24 stundir


24 stundir - 16.04.2008, Qupperneq 4

24 stundir - 16.04.2008, Qupperneq 4
Eftir Ingibjörgu B. Sveinsdóttur ingibjorg@24stundir.is Það var ekki fyrr en Kristín Snorra- dóttir fann skítugar sprautunálar sonar síns sem hún steig út úr bull- andi afneituninni, eins og hún orðar það, og hringdi í Foreldra- húsið fyrir 14 mánuðum og bað um aðstoð. „Þar fékk ég aðstoð sem ég hafði aldrei fengið áður, það er að segja stuðning fyrir alla fjöl- skylduna,“ segir Kristín. Eldri sonur hennar, sem nú er tvítugur, hafði þá fallið eftir að hafa verið vímuefnalaus í 8 mánuði. Staðreyndirnar sárar „Sonur minn, sem hafði verið í neyslu frá því að hann var 13 ára, féll eftir enn eina meðferðina. Höggið við að missa hann var svo mikið að ég vildi ekki sjá þau teikn sem voru á lofti. Hann var orðinn hirðulaus, hættur að virða reglur heimilisins og svaf illa. Í stað þess að hlusta á þessar viðvörunarbjöll- ur taldi ég sjálfri mér trú um að það væri bara erfitt tímabil hjá honum. Þegar hann var orðinn grár og gugginn og ég gat ekki vak- ið hann einn daginn taldi ég mér trú um að hann væri með svona svakalega flensu. Þennan sama dag, þremur mánuðum eftir að hann féll, fann ég sprautunálarnar og brotnaði niður. Það er vont að horfast í augu við staðreyndirnar. Þær eru sárar.“ Steig út úr skömminni Aðstoðin sem Kristín fékk hjá Foreldrahúsinu fólst í upphafi í viðtölum við ráðgjafa. „Ég fékk einkaviðtöl hjá frábærum ráðgjafa og fékk þann stuðning sem ég þurfti til að byggja mig upp and- lega. Maðurinn minn fékk líka að- stoð og börnin mín, 10 ára sonur og 14 ára dóttir, fóru á sjálfstyrk- ingarnámskeið. Ég horfði á dóttur mína stíga út úr sársaukanum og skömminni. Hún hefur nú öðlast skilning á því að hún þarf ekki að skammast sín fyrir það sem bróðir hennar gerir. Hún er nú orðin sterkur einstaklingur.“ Kristín hafði fengið upplýsingar um starfsemi Foreldrahússins þeg- ar eldri sonur hennar, sem nú er í meðferð, hafði verið þar í eftir- meðferð með vinum sínum. „Mér finnst svo frábært að það skuli vera unnið markvisst með alla fjölskylduna í Foreldrahúsinu. Áð- ur hafði ég víða spurt hvort ein- hvern stuðning væri að fá fyrir systkini fíkla því að ég gerði mér grein fyrir því að þetta hafði áhrif á okkur öll. Sjálf hafði ég farið til sál- fræðinga en börnin mín höfðu enga hjálp fengið. Ég vildi svo sannarlega að starfsemi Foreldra- hússins yrði sýnilegri svo að þeir foreldrar sem standa í sömu spor- um og ég stóð í fyrir 7 árum þurfi ekki að berjast einir eins og ég gerði í mörg ár.“ Móðir í bull- andi afneitun  Horfðist í augu við staðreyndirnar þegar hún fann sprautunál- arnar  Öll fjölskyldan fékk stuðning í Foreldrahúsinu ➤ Foreldrasamtökin Vímulausæska reka Foreldrahúsið sem var opnað 1999. Foreldrahús var opnað í Hafnarfirði 2006. ➤ Í Foreldrahúsinu er fjöl-skylduráðgjöf, starfsemi for- eldrahópa og stuðnings- meðferð auk þess sem forvarnarnámskeið eru haldin. FORELDRAHÚSIÐ 24 stundir/Friðrik Mikið högg Kristín Snorra- dóttir vildi ekki sjá þau teikn sem voru á lofti um að sonur hennar væri fallinn aftur. Afmælið tvöfalt dýrara hjá Stjörnustelpum Það getur munað allt að 100% þegar keypt er þjónusta við að halda upp á barnaafmæli. Ekki er tekið tillit til gæða eða þjónustu og sjálfsagt er mikill munur milli kynja og aldurshópa á því hvernig afmæli börnin vilja halda. Af 5 fyrirtækjum er Fjölskyldu- og hús- dýragarðurinn með lægsta verð og Stjörnustelpur með það hæsta. Óheimilt er að vitna í könnunina í auglýsingum. Þuríður Hjartardóttir 4 MIÐVIKUDAGUR 16. APRÍL 2008 24stundir „Tilgangurinn með útgáfunni er þríþættur; að kynna rannsóknir og kenningar um tungumálakennslu fyrir íslenskum lesendum, að tengja alþjóðlegar rannsóknir því sem er að gerast hér og númer þrjú, að umræða á þessu fræðasviði geti sem best farið fram á íslensku. Að það skapist eðlilegt orðræða á ís- lensku um þetta efni,“ segir Auður Hauksdóttir, annar tveggja ritstjóra bókarinnar Mál málanna sem út kom á vegum stofnunar Vigdísar Finnbogadóttur í gær, en bókin er tileinkuð Vigdísi. Bókin fjallar um nám og kennslu erlendra tungumála og inniheldur frumsamdar greinar innlendra höfunda og þýðingar erlendra lyk- ilgreina. Lítið hefur verið ritað á