24 stundir - 11.04.2008, Síða 29
24stundir FÖSTUDAGUR 11. APRÍL 2008 29
Stórsýning
MótorMax
á ferðavögnum
Um helgina verður því besta tjaldað til í Mótormax.
Þá sýnum við nýju Dethleffs hjólhýsin og húsbílana,
Starcraft fellihýsin og Camp-let tjaldvagnana.
Auk þess ýmsa spennandi sumarvöru.
Ævintýralegar uppskriftir að frábæru sumarleyfi
í Kletthálsinum.
Opið í Kletthálsi 13, laugardag 10-16 og sunnudag 12-16.
- lífið er leikur
MotorMax Reykjavík - Kletthálsi 13 - Sími 563-4400
MotorMax Egilsstöðum - Sími 470-5080 / 470-5070
MotorMax Akureyri - Sími 460-4300
www.motormax.is
Smart Fortwo fékk fjórar stjörnur í
árkestrarprófi á vegum umferð-
aröryggisstofnunarinnar NHTSA
fyrir skemmstu en sala á bílnum er
loks að hefjast vestanhafs. Ræður
þar miklu síhækkandi bensínverð,
svo að Íslendingar ættu líklega að
skoða bílinn betur, en verð á elds-
neyti hefur þrefaldast.
Smart fær fjórar stjörnur
Ef einhver jólasveinn segði þér
að með því að dæla vatni inn á bíl-
vél gætir þú aukið afl og minnkað
eyðslu, myndirðu sennilega hrista
hausinn. Þegar vísindamenn leggja
hins vegar fram sönnun þess efnis,
þá þarf maður að fara að skoða
málið aðeins betur.
Í stuttu máli gengur hugmyndin
út á að hver bulla gangi sex þrep í
stað fjögurra, eins og venjulegar
fjórgengisvélar gera, og noti hitann
úr vélinni til að margfalda ummál
vatns 1.600 sinnum.
Við þetta á að vera hægt að auka
aflið um 40%, minnka eyðsluna
töluvert og spara þyngd, því vatnið
gerir kælikerfi óþarft.
Bruce Crower, sem vinnur að
þróun hugmyndarinnar, segir hana
geta nýst fyrir allar gerðir véla sem
fyrir eru á markaðnum.
Gufu-tvinnvélar næsta skref?
Meira afl og minni eyðsla
1 2 3 4 5 6
Loft inn Loft út Gufa
Loft inn Þjappa Eldsn.
sprenging
Útblástur Gufa inn Gufa út
í safn-
tank
Sexgengis-gufuvél
Vatn
Ferðafélagið Útivist stendur fyrir
jeppaferð fyrir mikið breytta bíla
á Vatnajökul dagana 23.-24. apríl.
Helstu áfangastaðir eru Jökul-
heimar, Grímsfjall og Kverkfjöll.
Þátttaka er háð samþykki far-
arstjóra en nánari upplýsingar
eru á síðunni utivist.is.
Vatnajökull með
Útivist
General Motors hefur strítt okk-
ur nógu lengi með myndum af
Volt, fyrsta bílnum með hjálp-
arrafmagni sem lítur ekki út fyrir
að vera hannaður sérstaklega fyr-
ir Cameron Diaz. Nú hafa þeir
gefið grænt ljós á þróun og smíði
bílsins, sem við bíðum spennt
eftir að sjá í endanlegri mynd.
Volt verður
smíðaður