24 stundir - 11.04.2008, Blaðsíða 25
24stundir FÖSTUDAGUR 11. APRÍL 2008 25
Allir gömlu góðu réttirnir
og frábærar nýjungar
Komdu til okkar,
taktu með eða borðaðu
á staðnum
Alltaf góð
ur!
Kjúklingastaðurinn
Suðurveri
Nú er
orðin
n stór
LÍFSSTÍLLHELGIN
helgin@24stundir.is a
Þetta er eiginlega hluti af uppeldis-
hugsuninni hjá Stórsveit Reykjavíkur.
Við erum að hugsa um nýliðun hjá okkur í
framtíðinni.
Eftir Einar Jónsson
einarj@24stundir.is
Trommur verða barðar til óbóta og
blásið í lúðra af öllum stærðum og
gerðum í Ráðhúsi Reykjavíkur á
laugardag. Þar stendur Stórsveit
Reykjavíkur fyrir árlegu Stór-
sveitamaraþoni sínu. Þetta er 12.
árið sem maraþonið er haldið og
að venju býður Stórsveitin yngri
stórsveitum landsins með sér og
leikur hver sveit í um hálftíma.
Aldrei fleiri sveitir
„Þetta er með hefðbundnu sniði
nema það eru fleiri bönd sem taka
þátt og það er náttúrlega bara
mjög gleðilegt,“ segir Sigurður
Flosason, tónlistarmaður og félagi
í Stórsveit Reykjavíkur. Auk gest-
gjafanna taka átta stórsveitir þátt í
maraþoninu og eru þær á ýmsum
aldri og ólíkum getustigum. Sig-
urður segir að tilgangurinn með
maraþoninu sé margþættur. „Þetta
er eiginlega hluti af uppeldishugs-
uninni hjá Stórsveit Reykjavíkur.
Við erum að hugsa um nýliðun hjá
okkur í framtíðinni þannig að þeg-
ar við stöndum loks upp úr stól-
unum, hver og einn, þá verði ein-
hverjir til að taka við,“ segir
Sigurður og bætir við að einnig sé
maraþoninu ætlað að efla liðsand-
ann, gera félögum í sveitunum
kleift að hittast og kynnast og vekja
athygli á starfsemi stórsveitanna út
á við.
Fjölbreytt efnisskrá
Hver sveit spilar sína dagskrá á
maraþoninu og segir Sigurður að
búast megi við mikilli fjölbreytni
miðað við reynslu fyrri ára. „Þetta
er náttúrlega mikið af djasstónlist
en sum böndin spila alls konar
popptónlist og allt sem nöfnum
tjáir að nefna,“ segir hann.
Maraþonið hefst kl. 13 með leik
gestgjafanna í Stórsveit Reykjavík-
ur en svo tekur hver sveitin við af
annarri. Dagskránni lýkur kl. 17:30
og er fólki frjálst að koma og fara
að vild. Aðgangur er ókeypis og
öllum heimill.
Stórsveitamaraþon Stórsveit
Reykjavíkur býður yngri stór-
sveitum landsins með sér í
maraþon á laugardag.
Lúðrablástur fyllir sali Ráðhússins á laugardag
Tónlistarmaraþon
Um 150 tónlistarmenn á
ýmsum aldri taka þátt í
árlegu Stórsveita-
maraþoni Stórsveitar
Reykjavíkur í Ráðhúsi
borgarinnar á laugardag.
Aldrei hafa fleiri sveitir
tekið þátt. Á efnisskránni
er djass, popp og allt þar
á milli.
24stundir/Sverrir
Listadagar barna og ungmenna í
Garðabæ halda áfram í dag og á
morgun og verður ýmislegt á dag-
skránni báða dagana. Ragnheiður
Gestsdóttir, rithöfundur og mynd-
listarmaður, verður með ritsmiðju
fyrir 9-12 ára börn á Bókasafni
bæjarins í dag kl. 10-12 og kl. 13-
15.
Í Garðbergi og Hönnunarsafni
Íslands verður sýning á verkum
nemenda við Fjölbrautaskólann í
Garðabæ og sýning á tillögum úr
samkeppni um hönnun Hönn-
unarsafns Íslands.
