24 stundir - 11.04.2008, Side 28
28 FÖSTUDAGUR 11. APRÍL 2008 24stundir
Civic og loks á Pajeronum í fyrra.
„Svo ákváðum við að prófa þenn-
an. Þetta er algjör snilldarbíll. Fjöðr-
unin er það sem kemur honum
áfram, enda átta demparar undir
bílnum. Þeir eru stillanlegir svo að
það er hægt að bjóða þessum bíl al-
veg rosalega mikið. Það er hægt að
stökkva á honum og um leið og þú
ert kominn út úr stökkinu geturðu
bara keyrt áfram eins og ekkert sé.
Hann þarfnast líka sáralítils við-
halds vegna þess hve vel hann er
Eftir Einar Elí Magnússon
einareli@24stundir.is
Í bílskúr í Kópavoginum finnum við
þá Ingimar og Guðmund Snorra við
hnossið sitt, sem í fyrstu lítur út eins
og venjulegur Mitsubishi Pajero.
Eftir stutt spjall kemur í ljós að það
er töluvert fjarri sanni.
„Þetta er Pajero-ralljeppi, sér-
smíðaður hjá framleiðandanum í
Japan árið 1997 og er einn af fimm
bílum sinnar tegundar,“ segir Ing-
mar um bílinn.
„Bíllinn er smíðaður fyrir Dakar-
rall og hefur tekið þátt í því. Við
keyptum hann um mitt sumar síð-
asta ár, keyrðum hann í þremur
keppnum á Íslandsmeistaramótinu í
fyrra og lentum í öðru sæti í okkar
flokki.“
Þeir félagar hafa keppt saman í
tvö ár, fyrst á Suzuki, næst á Hondu
smíðaður. Í öllu Alþjóðarallinu í
fyrra fór ein þétting á dempara.
Annars þurftum við bara að passa
að það væri nóg bensín á bílnum og
að bílstjórarnir fengju að borða,“
heldur Ingimar áfram.
Þeir félagar náðu ekki að fjár-
magna tímabilið í ár og vilja því
bjóða öðrum bílinn fyrir „ekkert svo
mikinn pening“.
„Hann ætti að henta jafnt byrj-
endum sem lengra komnum, svo
lengi sem menn byrja rólega og
vinna sig upp. Maður vinnur ekkert
á fyrstu sérleið, það sem skiptir máli
er að klára allar keppnir,“ segir Ingi-
mar að lokum.
Áhugasamir geta haft samband
við Guðmund Snorra í síma 699
3369.
Kíkt í bílskúrinn hjá Ingimari Loftssyni og Guðmundi Snorra Sigurðssyni
Hægt að bjóða bílnum rosalega mikið
Snilldarbíll Ingimar og
Guðmundur Snorri við
bílinn sem þeir eru
ánægðir með, en neyð-
ast til að selja.
BÍLLINN
RRS fjöðrun. 2 stillanlegir demparar á hverju hjóli.
Rally dekk og rally felgur.
Innbyggt samskiptakerfi.
Bensíntankurinn er 250 lítra „sella“.
Dobblað stýri.
Sérstyrkt afturhásing.
Slökkvikerfi inni í bíl og frammi í húddi.
Tíma/trip-tölva.
Tvær bensíndælur, ef önnur skildi bila.
Sparco stólar.
Sabelt 5 punkta belti.
Allar slöngur og lagnir vírofnar og sérstyrktar.
Carbon hlífar.
Búrið, tankurinn og flest allt í bílnum FIA vottað
og pappírar uppá það fylgja auk viðgerðabókar.
Stærri vatnskassi.
Kopar keppnis-kúppling.
270 hestöfl, læst afturdrif ofl.ofl. 24stundir/Árni Sæberg
Tveir bílablaðamenn Sunday
Times ákváðu að athuga í eitt skipti
fyrir öll hvor sé betri kostur tvinn-
bíll eða dísilbíll þegar kemur að
eyðslu. Öttu þeir því kappi í spar-
akstri frá London í átt að Genf og
notuðu til þess Toyota Prius með
tvinnmótor og BMW 5 línu með
dísilmótor. Skemmst er frá því að
segja að BMW komst 4 km lengra á
sama lítrafjölda. Sláðu inn „Prius
BMW“ á youtube.com og skoðaðu
keppnina.
