24 stundir


24 stundir - 16.04.2008, Qupperneq 13

24 stundir - 16.04.2008, Qupperneq 13
24stundir MIÐVIKUDAGUR 16. APRÍL 2008 13 Þeim fer fjölgandi, sem hvetjastjórnmálamenn til aðsækja ekki hátíðahöld vegna Ólympíuleikanna í Kína. Í þessum hópi er Þórlindur Kjart- ansson, formaður SUS, sem skrifar um málið á deiglan.is. Sú táknræna aðgerð að mætaekki í pólitískum erindum áleikana felur því í sér bæði virðingu við leikana og þegnana í Kína. Þar er litlu fórnað nema nokkrum kokteilglösum og góðu sæti úr heiðursstúkunni – en í of- análag þá er ómögulegt að túlka fjarveruna sem móðgun við kín- verskan almenning þótt hún kunni að vera vonbrigði fyrir kín- verska ráðamenn,“ skrifar Þór- lindur. „Það er hins vegar ekkert við það að athuga ef íslenskir stjórnmálamenn vilja mæta á leik- ana og styðja til- tekna íþróttamenn. Best færi þá á því að aftengja pólitíkina alfarið frá leikunum og mæta í gallabux- unum, með fánann málaðan í andlitið og setjast við hliðina á öðrum óbreyttum stuðningsmönnum en standa ekki í jakkafötum eða dragt við hliðina á mönnum sem vilja gefa þjóð sinni þau skilaboð að heimurinn felli sig við þá harðstjórn, rit- skoðun og ofbeldi sem þeir ástunda.“ Þetta virðist nánast skrifað eins og persónuleg hvatning til Þor- gerðar Katrínar Gunnarsdóttur menntamálaráðherra, sem kann þá list öðrum stjórnmálamönnum fremur að mæta í gallabuxunum og skapa óformlega stemningu. Björn Bjarna-son dóms-málaráð- herra segir um þetta á vef sínum: „Sá munur er á Ólymp- íuleikum undir for- ræði einræðisríkja og lýðræð- isríkja, að hin fyrrnefndu líta á leikana öðrum þræði sem við- urkenningu á stjórnarháttum sín- um, en hin síðarnefndu láta sér slíkt í léttu rúmi liggja. Einmitt þess vegna er litið öðrum augum á ferð stjórnmálamanna á leikana í einræðisríki - hún er túlkuð sem pólitísk viðurkenning ekki síður en stuðningur við íþróttamenn. Þetta verða stjórnmálamenn að hafa hugfast.“ olafur@24stundir.is KLIPPT OG SKORIÐ Um liðna helgi hélt kvenna- hreyfing Samfylkingarinnar Árs- þing sitt að Hótel Örk í Hvera- gerði. Auk almennra stjórnmálaumræðna var aðalum- ræðuefni fundarins aðferðafræði við val frambjóðenda á lista og bar þar hæst umræðuna um opin eða lokuð prófkjör. Katrín Júl- íusdóttir alþingismaður hafði framsögu um stjórnmálaástandið og í umræðum á fundinum kom fram ánægja með ríkisstjórnar- samstarfið þó margar konur lýstu áhyggjum vegna stöðu efnahags- mála. Í stjórnmálaályktun þings- ins var ýmsum árangri Samfylk- ingarinnar fagnað en bent á að kjör láglaunakvenna þarf að bæta. Einnig þarf rauði þráðurinn í við- brögðum við efnahagsástandinu að taka mið af hag heimilanna og lífskjörum almennings. Ársþingið hvatti einnig til markvissrar um- ræðu um aðild Íslands að Evr- ópusambandinu á forsendum lífs- kjara fyrst og fremst. Í aðild Íslands gæti falist sú langtíma- lausn sem íslenskt efnahagsum- hverfi og heimilin í landinu þurfa á að halda. Kostir og gallar Í framsögum þeirra Þórunnar Sveinbjarnardóttur og Bryndísar Ísfoldar Hlöðversdóttur um að- ferðafræði við val á framboðslista var bent á mismunandi aðferðir og dregnir fram kostir