24 stundir - 11.04.2008, Qupperneq 18
18 FÖSTUDAGUR 11. APRÍL 2008 24stundir
Eftir Maríu Ólafsdóttur
maria@24stundir.is
„Marek hafði gengið á eftir mér
með bónorðið í einhvern tíma en
það var ekki fyrr en við vorum á
ferðalagi um Austur-Evrópu sum-
arið 2006 að við ákváðum í sam-
einingu að láta slag standa. Við
vorum stödd í Kraká þegar ákvörð-
unin var tekin. Þetta var óformlegt
og ég ætlaði ekki einu sinni að setja
upp trúlofunarhring. Það fannst
mömmu Mareks hins vegar algjör
hneisa og hún dró mig með sér í
skartgripabúð þegar við komum til
Póllands og valdi hring handa
mér,“ segir Berglind.
Bónorð og síðan börn
Pólverjar eru kaþólsk þjóð og
fólk gerir því hlutina í réttri röð ef
svo má segja, það er að segja giftir
sig fyrst og síðan koma börnin.
Berglind segir að það að stofna
fjölskyldu sé gríðarlega mikilvægt
og fjölskyldan sé í raun mátt-
arstólpi þjóðfélagsins. Ákveðið var
að halda tvær brúðkaupsveislur og
byrja á þeirri formlegu í Póllandi
þar sem mikilvægt var að gifta sig í
kaþólskri kirkju. Undirbúningur
brúðkaupsins tók um ár þar sem
það þurfti að skipuleggja frá Ís-
landi og nóg var af auka papp-
írsvinnu þar sem um giftingu fólks
af ólíku þjóðerni og trú var að
ræða. Það fyrsta sem Berglind
pantaði fyrir brúðkaupið var brúð-
kaupskjóllinn sem kom sérsau-
maður frá Kína og smellpassaði
Streð að finna prest
„Fyrir giftinguna þurftum við að
ganga til kaþólsks prests hér heima
sem þurfti bæði að votta og sam-
þykkja að við mættum ganga í
hjónaband þar sem ég er mótmæl-
endatrúar. Einnig þurftum við að
fara nokkrum sinnum til Póllands
til að ganga frá skriflegum forms-
atriðum. Það var dálítið streð að
finna hver ætti að gifta okkur þar
sem fæstir prestarnir ytra tala
ensku og ég þurfti að svara spurn-
ingum þeirra og skrifa undir sátt-
mála. Þetta leystist loks farsællega
þannig að presturinn hér heima
fór með mér í gegnum það sem ég
myndi samþykkja. Við giftum okk-
ur síðan í fallegri kirkju í Wejher-
owo, rétt hjá Gdanzk þar sem fjöl-
skylda Mareks býr, í ágúst 2007,“
segir Berglind.
Þriggja daga veisla
Í Póllandi stendur brúðkaups-
veislan í þrjá daga og kom talsvert
af vinum og ættingjum Berglindar
frá Íslandi til að taka þátt í hátíða-
höldunum. Daginn fyrir brúð-
kaupið var slegið upp grillveislu
hjá tengdaforeldrunum þar sem
um 50 manns nutu góðs matar,
drykkjar og söngs fram eftir nóttu.
Brúðkaupið sjálft var síðan seinni-
partinn daginn eftir og segir Berg-
lind að fyrirkomulag dagsins hafi
verið svipað og hér. Helst hafi það
komið sér á óvart að ekki var spil-
aður hinn hefðbundi brúðarmars í
kirkjunni. „Við pabbi biðum heil-
lengi eftir marsinum sem aldrei
kom, en þegar brúðarmeyjarnar
voru komnar upp að altarinu
ákváðum við að ganga bara af
stað,“ segir Berglind og hlær að
minningunni. Eftir brúðkaupið
fóru hin nýbökuðu brúðhjón í
hálfgerða brúðkaupsferð og flat-
möguðu á Jurata-ströndinni með
íslensku brúðkaupsgestunum.
Héldu þriggja daga veislu að pólskum sið
Tengdamamma valdi
trúlofunarhringinn
Berglind Rós Karlsdóttir,
MA-nemi í ferðamála-
fræði, og Marek Lidzki
matreiðslumaður kynnt-
ust á Norrænu sumarið
2004. Þau giftu sig í Pól-
landi síðastliðið sumar
með pompi og prakt, en
veislan stóð í þrjá daga.
Á sólríkum brúð-
kaupsdegi Mareks og
Berglindar í Póllandi.
Í búðkaupsveislu Mareks og
Berglindar voru reiddir fram einir
tólf réttir að hefðbundnum pólsk-
um hætti, svína- og nautakjöt,
súpur og önd svo eitthvað sé nefnt.
„Í pólskum brúðkaupsveislum
gengur allt út á að borða góðan
mat, fara í leiki, dansa og drekka
vodka. Fyrst er byrjað að gæða sér
á forréttinum sem í raun var steik
og meðlæti. Síðan er dansað, borð-
að af hlaðborði, tekið staup og far-
ið í leiki þar sem brúðhjónin eru í
aðalhlutverki og svona gengur
þetta langt fram eftir nóttu. Allir
skemmtu sér eins og um eina stóra
fjölskyldu væri að ræða og skipti
engu þótt gestirnir töluðu ekki
sama tungumálið,“ segir Berglind.
Þriðja veislan
Daginn eftir brúðkaupsveisluna
hefst þriðja veislan en þá eru allir
afgangar frá kvöldinu áður settir á
borðið, hljómsveitin byrjar aftur
að spila og fólk skemmtir sér langt
fram á kvöld. Að lokinni veislu fá
gestir síðan matarpakka og vodka-
flösku til að taka með sér heim.
Pólskar hefðir
Í Póllandi tíðkast að henda smá-
peningum þegar brúðhjónin ganga
út og eiga þau síðan að tína þá upp
sem tákn um auð og velgengni. Al-
gengast er að brúðhjónin fái pen-
ingagjöf og eiginmaðurinn taki þá
á móti gjöfinni en eiginkonan fái
blóm. Í stað þess óskaði Berglind
eftir því að fá leikföng sem brúð-
hjónin gáfu síðan til munaðarleys-
ingjaheimilis bæjarins.
Dansað, sungið og drukkið langt fram eftir nóttu
Skemmtu sér sem ein stór fjölskylda
Pólskar brúðkaups-
veislur Eru fjörugar með
mat, dansi og vodka.
Boogie Nights er teymi plötusnúða sem sérhæfa sig í veislustuði
Pantaðu þinn skífuþeytara strax
og hafðu veisluna fullkomna
DJ Hlö 896 2022
DJ Sport 892 1242
Bíll og bílstjóri við öll tækifæri
Gerið brúðkaupið enn gæsilegra látið fagmann keyra ykkur
Bíllinn er skreyttur að ósk brúðhjóna af fagmanni
Upplýsingar í síma 698 6600
DUKA
Kringlunni 4-12
Sími 533 1322 | duka@duka.is