24 stundir


24 stundir - 16.04.2008, Qupperneq 12

24 stundir - 16.04.2008, Qupperneq 12
12 MIÐVIKUDAGUR 16. APRÍL 2008 24stundir 24stundir Útgáfufélag: Ritstjóri: Fréttastjórar: Ritstjórnarfulltrúi: Árvakur hf. Ólafur Þ. Stephensen Björg Eva Erlendsdóttir Gunnhildur Arna Gunnarsdóttir Þröstur Emilsson Elín Albertsdóttir Auglýsingastjóri: Gylfi Þór Þorsteinsson Ritstjórn & auglýsingar: Hádegismóum 2, 110 Reykjavík Aðalsími: 510 3700 Símbréf á fréttadeild: 510 3701 Símbréf á auglýsingadeild: 510 3711 Netföng: frettir@24stundir.is, auglysingar@24stundir.is, 24stundir@24stundir.is, Prentun: Landsprent ehf. Gísli Marteinn Baldursson, borgarfulltrúi og formaður umhverfis- og samgönguráðs Reykjavíkur, sagði frá því í 24 stundum í gær að til stæði að breyta aðalhjólastíg borgarinnar, sem liggur vestan af Ægisíðu og upp í Elliðaárdal. Skipta á stígnum í tvennt og breikka hjólreiðastíginn svo hjól- reiðamenn geti mætzt með góðu móti. Þá ætla borgaryfirvöld að bæta lýs- ingu, taka út blindbeygjur og jafnvel hita stíginn upp á köflum. Þetta eru góðar fréttir fyrir sífellt fleiri hjólreiðamenn, sem nýta sér stíg- ana í borginni og vonandi upphaf að frekari umbótum á stígakerfinu, sem enn sem komið er tekur meira mið af þörfum gangandi vegfarenda en hjólreiðafólksins. Það eru líka góðar fréttir af strætó og kannski þær beztu í mörg ár. Til- raunin um að gefa framhalds- og háskólanemum frítt í vagnana skilaði þeim árangri að farþegum fjölgaði um eina milljón á ársgrundvelli, úr 7,7 milljónum í 8,7. Í blaðinu í dag kemur fram að mikil eftirspurn er eftir strætóferðum á lengri leiðum; Akranesstrætó er oftast fullsetinn og nú vilja fleiri ná- grannasveitarfélög höfuðborgarsvæðisins tengjast strætisvagnanetinu. Þannig gæti orðið til strætisvagnakerfi „stórhöfuðborgarsvæðisins“, sem teygði sig alveg úr Borgarnesi – eða þess vegna Bifröst – suður í Reykja- nesbæ og austur á Selfoss. Ef fleiri jákvæðar fréttir af þessu tagi berast, bendir það kannski til að loksins sé að takast að búa til einhverja aðra raunhæfa kosti í samgöngu- málum höfuðborgarsvæðisins en einkabílinn. Það er reyndar a.m.k. enn sem komið er hvorki afsökun fyrir að ráðast ekki í löngu tímabærar sam- göngubætur á höfuðborgarsvæðinu né að lækka ekki opinberar álögur á benzín og olíu. En kannski er byrjað að skína í að einkabíllinn þurfi ekki að vera kostur allra, alltaf. Það er athyglisvert hvaða árangri núverandi borg- arstjórnarmeirihluti hefur náð í þessum málum. Reykjavíkurlistinn taldi að ekki þyrfti að gera neitt fyrir einkabílinn af því að strætó og hjólreiðar ættu að koma í staðinn, en gerði ekki nóg til að greiða götu þeirra samgöngukosta. Núverandi borgaryfirvöld virðast hins vegar taka þá raunsæju afstöðu að það þurfi bæði að bæta við samgöngumannvirkjum til að greiða fyrir umferð einkabíla og byggja upp aðra kosti. Og svo á að kanna kosti lesta eða sporvagna, sem gæti orðið framtíðarlausnin, sem hefur raun- verulegan forgang í umferðinni. Stígar og strætó SÆKTU LEIÐARANN Á WWW.MBL.IS/PODCAST Það var vond hugmynd að selja Björgólfi Fríkirkjuveg 11 til að nota sem monthús og enn verri hugmynd er að leyfa honum að leggja bílaveg í gegnum þennan fallega garð og loka honum af til að fínt fólk þurfi ekki að deila kjörum með þeim sem labba upp í húsið neðan af Fríkirkju- vegi. Þetta er um það bil 30 metra spölur. Þetta var í anda auð- mannadekursins og auðmanna- dýrkunarinnar sem tröllreið öllu hérna fyrir nokkrum árum. Björgólfur réttlætti kaupin með því að hann ætlaði að opna