Sunday Times prófar eyðslu ólíkra bíla
BMW betri en Prius
Toyota þarf að innkalla 539.500
Corolla- og Matrix-bifreiðar, ár-
gerðir 2003 og 2004, á næstu
mánuðum til að gera við gallaðar
gluggafestingar. Gluggarnir eiga
það til að sundrast við hristing,
en talsmaður Toyota segir að inn-
köllunin nái til bíla í Kanada, Pú-
ertó Ríkó, Bandaríkjunum og yf-
irráðasvæðum þeirra. Íslenskir
Toyota-eigendur ættu því ekki að
þurfa að óttast neitt.
Toyota innkallar
Volvo hlaut á dögunum við-
urkenningu fyrir sjálfvirka
bremsu, City Safety, á umferð-
arþingi í New York. Hlutverk
bremsunnar er að meta fjarlægð
milli bíla og koma í veg fyrir aft-
anákeyrslur. Hún er einkum ætl-
uð til notkunar í borgarumferð
og á að draga úr hálsmeiðslum.
Volvo fær við-
urkenningu
Í Porsche-sal Bílabúðar Benna
við Vagnhöfða eru nú til sýnis
tveir nýir og glæsilegir bílar sem
bílaáhugamenn ættu ekki að láta
fram hjá sér fara. Um er að ræða
annars vegar Cayman S, Porsche
Design Edition 1 og hins vegar
Cayenne GTS. Nánari upplýs-
ingar um bílana má finna á vef-
síðunni porsche.is
Porsche til sýnis
ÚR BÍLSKÚRNUM
Félagarnir Daníel Sigurðarson og
Ísak Guðjónsson, sem keppa í
breska meistaramótinu í ralli í ár,
kláruðu síðustu keppni í fjórtánda
sæti þrátt fyrir lítilsháttar bilanir.
Þeir félagar komu úr síðustu sér-
leið kúplingar- og bremsulausir en
engu að síður náðu þeir fínum ár-
angri eins og áður segir, auk þess
að hafa orðið í fimmta sæti í
Evolution Challenge, eins konar
undir- eða hliðarkeppni við breska
meistaramótið.
Ánægðir með
að klára
LÍFSSTÍLLBÍLAR
bilar@24stundir.is a
Bíllinn er smíðaður fyrir Dakar-rall og hefur tekið þátt
í því. Við keyptum hann um mitt sumar síðasta ár,
keyrðum hann í þremur keppnum á Íslandsmeistaramótinu
í fyrra og lentum í öðru sæti í okkar flokki.
G
C
I
G
R
O
U
P
A
L
M
A
N
N
A
T
E
N
G
S
L
*Brimborg og Citroën áskilja sér rétt til að breyta verði og búnaði án fyrirvara og að auki er kaupverð háð gengi. Nánari upplýsingar veita söluráðgjafar Brimborgar.
Brimborg Reykjavík: Bíldshöfða 8, sími 515 7000 | Brimborg Akureyri: Tryggvabraut 5, sími 462 2700 | www.citroen.is
cìääâçãå~êá=Ñìääâçãåìå
pà•ðì=̀ áíêçØå=_ÉêäáåÖç=∞=Ç~Ö
Dæmi um staðalbúnað í Citroën:
· Meiri burðargeta: 800 kg
· Hliðarhurðir beggja vegna með
lokunarvörn
· 180 gráðu opnun á afturhurðum
· Topplúga fyrir lengri hluti
· Hiti í sætum
· Rafdrifnar rúður
· Geislaspilari með útvarpi og
fjarstýringu við stýri
· Fjarstýrð samlæsing
· Fellanlegt framsæti farþega
með borði og geymsluhólfi