24 stundir - 16.04.2008, Blaðsíða 8

24 stundir - 16.04.2008, Blaðsíða 8
8 MIÐVIKUDAGUR 16. APRÍL 2008 24stundir Kína hefur tekið við af Banda- ríkjunum sem mesta meng- unarríki heims, samkvæmt nýrri rannsókn vísindamanna við Háskólann í Kaliforníu. Niðurstöðurnar benda til þess að útblástur Kínverja hafi ver- ið stórlega vanmetinn og að ríkið hafi í raun farið fram úr Bandaríkjunum árið 2006 eða 2007. Talsmaður hópsins segir útblástursaukningu Kínverja gera þann árangur sem náðist með Kyotobókuninni að engu, verði ekkert að gert. aí Bandarísk rannsókn Kína mesta mengunarríkið STUTT ● Flugslys Um áttatíu manns létust þegar DC-9 farþega- flugvél hrapaði á íbúðahverfi í borginni Goma í Kongó í gær. Sex manns lifðu slysið af, þar á meðal flugstjóri og flugmaður vélarinnar. ● Mótmæli Franskir mennta- skólanemar mótmæltu því í gær að fækka eigi kennurum á næsta skólaári. Nemendur lentu í átökum við lögreglu í París, köstuðu flöskum og grjóti í lögregluþjóna, en lög- regla beitti táragasi til að hafa stjórn á mannskapnum. Eftir Atla Ísleifsson atlii@24stundir.is Kínversk yfirvöld tóku að minnsta kosti 470 manns af lífi á síðasta ári, en stóðu að öllum líkindum á bak við dauða fjölda fólks til viðbótar. Þetta segir í nýrri skýrslu mann- réttindasamtakanna Amnesty Int- ernational. Kínastjórn gefur ekki upp fjölda þeirra sem eru teknir af lífi í landinu og telur Amnesty að leyndin gæti í raun og veru þýtt að gestgjafar Ólympíuleikanna stæðu fyrir meginhluta aftakna á heims- vísu. „Aflétta verður þeirri leynd sem hvílir yfir dauðarefsingunni,“ segir í skýrslunni. Að minnsta kosti 1.252 voru teknir af lífi í 24 ríkjum á síðasta ári og er talan nokkru lægri en fyrir ár- ið þar á undan. Kína, Íran, Sádi- Arabía, Pakistan og Bandaríkin báru ábyrgð á 88 prósentum af- taknanna. Kínverjar fá gull Í árlegri skýrslu Amnesty um dauðarefsingar segir að ekkert ríki hafi tekið fleiri af lífi en Kína. Stað- festing hefur fengist á 470 aftökum, en raunverulegur fjöldi er hins veg- ar líklega talinn í þúsundum. „Sem það ríki sem tekur flesta af lífi fær Kína gullverðlaun í aftökum,“ segir Kate Allen, talsmaður Bretlands- deildar Amnesty. Rúmlega sextíu tegundir glæpa geta leitt til dauðarefsingar í Kína, þar á meðal skattsvik, skemmdir á rafstöðvum, sala á fölsuðum lyfj- um, fjárdráttur, fíkniefnabrot, mútuþægni og þjófnaður á virð- isaukaskattskvittunum. Aftökustaður á hjólum Fréttaritari BBC í Kína segir að dauðadómum sé jafnan fljótt full- nægt, oftast innan nokkurra vikna frá dómsuppkvaðningu. Hann seg- ir dauðarefsinguna njóta stuðnings meðal almennings og að stjórnvöld vinni nú að umbótum í kerfinu. Á síðasta ári var þannig úrskurðað að öll dómsmál þar sem menn eru dæmdir til dauða verði tekin fyrir hjá hæstarétti. Að sögn kínverskra ríkisfjölmiðla leiddi það til þess að dauðadómum fækkaði um 10 pró- sent á fyrstu mánuðum síðasta árs. Þeir sem hafa verið dæmdir til dauða hafa yfirleitt verið skotnir, en í sumum héruðum hefur ban- væn sprauta nú verið kynnt til leiks sem aftökuaðferð. Í mörgum til- vikum er notast við sérútbúna sendiferðabíla, sem aka um héruð- in og eru notaðir sem aftökustaður. Uggvænleg fjölgun Í skýrslunni segir að aftökum hafi fjölgað uggvænlega mikið í Ír- an, Sádi-Arabíu og Pakistan, þó að heildarfjöldinn í heiminum hafi lækkað úr 1.591 í 1.252. Meðal þeirra sem voru líflátnir í Íran var maður sem var grýttur til dauða fyrir framhjáhald og þrír sem voru milli 13 og 16 ára við handtöku. Amnesty segist þó fagna