safn um langafa sinn, Thor Jensen. Egill Helgason eyjan.is/silfuregils BLOGGARINN Vond hugmynd Engum dylst að í fjölskyldu Ingi- bjargar Sólrúnar er mikil og ein- læg vinátta í garð Kínverja og mikill áhugi á kínverskri menn- ingu. Ég ber fulla virðingu fyrir því og deili raunar þessum áhuga á Kína. Það er hins vegar annað mál að Ingibjörg Sól- rún hlýtur fyrr eða síðar að svara þeim stjórn- skipunarlegu og hápólitísku spurningum sem brenna ekki síst á íslenskum jafnaðarmönnum … Er hún í Evrópuliðinu eða Kína- liðinu? Ef hún er í Evrópuliðinu hlýtur hún fyrr eða síðar að þagga niður í fyrrverandi for- manni Alþýðubandalagsins … Árni Snævarr arni.eyjan.is Kínaliðið Spá fjármálaráðuneytisins um lækkun fasteignaverðs er að mínu mati nær lagi en spá Seðla- bankans sem tel- ur að raunlækk- un húsnæðisverðs verði 30% á þessu tímabili, en ekki 15% eins og fjármálaráðu- neytið. Seðla- bankinn virðist gera ráð fyrir óðaverðbólgu og að hvorki bankinn né stjórnvöld geti haft neina stjórn á efnahags- lífinu. Vonandi er það ekki svo. Einn þáttur sem ekki er tekið til- lit til í spám um þróun húsnæð- isverðs er sú staðreynd að lána- þurrð verður ekki alger á fasteignamarkaði … Hallur Magnússon hallurmagg.blog.is 15% lækkun Ólafur Þ. Stephensen olafur@24stundir.is Sú úrelta hugsun kynjamisréttis að karlar eigi að vera æðri konum er greypt inn í samfélagsgerðina að mörgu leyti. Hún birtist okkur víða. Sem dæmi má nefna ójöfn kynjahlutföll í valdastöðum, orðanotkun þar sem strákar eru skammaðir fyrir að gera hlutina eins og stelpur ef þeir gera eitthvað illa og síðast en ekki síst, þá kvenfyrirlitningu sem karlar sýna kon- um í gegnum verslun með kvenlíkamann. Fyrir fjórum árum var ég stödd fyrir utan skemmtistað sem hét Jón forseti. Tilefnið var blautbolskeppni, haldin af útvarpsstöð. Þar ætluðu um 300 karlmenn að skemmta sér við að horfa á nokkrar dauðadrukknar ungar konur standa í bala og hella yfir sig vatni. Við kölluðum þetta hóprunk og mættum fyrir utan til að gefa grey strákunum tissjú. Ég rifja þetta upp nú þegar hópur karlmanna í Hestamannafélaginu Herði sá ástæðu til að hittast á hóprunki. Hóprunkið mun vera árlegur við- burður hjáþeim. Ekki hafa þeir áhyggjur af því að athæfið flokkast sem argasta kvenfyrirlitning og vekur í fæstum tilfellum lukku hjá eiginkonum þeirra og dætrum. Það er einmitt til marks um kvenfyrirlitninguna sem í gjörningnum felst. Álit, skoðanir og vilji kvenna er virtur að vettugi, jafnvel þótt athöfnin snúist um eitthvað sem karlar gera konum. Sem betur fer hefur ÍSÍ tekið skýra afstöðu gegn hóprunki karla. Það er mikilvægt fordæmi. Hestamannafélagið sjálft vill ekki heldur láta bendla nafn sitt við kvenfyrirlitninguna. Því miður eru þó sumir karlar sem eru á þeirri skoðun að þetta sé þeirra réttur. Verst að ég vissi ekki af því fyrir karlakvöldið. Þá hefði ég sent þeim tissjú. Höfundur er femínisti Hóprunk hestamanna ÁLIT Katrín Anna Guðmunds- dóttir katrínc@hi.is Útfararþjónustan ehf. Stofnað 1990 Símar: 567 9110 & 893 8638 www.utfarir.is • runar@utfarir.is Alhliða útfararþjónusta Rúnar Geirmundsson Sigurður Rúnarsson Elís Rúnarsson Þorbergur Þórðarson • Bylting fyrir bakið • Styrkir magavöðvana • Frelsi í hreyfingum • Með eða án hjóla Swopper vinnustóllinn www.eirberg.is • 569 3100 • Stórhöfða 25
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

24 stundir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: 24 stundir
https://timarit.is/publication/307

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.