og gallar hinna ýmsu kerfa. Í vinnuhópum síðar á fundinum kom fram ein- dreginn vilji fundarkvenna til þess að umræða um þessi mál héldi áfram innan flokksins. Segja má að Samfylkingin hafi tekið prófkjörsarfleifð gamla Alþýðu- flokksins upp á sína arma og við- haft ýmsar útgáfur af opnum prófkjörum frá því flokkurinn var stofnaður. Galopin prófkjör eða svokölluð stuðningsmannapróf- kjör þar sem allir geta kosið, burtséð frá því hvort viðkomandi getur hugsað sér að kjósa flokk- inn í næstu kosningum, hafa sína kosti þó gallarnir séu fleiri. Kost- irnir sem helst eru nefndir eru að oft getur skapast mikil stemning og mikil þátttaka í kringum opin prófkjör sem getur smitað yfir í kosningar ef vel tekst til. Gall- arnir eru hins vegar þeir að kostnaður verður mikill, auglýs- ingar vilja fara úr böndum og „fegurðarsamkeppni“ frambjóð- endanna leiðir oft til særinda sem geta skaðað starf flokksins inn á við. Hér skal ekkert mat lagt á það hvaða aðferð er heppilegust fyrir Samfylkinguna í framtíðinni. Niðurstaða Ársþingsins var hins vegar sú að undirritaðri og stjórn kvennahreyfingarinnar var falið að koma sjónarmiðum fundarins á framfæri við framkvæmdastjórn flokksins. Einnig er mælst til þess að umræða um þessi mál verði tekin á flokksstjórnarfundi innan Samfylkingarinnar. Fullkomið launajafnrétti Þó kvennahreyfing Samfylking- arinnar sé enn ung að árum vex hreyfingunni hratt fiskur um hrygg. Um leið og hreyfingin beitir sér út á við í opinberri um- ræðu um jafnréttismál viljum við auka vægi málaflokksins innan flokksins. Á sama tíma og við munum fylgjast markvisst með skipan ráðherra flokksins í ráð og nefndir með tilliti til þess að jafn- ræðis kynja sé gætt, fögnum við mörgu því sem ráðherrar Sam- fylkingarinnar hafa gert á því eina ári sem liðið er af þessu rík- isstjórnarsamstarfi. Þar má t.d. nefna þá áherslu sem formaður Samfylkingarinnar hefur lagt á stöðu og hlutskipti kvenna um allan heim í starfi sínu sem utan- ríkisráðherra. Nýjum jafnréttis- lögum félagsmálaráðherra ber að fagna svo og þeirri vinnu sem fer nú fram við að kortleggja aðgerð- ir til að minnka launamun kynjanna hjá hinu opinbera. Þá ber að fagna nýjum áherslum umhverfisráðherra í loftslagsmál- um. Að lokum telur ársþing kvennahreyfingar Samfylkingar- innar að jöfn kynjaskipting í ráð- herraliði flokksins í núverandi ríkisstjórn eigi að marka upphaf að eðlilegri kynjaskiptingu í allri (stjórnmála)starfsemi í framtíð- inni. Hin ófrávíkjanlega og eðli- lega krafa er helmings hlutdeild kvenna og fullkomið launajafn- rétti á öllum sviðum íslensks samfélags. Höfundur er alþingismaður Helmingshlutdeild VIÐHORF aSteinunn Valdís Óskarsdóttir Hin ófrávíkjanlega og eðlilega krafa er helm- ings hlut- deild kvenna og fullkomið launajafn- rétti á öllum sviðum ís- lensks samfélags. VÉLSTJÓRI ÓSKAST á togara þarf að hafa atvinnuréttindi VS1 Upplýsingar í síma 892-8036
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

24 stundir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: 24 stundir
https://timarit.is/publication/307

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.