ís- lensku um rannsóknir á þessu sviði. aak Vigdís Finnbogadóttir fékk bók í afmælisgjöf Á að skapa eðlilega orðræðu á íslensku STUTT ● Umferð Flutningabifreið festist undir Stekkjarbakkabrú á Reykjanesbraut um þrjúleytið í gær. Lögreglunni á höfuðborg- arsvæðinu barst tilkynning um flutningabifreið í sjálfheldu við brúna, vegna of hás farms. ● Síld Hafrannsóknastofnun hefur rannsókn á fæðu ís- lensku síldarinnar síðar í vik- unni. Þriggja daga leiðangur vegna þess verkefnis verður á Dröfn RE þar sem síldarslóðir út af Vestur- og Suðvest- urlandi verða rannsakaðar. ● Brekkuskóli Þrjár umsóknir bárust um stöðu skólastjóra Brekkuskóla á Akureyri. Um- sækjendur voru Bergþóra Þór- hallsdóttir aðstoðarskólastjóri, Hildur Bettý Kristjánsdóttir grunnskólakennari og Jóhanna María Agnarsdóttir skólastjóri. Héraðsdómur Suðurlands kvað í gær upp dóm í þremur málum þar sem ógætilegt aksturlag var talið orsök alvarlegs lík- amstjóns. Kona var dæmd til að sæta fangelsi í mánuð fyr- ir að hafa ekið á vegfar- anda, sem var að fara yfir Tryggvagötu á Selfossi á grænu gangbrautarljósi í haust. Refsingin er skilorðsbundin til tveggja ára. Karlmaður var fundinn sekur um að hafa ekið ógætilega eftir Þrengslavegi í vetur. Bíll hans rann á veginum og skall framan á ann- arri bifreið. Tveggja mánaða fangelsi hans er skilorðsbundið í tvö ár. Karlmaður var dæmdur fyrir að hafa án nægjanlegrar aðgátar tekið u- beygju inn á Suðurlandsveg í Flóa, og í veg fyrir annan bíl. Tveggja mánaða fangelsi hans er skilorðsbundið í tvö ár. aij Þrír umferðarbrotadómar Átak, félag fólks með þroska- hömlun, mun standa fyrir uppá- komu við Alþingishúsið við Aust- urvöll á laugardaginn þar sem hugmyndin er að fá fólk til að taka höndum saman og mynda mannlegan hring umhverfis hús- ið. Uppákoman hefst klukkan 13, en Alþingishúsið er valið sem tákn lýðræðis og sameiningar. Með þessum atburði vill félagið að fólk sýni samstöðu og undirstriki mikilvægi jafnræðis allra í sam- félaginu. Í fréttatilkynningu segir að allir Íslendingar sem vilji leggja þess- um málstað lið séu hvattir til að mæta við Alþingishúsið og taka höndum saman. „Gjörningurinn felur ekki í sér mótmæli af neinu tagi. Tilgangurinn er að minna á tilveru okkar og samstöðu sem erum þroskahömluð.“ aí Mynda hring um Alþingishúsið Lokað verður fyrir umferð um Fífuhvammsveg í Kópavegi milli Reykjanesbrautar og Dalvegar frá klukkan 19 í kvöld til klukkan 9 morguninn eftir vegna steypu- framkvæmda á brú við Smára- torg. Á vef Kópavogsbæjar segir að verktakinn muni flýta verkinu eftir fremsta megni og að opnað verði fyrir umferð á ný um leið og framkvæmdir leyfa. aí Fífuhvamms- vegur lokaður Bifhjólasamtök lýðveldisins Sniglar og Skeljungur hafa gert með sér samstarfssamning sem kveður á um margvíslegan stuðn- ing Skeljungs við Sniglana. Í fréttatilkynningu segir að sam- starfið snúi að samvinnu á sviði öryggismála mótorhjólafólks, auk þess sem félagsmenn Snigla njóta afsláttarkjara hjá Skeljungi og samstarfsfyrirtækjum þess. aí Skeljungur styður Snigla Jóhanna Sigurðardóttir félags- málaráðherra opnaði formlega nýtt Foreldrahús foreldra- samtakanna Vímulausrar æsku í gær í Borgartúni 6 í Reykjavík. Öll starfsemi samtakanna hefur nú verið flutt úr Vonarstræti 4b. Aðstaðan í Borgartúni 6 er á 400 fermetra jarðhæð sem hefur verið innréttuð með tilliti til starfseminnar sem skiptist í tvo meginflokka, forvarnir og stuðningsmeðferð. Foreldrasamtökin Vímulaus æska starfa fyrir alla landsbyggðina og halda námskeið og flytja fyrirlestra víða. ibs Ráðherra opnar nýtt Foreldrahús Neytendasamtökin eru frjáls félagasamtök: stofnuð árið 1953. Þau verja hag félagsmanna og berjast fyrir hagsmunum neytenda. Sjá www.ns.is - netfang:ns@ns.is NEYTENDAVAKTIN Barnaafmæli (afþreying og veitingar) Fyrirtæki Verð Verðmunur Lágmarksfjöldi Fjölskyldu- og húsdýragarðurinn 950 10 Veröldin okkar Smáralind 1.150 21,1 % 0 Ævintýraland Kringlunni 1.150 21,1 % 8 Keiluhöllin 1.400 47,4 % 8 Stjörnustelpur 1.890 98,9 % 10-15
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

24 stundir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: 24 stundir
https://timarit.is/publication/307

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.