24 stundir - 11.04.2008, Side 24
24 FÖSTUDAGUR 11. APRÍL 2008 24stundir
Það er að mörgu að huga þegar
finna þarf sal fyrir veisluna. Eitt af
því er að íhuga hvort þjónustan
eigi að vera innifalin eða ekki. Það
er vitanlega mun ódýrara að sleppa
þjónustunni og fá vini, systkini eða
aðra til að þjónusta gestina fyrir
lítið fé. Hins vegar þarf minni
áhyggjur að hafa ef þjónustan er
innifalin auk þess sem þjónustan
er án efa fagmannlegri.
Veisla með eða
án þjónustu
Undanfarið hafa svokölluð gæsa-
og steggjapartí tíðkast hérlendis
þar sem tilgangurinn er að
skemmta sér í góðra vina hópi,
svona rétt áður en gengið er í
hnapphelduna. Sumir kjósa að
sleppa því og halda þess í stað eitt
risastórt partí stuttu fyrir brúð-
kaupið þar sem vinir brúðgumans
og brúðarinnar skemmta sér sam-
an. Góð leið til að hrista hópinn
saman fyrir stóra daginn.
Skemmtilegt
partí fyrir alla
Varla er hægt að segja ég elska þig á
einfaldari og betri hátt en með rist-
uðu brauði sem er heitt og sætt
eins og ástin. Með þessum stimpli
má auðveldlega koma slíkum skila-
boðum á framfæri. Ristið brauð-
sneið og þrýstið síðan stimplinum
mátulega fast ofan á brauðið.
Rómantískara getur það varla orð-
ið með góðum osti og sultu og
gæti kveikt ástarbál á notalegum
morgni.
Byrjið daginn
á ástarbrauði
Bergþór Pálsson söngvari er
vanur því að syngja í brúðkaupum
og er hann upptekinn við þá iðju
flestar helgar á sumrin. Aðspurður
hvaða lög séu vinsælust í brúð-
kaupum segir hann að það sé mis-
jafnt. „Það gengur í bylgjum hvaða
lög eru vinsæl en samt sem áður er
það nokkuð algengt að fólk sé með
eitthvað ákveðið í huga og það þarf
ekki endilega að vera samkvæmt
tískunni. Ef eitthvað fer hins vegar
í spilun, eins og lagið Með þér með
Bubba eða Ást með Ragnheiði
Gröndal þá koma þau sterk inn.
Svo eru sum lög sem ganga ár eftir
ár eins og lagið Kannski er ástin en
það eru mjög margir sem vilja hafa
það í brúðkaupinu. Sennilega
vegna þess að það er fallegt lag sem
hefur líka innihald. Það fjallar um
hvað ástin getur haft margar hliðar
en meðan okkur endist líf er ég
ákveðin/n í því að við verðum
saman.“
Bergþór segist hafa mikla
ánægju af því að syngja í brúð-
kaupum hjá fólki. „Þetta er með
því skemmtilegra sem ég geri. Það
eru allir í svo góðu skapi að það er
mjög auðvelt að ná til fólks. Allir
eru í sínu fínasta pússi og með
góðar óskir í huga,“ segir Bergþór
sem syngur bæði í kirkjum og í
veislum. „Dagskráin í veislunni er
þó af öðrum toga og það er meira
um gamanmál þar enda athöfnin
sjálf hátíðleg trúarathöfn. Þó hún
þurfi líka að vera létt þá þarf að
virða ákveðin mörk, athöfnina og
kirkjuna.“
Bergþór syngur oftast einn sálm
og að minnsta kosti tvö önnur lög í
kirkjunni. „Oftast eru lögin á ís-
lensku, það er af svo mörgu að
taka að það er óþarfi að leita í aðra
smiðju. Móðurmálið höfðar sterk-
ast til manns og þegar svona mik-
ilvæg athöfn er held ég að flestum
finnist það persónulegast.“
svanhvit@24stundir.is
Lögin Með þér, Ást og Kannski er ástin vinsæl í brúðkaupum
Skemmtilegur hamingjusöngur
Bergþór Pálsson „Þetta er með því skemmtilegra sem ég geri. Það eru allir í svo
góðu skapi að það er mjög auðvelt að ná til fólks.“
noatun.is
Veisluþjónustan í Nóatúni Smáralind
býður upp á glæsilegt úrval af fjölbreyttum
réttum til að fullkomna veisluborðið.
Rækjuspjót
Tapas snittur
Kjúklingaspjót
Teriyaki nautaspjót
Ostapinnar í úrvali
Veisluþjónusta
Nóatúns
Pantanir í Nóatúni, Smáralind s. 585 7170