Á morgun verður opið hús í
helstu leik- og grunnskólum bæj-
arins þar sem verk nemenda verða
til sýnis. Sama dag verður efnt til
menningargöngu undir leiðsögn
Aðalsteins Ingólfssonar, listfræð-
ings og forstöðumanns Hönn-
unarsafns Íslands. Gangan hefst
við Vídalínskirkju kl. 13 og verður
gengið á milli útilistaverka í bæn-
um. Nánari dagskrá Listadaga má
nálgast á vef Garðabæjar www.gar-
dabaer.is.
Listadagar í Garðabæ
Listsköpun unga fólksins
Þursar norðan heiða
Tónlist Norðlendingar og ná-
grannar fá tækifæri til að berja
Þursaflokkinn augum um helgina
því að þessi goðsagnakennda
hljómsveit heldur þrenna tónleika
á Græna hattinum á Akureyri.
Fyrstu tónleikarnir verða í kvöld
og tvennir annað kvöld. Miðaverð
er 3.500 kr.
Wainwright á Íslandi
Tónlist Íslenskir aðdáendur kan-
adíska tónlistarmannsins Rufus
Wainwright hafa ástæðu til að kæt-
ast því að kappinn heldur tónleika
í Háskólabíói á sunnudag. Tónleik-
arnir hefjast kl. 20 og er miðaverð
6.300 kr.
Alheimshreingjörningur
Listir Gjörningalistakonan Anna
Richardsdóttir heldur fjórða al-
heimshreingjörning sinn laug-
ardagskvöldið kl. 20:30 en alls
verða gjörningarnir tíu talsins.
Verkið nefnist „Hreingjörningur í
lit“ og verður fluttur í bílageymslu
við Norðurorku að Rangárvöllum.
Kvikmyndaveisla
Kvikmyndir Bíódagar Græna
ljóssins hefjast í dag og standa í
tvær vikur. 13 áhugaverðar kvik-
myndir eru á dagskránni sem má
nálgast á www.graenaljosid.is.
Þjóðlegir Þursarnir leika
á Akureyri um helgina.
Það besta í bænum
● Hringnum lokað Hljómsveit-
irnar Dr. Spock, Benny Cres-
po’s Gang og Sign ljúka tón-
leikaferð sinni um landið með
tónleikum á skemmtistaðnum
Nasa við Austurvöll í kvöld.
Húsið verður opnað kl. 21.
● Nýtt Tungl Skemmtistað-
urinn Tunglið verður opnaður
á föstudagskvöld að Tryggva-
götu 22 þar sem Gaukur á
Stöng var til húsa um árabil.
Staðurinn verður opnaður al-
menningi á miðnætti.
● Sálin á Nasa Sálin skemmtir
gestum Nasa við Austurvöll
laugardaginn 12. apríl. Húsið
verður opnað kl. 23 og er
miðaverð 2.200 kr.
● Þrenna á Organ Hljóm-
sveitirnar Yunioshi, Blood-
group og Sometime koma
fram á tónleikastaðnum Org-
an á laugardag kl. 22.
● Til heiðurs Stones Magni úr
Á móti sól og Matti úr Pöpunum
heiðra hljómsveitina Rolling Sto-
nes á sinn hátt á skemmtistaðn-
um Players í Kópavogi í kvöld.
Annað kvöld verður Austfirð-
ingaball á sama stað.
● Blús á Classic Rock
Hljómsveitin BluesAkademí-
an heldur tónleika á veit-
ingastaðnum Classic Rock í
Ármúla á laugardag. Tónleik-
arnir hefjast kl. 22 og er að-
gangseyrir 500 kr.
● Kyrrðarstund Kaþólskur
trappistamunkur, William
Meninger, flytur hugvekjur og
stýrir kyrrðardegi í Neskirkju
laugardaginn 19. apríl kl. 10-
16. Allir eru velkomnir meðan
húsrúm leyfir.
● Markaðsdagur „Komdu og
skoðaðu í kistuna mína“ er
yfirskrift markaðsdags í Mar-
ínu, Strandgötu 53 á Ak-
ureyri, sem fram fer sunnu-
daginn 13. apríl kl. 12-17. Á
þriðja tug aðila selja nýjar og
notaðar vörur.
● Hagfræði og súpa Guð-
mundur Ólafsson hagfræð-
ingur verður ræðumaður á
súpufundi Landssambands
kvenna í Frjálslynda flokknum
á laugardag 12. apríl kl. 12 -13 í
félagsheimili Frjálslynda
flokksins að Skúlatúni 4 (2.
hæð).
UM HELGINA