðsetning. Göngufæri í miðbæinn og alla þjónustu og skóla. Verð 15,5 millj. Laust strax. Hafið samband við Jóhannes í síma 615 1226 eða á skrifstofu Eignavers s-5532222 Eggert Sk. Jóhannesson, Jóhannes Eggertsson, Ólafur Thoroddsen hdl. Fasteignasalan Eignaver Sími 553-2222 • eignaver.is Síðumúli 13 • 108 Reykjavík Fasteignasala Eignaver kynnir Nýjar vörur frá No Secret Stærðir 42-56 Opið mán.-fös. 11-18, lau. 11-15 Dr.Hauschka Náttúrulegar snyrtivörur Rósakrem fyrir þurra og viðkvæma húð Lífrænt ræktuð Rósablóm og rósaber hjálpa til við að varðveita rakann í húðinni. Það gerir húðina silkimjúka og veitir henni sérstaka vernd. Rósakremið inniheldur einungis hrein náttúruleg efni og lífrænt ræktaðar lækningajurtir. Það er án allra kemiskra rotvarnarefna og ilmefna. Imurinn er úr hreinum ilmkjarnaolíum. Þetta á einnig við um allar aðrar vörur frá Dr.Hauschka. Útsölustaðir: Yggdrasill Skólavörðustíg 16, Fræið Fjarðarkaup, Lyf & heilsa Kringlunni, Lífsins Lind Kringlunni, Lyfja, Maður Lifandi og Heilsuhornið Akureyri. dreifing:

x

24 stundir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: 24 stundir
https://timarit.is/publication/307

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.