nýlegri ályktun Sameinuðu þjóðanna þar sem ríki eru hvatt til að afnema dauðarefsingu. Kínversk yfirvöld tóku flesta af lífi  Amnesty International telur Kínverja leyna upplýsingum um réttan fjölda aftakna Aftökur Amnesty telur að raunverulegur fjöldi þeirra sem voru teknir af lífi í Kína hlaupi á þúsundum. ➤ 3.347 voru dæmdir til dauða í51 ríki á síðasta ári. ➤ Áætlað er að um 27.500manns séu nú á dauðadeild og bíði þess að dómi þeirra verði fullnægt. ➤ 42 voru teknir af lífi í Banda-ríkjunum á síðasta ári. ➤ Síðustu ríkin til að afnemadauðarefsingu voru Gabon, Suður-Kórea og Úsbekistan. AFTÖKUR Silvio Berlusconi, verðandi for- sætisráðherra Ítalíu, hefur heitið því að það verði meðal mikilvæg- ustu verkefna hans sem nýr for- sætisráðherra að binda enda á sorpvandræðin í Napoli og að laga bága fjárhagsstöðu flugfélagsins Alitalia. Bandalag mið- og hægriflokka, undir forystu Berlusconis náði öruggum meirihluta í báðum deildum Ítalíuþings í nýafstöðnum þingkosningum. „Ég verð í Napoli þrjá daga í viku og mun ekki fara fyrr en lausn hefur náðst,“ sagði Berlusconi, en miklir sorphaugar hafa safnast saman á götum borg- arinnar undanfarna mánuði með tilheyrandi fýlu. Auðjöfurinn Berlusconi hefur varað landsmenn sína við að erfiðir tímar séu framundan og heitið því að vinna náið með nýrri stjórnar- andstöðu til að ná fram nauðsyn- legum efnahagsumbótum. aí Erfið verkefni bíða nýrrar Ítalíustjórnar Berlusconi hyggst hreinsa til í Napolí Hæstiréttur Danmerkur staðfesti í gær tveggja ára fangelsisdóm yf- ir Peter Brixtofte, fyrrverandi bæjarstjóra í Farum, sem hann hlaut fyrir alvarleg umboðssvik og fleiri brot. Brix- tofte hafði áður hlotið annan tveggja ára dóm fyrir að láta Farum greiða of hátt verð fyrir bygging- arframkvæmdir. Fyrirtækin, sem Brixtofte samdi við, létu yfirverð- ið renna til íþróttafélags í Farum. Þá hafði Brixtofte meðal annars tekið lán að andvirði 450 millj- ónir danskra króna án umboðs til að leyna slæmum fjárhag bæj- arfélagsins, auk þess að drekka rándýrt rauðvín á kostnað skatt- greiðenda. aí Hæstiréttur Danmerkur Staðfesti dóm yfir Brixtofte Fleiri tugir manna fórust í sprengjutilræðum í þremur borg- um í Írak í gær. Dagurinn er einn sá blóðugasti í landinu það sem af er ári. Um 50 manns fórust og um 70 særðust er sprengja sprakk í rútu í borginni Baquba. Þá fór- ust þrettán hið minnsta er sjálfs- vígssprengjumaður sprengdi sjálfan sig í loft upp á kebabveit- ingastað í Ramadi og nokkrir er sprengja sprakk í höfuðborginni Bagdad. aí Blóðugur dagur í Írak Tugir manna fórust í tilræðum Umsóknarfrestur er til 30. apríl Kynntu þér námið á www.hr.is Námið er einkum ætlað þeim sem hafa lokið BSc-prófi í verkfræði eða tæknifræði með góðum árangri. Nemendur sem hafa annan bakgrunn úr BSc-námi sínu geta útskrifast með meistara- próf á tilteknum sérsviðum verkfræðinnar, s.s. meistarapróf í framkvæmdastjórnun, umferðar- og skipulagsfræðum, heilbrigðisvísindum o.fl. TÆKNI- OG VERKFRÆÐIDEILD HR MEISTARANÁM VIÐ Tækni- og verkfræðideild HR býður meistaranám í • Byggingarverkfræði - Framkvæmdastjórnun - Umferðar- og skipulagsfræðum - Steinsteyputækni - Mannvirkjahönnun • Fjármálaverkfræði • Véla- og rafmagnsverkfræði • Heilbrigðisverkfræði • Líf- og heilbrigðisvísindum • Ákvarðanaverkfræði
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

24 stundir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: 24 stundir
https://timarit.is/publication/307

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.